Mosfellingur - 22.10.2015, Page 24

Mosfellingur - 22.10.2015, Page 24
 - Aðsendar greinar24 Út með kassann Settist niður til að skrifa pistil um mikilvægustu styrktaræfingu okkar tíma, róður í böndum. Frábært mótvægi við kryppustöðuna sem við mannkynið erum að vinna okkur inn í með síaukinni snjallsíma- og tölvu- notkun. Einföld æfing, þráðbeinn líkami, hælar í jörðu, hendur halda í kaðal eða bönd sem hanga neðan úr trjágrein eða slá. Upphafsstaðan er útréttar hendur, svo togar maður sig hægt upp þangað til hendur nema við brjóstkassa, líkaminn beinn allan tímann. Því láréttari sem líkaminn beini er, því erfiðari er æfingin. Gott að gera þessa æfingu reglulega, hún réttir vel úr brjóstbakinu og leiðréttir kryppustöðuna. En svo langaði mig frekar að skrifa pistil um mikilvægi þess að læra í gegnum leik. Að kenna börnum íþróttir með því að leyfa þeim að ærslast og leika sér. Setja leikina þannig upp að þau læri ómeðvit- að hreyfingar sem nýtast þeim í íþróttum. Sitjandi rugby er til dæmis góð leið til að æfa grunnhreyfingar í brasilísku jiu jitsúi. Við prófuðum þetta tveir pabbar um síðustu helgi með 4-12 ára krökkunum okkar og ætlum að halda áfram að vinna með þessa aðferð enda mjög skemmtileg. Mig langaði líka í þessum pistli að hrósa bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ. Það gleymist oft að láta vita af því sem vel er gert. Mosfells- bær er að verða mikil fyrirmynd varðandi hreyfingu og heilsu. Fyrir utan sparkvellina, sundlaugarnar, íþróttasalina og önnur mannvirki, þá bætist jafnt og þétt í flóru göngu- og hjólastíga í bæjarfélaginu. Það er frábær þróun sem hvetur okkur öll til þess að stunda meiri útivist og koma okkur á milli staða án þess að nota bílinn. Ég þarf sjálfur að taka mig hressilega á í þeim efnum, nota bílinn alltof mikið til að skottast á milli staða í Mosó, en lofa bót og betrun. Sem sagt, út með kassann, leikum meira og munum að hrósa. Heilsumolar Gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Mæður íslands svipMyndir frá fruMsýnin gu

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.