Mosfellingur - 22.10.2015, Page 12
- Fréttir af fólki12
Sameiginleg hrútasýning fyrir Mosfellsbæ, Kjalarnes
og Kjós var haldin að Kiðafelli í Kjós 12 . október.
Þar gafst bændum kostur á að fá stiguð og ómmæld
lömb og veturgamla hrúta. Sýningin er jafnframt
vettvangur til að verða sér út um gripi til kynbóta.
Þá fór fram verðlaunaafhending fyrir flottustu hrúta
sýningarinnar og urðu úrslit eftirfarandi:
Lambhrútar hvítir:
1. sæti Hrútur nr. 428 frá Kiðafelli. Eigandi Sigurbjörn.
2. sæti Hrútur nr. 381 frá Grímsstöðum.
Eigendur Ásta og Hreiðar.
3. sæti Hrútur nr. 244 frá Kiðafelli. Eigandi Sigurbjörn.
Lambhrútar kollóttir og mislitir:
1. sæti Hrútur nr. 19 frá Kiðafelli. Eigandi Sigurbjörn.
2. sæti Svarti haninn frá Hraðastöðum. Eigandi Baddi.
3. sæti Golli frá Kiðafelli. Eigandi Björgvin.
Veturgamlir hrútar
1. sæti Ljóri frá Meðalfelli (keyptur frá Snartar-
stöðum). Eigandi Sigurþór og Sibba.
2. sæti Djúpur frá Kiðafelli. Eigandi Sigurbjörn.
3. sæti Borginmóði frá Reykjum (keyptur frá Miðdal).
Eigandi Ingibjörg Ásta. Efstu þrír lambhrútarnir í flokki kollóttra og mislita. Efstu þrír lambrútarnir árið 2015. Hrútur frá Kiðafelli í efsta sæti.
Sigurbjörn á Kiðafelli og Kristján á Grjóteyri. Sigurþór á Meðalfelli og Guðmundur í Miðdal.Svana í Miðdal, Maja á Morastöðum, Sibba á Meðalfelli og Bergþóra á Kiðafelli fylgdust spenntar með.
Sameiginleg hrútasýning í Kjósinni • Hreppaskjöldurinn fór á Meðalfell • Lambhrútarnir frá Kiðafelli í efstu sætum
Flottustu hrútarnir allir á einum stað
Íslandsgarpar hylltir
Íslandsgarpur er þríþraut sem felur í sér Tindahlaup Mos-
fellsbæjar, hjólreiðakeppnina Jökulmíluna og Íslandsmótið í
Víðavatnssundi og hljóta þeir keppendur sem klára þríþraut-
ina á innan við ári nafnbótina Íslandsgarpur.
Að þessu sinni voru Íslandsgarparnir fjórir, þau Guðrún
Geirsdóttir, Rafnkell Jónsson, Irina Óskarsdóttir og Viðar
Þorsteinsson. Móttaka var haldin af því tilefni í Lágafellslaug
þriðjudaginn 13. október þar sem veglegir sérhannaðir
verðlaunapeningar voru afhentir þessu öfluga fólki.
Vinningar til þátttak-
enda í Hreyfiviku
Hreyfivika UMFÍ fór fram dagana
21.-27. september og stóð Mos-
fellingum til boða göngur á fellin í
Mosfellsbæ af því tilefni í fylgd með
Ferðafélagi Íslands. Göngurnar
voru í heildina sex talsins og þóttu
heppnast vel. Þátttakendur fengu
stimpla fyrir hverja göngu sem þeir
kláruðu og komust þannig í pott þar
sem vegleg verðlaun voru í boði. Að
þessu sinni fengu allir þátttakendur
verðlaun og má þar nefna dagsferð
fyrir tvo með Ferðafélagi Íslands,
gistingu fyrir fjóra í Langadal í Þórs-
mörk í tvær nætur og 20 þúsund
króna inneign í Fjallakofanum auk
annarra glæsilegra vinninga.
Ræða ástand og
horfur í stjórnmálum
Laugardaginn 31. október verður
haldinn opinn fundur á vegum
vinstri-grænna í Mosfellsbæ.
Þangað mæta Svandís Svavars-
dóttir alþingismaður og fyrrum
umhverfisráðherra og Rósa Björk
Brynjólfsdóttir framkvæmdastýra
þingflokks VG og varaþingkona.
Þær munu ræða ástand og horfur
í íslenskum stjórnmálum og svara
fyrirspurnum fundargesta. Fund-
urinn verður haldinn á Kaffihúsinu
Álafossi og hefst kl. 13.
Kvennakirkjan leiðir guðsþjón-
ustu í Mosfellskirkju sunnudag-
inn 25. október kl. 11:00. Tilefnið
er tvíþætt, Mosfellskirkja heldur
upp á 50 ára afmæli sitt á þessu
ári og öld er liðin frá því að
konur fengu kosningarétt.
Að guðsþjónustu lokinni flytur Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona,
leikþátt um hina merku konu Ólafíu Jóhannsdóttur sem fædd var á
Mosfelli 1863, og kom m.a. við sögu sem baráttukona þess málefnis.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir tónlistarstjóri Kvennakirkjunnar leiðir
tónlistina.
Sr. Arndís Linn prestur Kvennkirkjunnar prédikar og konur
Kvennakirkjunnar taka þátt. Að athöfn og leikþætti loknum býður
Lágafellssókn í kaffi í Reykjadal.
Kvennakirkjan
leiðir guðsþjónustu
í Mosfellskirkju
Á fjögurra ára fresti er
haldnir Evrópuleikar sem
kallast European Masters
games. Um er að ræða
fjölsóttan viðburð með
um 10.000 keppendum
en keppt er í hinum ýmsu
ólympíugreinum. Keppend-
ur eru allir 35 ára eldri og
er markmið leikanna ekki
síst að hvetja til lífslangrar
þátttöku í íþróttum.
Tveir þjálfarar við tae-
kwondodeild Aftureldingar
voru meðal þátttakenda
fyrir Íslands hönd, systkinin
Arnar Bragason, yfirþjálfari
hjá taekwondodeild Aftureldingar og María Bragadóttir.
Arnar Bragason keppti í flokki 45 ára og eldri, -68 kg, A-class
María Bragadóttir keppti í flokki 35 ára og eldri, -57 kg, A-class
Árangur liðsins var stórkostlegur. Arnar hlaut silfur og María
hlaut brons. Mótið fór fram í Frakklandi.
Þjálfarar úr Aftureldingu
á European Masters games
systkinin
María og arnar
fyrstu íslands-
garparnir krýndir