Mosfellingur - 22.10.2015, Side 8
Rafræn þjónusta
í stöðugri þróun
Ein af meginstefnuáherslum
Mosfellsbæjar er að vera leiðandi
í rafrænni stjórnsýslu og að leggja
áherslu á gott aðgengi að þjónustu.
Nýjasta viðbótin í rafrænni þjónustu
er sú að úthlutun leikskólaplássa
verður framvegis með rafrænum
hætti. Hægt er að sækja um
leikskólapláss á íbúagátt Mosfells-
bæjar og send verður tilkynning
til umsækjanda í tölvupósti þegar
barnið hefur fengið úthlutað plássi.
Nýverið var tekin í notkun kortasjá.
Þar eru meðal annars teikningar
fasteigna í bænum aðgengilegar
milliliðalaust. Þá geta eigendur
fasteigna eða aðrir áhugasamir sótt
teikningar húsa. Einnig er að finna á
heimasíðu bæjarins ábendingakerfi.
Þar er hægt að staðsetja á korti þann
stað þar sem einhverju er ábótavant
og senda skilaboð til Mosfellsbæjar.
Að síðustu má nefna að bæjar-
stjórnarfundir eru nú bæði teknir
upp í hljóði og mynd og stefnt er að
því að þeir verði framvegis sendir út
beint á netinu. Nánari upplýsingar
um það verður að finna á heimasíðu
Mosfellsbæjar.
Kviknaði í út frá
útiljósi í Skeljatanga
Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Skelja-
tanga aðfararnótt sunnudagsins
4. október. Leigubílstjóri sem átti
leið hjá varð eldsins var, vakti íbúa
hússins og hjálpaði til við að bjarga
út tveimur börnum sem þar voru.
Slökkvistarf gekk vel og tók um eina
og hálfa klukkustund. Eldurinn kom
upp í rekkverki í timburklæðningu
á skjólvegg við kjallara hússins. Í
fyrstu var talið að um íkveikju væri
að ræða en samkvæmt upplýsingum
Mosfellings þykir ljóst að kviknað
hafi í út frá útiljósi.
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Okkur vantar allar
gerðir bíla á staðinn
100 bílar | ÞverhOlti 6 | sími 517 9999 | 100bilar@100bilar.is
Hamrar hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ
Óskum eftir starfsmanni við umönnun á Hömrum hjúkrunar-
heimili Mosfellsbæ, í 80% starf, aðallega á dagvinnutíma.
Einnig vantar okkur starfsmann við ræstingar í 63% stöðu.
Nánari upplýsingar veita:
Fríða Pálmadóttir deildarstjóri Hömrum í síma 860 7980.
Umsóknir má einnig senda rafrænt á: frida@eir.is
Hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík, sími 522 5700
Þemadagar í Varmárskóla
Það var margt um að vera á þemadögum í
Varmárskóla sem haldnir voru 7.-9. október.
Yfirskrift þemadaganna var Heilbrigði og
velferð, sem er einn af fimm grunnþáttum
menntunar. Einnig er þetta í takt við stefnu
Mosfellsbæjar um heilsueflandi samfélag.
Öllum árgöngum var blandað saman sem
er nýjung á þemadögum skólans.
Á áttunda hundrað nemenda var skipt
í 36 hópa. Nemendur 10. bekkjar voru
hópstjórar en kennarar sáu um stöðvar-
stjórnun. Allir nemendur fóru í gegnum
níu stöðvar þar sem tekið var fyrir m.a.
sjálfsmynd, forvarnir, skyndihjálp, hrein-
læti, heimilisfræði, myndlist, leikir, hvíld og
jóga. Þemadagar voru mjög vel heppnaðir.
MOSFELLINGUR
kemur næst út
12. nóVember
Bókmenntahlaðborð
Alger veisla
Í Bókasafni Mosfellsbæjar
þriðjudaginn 10. nóvember 2015
kl. 20-22
Höfund r:
Auður Jónsdóttir
Árni Bergmann
Bjarki Bjarnason
Jón Kalman Stefáns on
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Stjórnandi:
Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur stýrir umræðum að vanda
Tónlist:
Tónlist leikin frá 19:30 þar til dagskrá hefst
Veitingar:
Kertaljós og veitingar að hætti Bókasafnsins
Aðgangur ókeypis
Bókmenntahlaðborð
Alger veisla
Í Bókasafni Mosfellsbæjar
þriðjudaginn 10. nóvember 2015
kl. 20-22
Höfundar:
Auður Jónsdóttir
Árni Bergmann
Bjarki Bjarnason
Jón Kalman Stefánsson
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Stjórnandi:
Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur stýrir umræðum að vanda
Tónlist:
Tónlist leikin frá 19:30 þar til dagskrá hefst
Veitingar:
Kertaljós og veitingar að hætti Bókasafnsins
Aðgangur ókeypis