Mosfellingur - 22.10.2015, Síða 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Mexíkósk kjötsúpa
Í eldhúsinu
Þóra Jónasardóttir og
Guðmundur Ásgeirsson eru
matgæðingar mánaðarins.
„Við hjónin þökkum Kollu og
Finni kærlega fyrir að gera
okkur fræg í Mosfellsbæ
með því að skora á okkur í
„Í eldhúsinu“ í bæjarblaði
okkar Mosfellinga, Mos-
fellingi.
Við skoruðumst ekki undan
þessu annars erfiða verk-
efni enda ekki á færi allra
að fylgja eftir salsakjúkl-
ingi með Mexíkó-osti.
Við höldum okkur við Mex-
íkó en tökum slaginn með
einfaldri súpu, mexíkóskri kjötsúpu, sem
klikkar ekki þó svo að sá á heimilinu sem
eldar sjái aldrei um eldamennskuna.“
Mexíkósk kjötsúpa:
• 200 gr nautahakk
• 1 laukur, fínhakkaður
• 1 rifið hvítlauksrif
• 3 msk ólívuolía
• 2 tsk cummin
• 2 tsk paprikuduft
• 1 tsk karrý
• 1 msk oreganó
• 3 msk tómatpuré
• 1 lítri kjötkraftur (vatn og 1-2 kjötkrafts-
teningar, mér þykir gott að nota nauta- og
grænmetisteninga)
• 4 kartöflur, skornar
í teninga
• 1 rauð paprika,
fínhökkuð
Steikið lauk og
hvítlauk í olíunni
og leggið til hliðar.
Steikið nautahakk
með kryddum og
tómatpuré. Bætið
laukunum út í ásamt
kjötkrafti, kartöflum
og papriku. Sjóðið í 30
mínútur. Berið fram
með sýrðum rjóma,
guacamole, nachos og
heitu baguette.
Guacamole:
• 2 vel þroskuð avókadó, skorin í litla bita
• 2 stórir tómatar, skornir mjög smátt
• 1-2 hvítlauksrif, söxuð mjög smátt (má
sleppa)
• 1/2 rauðlaukur, saxaður smátt
• 1-2 fersk rauð chili, kjarnhreinsuð og söxuð
smátt
• safi úr einni límónu (lime)
• 1-2 búnt ferskt kóríander, saxað smátt
• 1/2 tsk salt
Blandið saman öllum hráefnunum og setjið í
skál, lokið skálinni mjög þétt með plastfilmu
og geymið í ísskáp í minnst korter áður en
hún er borin fram. Guacamole geymist illa og
ætti því að vera borið fram strax.
Vaaserbueno
Þóra og Guðmundur skora á Guðmund Birgisson og Jónínu Ármundadóttur fyrir næsta blað.
Hreyfingar-
leystu þig
úr læðingi
Einn mesti skaðvaldur nútíma samfé-
lags er hreyfingarleysi. Það er ástæð-
an fyrir því að við erum að drepast
í bakinu, hjartanu og belgnum. Það
er stór áhrifaþáttur þegar kemur að
andlegri líðan. Ef seinni hluta orðsins
er eytt stendur eftir magnaðasta lyf
sem völ er á; hreyfing. Lausnin við
mörgum okkar vandamálum.
En hvað er uppbyggileg hreyfing?
Hversu flókið fyrirbæri er það? Það
er nefnilega alls ekki flókið fyrirbæri
þó það sé hægt að flækja það út í hið
óendanlega.
Í líkamsræktarfrumskóginum er
nefnilega einfalt að villast. Uppbyggi-
leg hreyfing eða heilsurækt er ekki
það sama og afreksþjálfun. Þetta virð-
ast margir misskilja. Heilsurækt snýst
ekki um að æfa sjö sinnum í viku og
vera í ólympíuformi. Alls ekki. Slíkt
álag fer illa með líkamann til lengri
tíma litið. Það er því heldur ekki gott
að æfa of mikið. Þótt þú skítlúkkir á
meðan.
Sófadýrin sjá hreyfingu oft í þessu
ljósi. Hindrun, vaxarræktarformið
sem aldrei kemur. Ef þú vilt grenn-
ast taktu þá frekar til í ísskápnum.
Bumba er ekki afsökun til að hreyfa
sig ekki. Því staðreyndin er sú að hóf-
leg hreyfing er nóg til að kalla fram
heilsubætandi kosti hennar. Röskur
göngutúr á dag, hjóla í vinnuna eða
leika við börnin. Flókið?
Hvaða afsökun er þá eftir? Engin.
Finndu þér eitthvað skemmtilegt að
gera og hreyfðu þig.
Ásgeir Jónsson
- Heyrst hefur...28
hjá Þóru og gumm
a
Heyrst Hefur...
...að Hvíti riddarinn sé nú byrjaður
að hafa opið í hádeginu.
...að markvörðurinn Davíð svansson
hafi orðið þrítugur á dögunum.
...að team spinnigal sé að fá BMW
sem helsta styrktaraðila og breytist
jafnframt alfarið í konulið.
...að hrossakjötsveisla fari fram í
Harðarbóli 31. október og munu
m.a. Gísli einarsson og eyjólfur
Kristjánsson stíga á stokk.
...að vetrarfrí standi yfir í grunnskólum
bæjarins þessa vikuna.
...að konukvöld Lionsklúbbsins Úu
fari fram á Hvíta riddaranum
laugardaginn 7. nóvember.
...að svava Ýr íþróttakennari hafi orðið
fimmtug á dögunum.
...að Maggi thorlacius úr Vio hafi verið
að gefa út sitt fyrsta sólólag.
...að eldhúspartý fM957 hafi verið
haldið í Hlégarði í fyrsta sinn
á dögunum.
...að verið sé að blása lífi í körfuknatt-
leiksdeild Aftureldingar.
...að Heiða og Bragi hafi gift sig um
síðustu helgi.
...María Ólafs hafi verið að gefa út sitt
fyrsta lag eftir eurovision-ævintýrið.
Lagið nefnist someday.
...að Arnhildur organisti sé farin
í fella- og Hólakirkju.
...að Mosfellingarnir í IceWind séu að
gera góða hluti í sjóvarpsþáttunum
toppstöðinni á rÚV.
...að Gilli í rituhöfða hafi haldið
veglegt stórafmæli um síðustu helgi.
...að bókmenntahlaðborðið sívinsæla
verði haldið í Bókasafninu þriðju-
daginn 10. nóvember.
...að verið sé að græja stóran og
flottan glersal fyrir neðan safnaðar-
heimilið í Þverholtinu.
...að skítamórall spili á Halloweenballi
á Hvíta riddararnum laugardags-
kvöldið 31. október.
...að búið sé að ráða Keith reed sem
nýjan organista í Lágafellssókn.
...að Dúndurfréttir verði með
20 ára afmælistónleika í Hlégarði
föstudagskvöldið 6. nóvember.
...að nýja platan hans Kalla tomm
komi út í dag.
...að bruninn í skeljatanga hafi ekki
komið til vegna íkveikju heldur hafi
kviknað í út frá útiljósi.
...að leikur Gróttu og Aftureldingar í
handboltanum verði sýndur í beinni
á rúv á laugardaginn kl. 16.
...að bókin „ungmennafélagið Drengur
100 ára“ sé að koma út.
mosfellingur@mosfellingur.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltus lja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
í i: 586 0
www.mosfellingur.is
ný heimasíða
Jakob Hrannar fæddist 4. ágúst
2015. Hann var 51 cm 3345 g.
Foreldrar eru Jóna Magnea
Magnúsdóttir Hansen og
Snorri Karl Pálsson og býr
fjölskyldan í Dvergholti.