Mosfellingur - 15.01.2010, Page 4
Mosfellsbær, Sjóvá og Lögregla
höfuðborgarsvæðisins hafa hafi ð
samstarf um nágrannavörslu í Mos-
fellsbæ í samvinnu við íbúa. Fyrsta
gatan til að taka þátt í nágranna-
vörslu í Mosfellsbæ er Rituhöfði.
Nágrannavarsla hefur fyrir löngu
sannað sig sem mikilvægur hlekkur
í að fækka glæpum og þá sérstaklega
innbrotum á heimili, í bíla og al-
mennum þjófnaði á eigum fólks. Þar
sem nágrannavarsla er virk hefur
skemmdarverkum einnig fækkað og
dregið hefur úr veggjakroti.
Nágrannavarsla felst í samvinnu
nágranna um að gera umhverfi sitt
og heimili öruggari. Með því móti
er leitast við að draga úr innbrot-
um, þjófnaði og skemmdarverkum.
Nágrannavarsla hefur verið þekkt í
áratugi og hefur víða verið sett upp
með góðum árangri bæði á Íslandi
og víða erlendis.
Á myndinni má sjá samheldin
hóp íbúa í Rituhöfða taka við skilti
frá Mosfellsbæ til staðfestingar þess
að nágrannavarsla sé í götunni.
Það er Bryngeir Jónsson götustjóri
Rituhöfða sem tekur formlega við
skiltinu úr höndum Haraldar Sverr-
issonar bæjarstjóra.
- Fréttir úr bæjarlífi nu4
KIRKJUSTARFIÐ
17. janúar
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju
kl. 11.
Sr. Skírnir Garðarsson
24. janúar
TAIZE - Kvöldguðsþjónusta í
Lágafellskirkju kl. 20.
Sr. Skírnir Garðarsson
31. janúar
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju
kl. 11.
Sr. Skírnir Garðarsson
Sunnudagaskólinn
er í Lágafells kirkju
á sunnudögum kl. 13.
www.lagafellskirkja.is
www.lagafel lsk irkja. is
Helgihald næstu vikna
Hjúkrunarheimili
í Víðinesi lokar
Hjúkrunarheimilinu í Víði-
nesi verður lokað 1. september
samkvæmt ákvörðun félags-
og trygginga málaráðuneytis.
Heimilisfólk mun við lokunina
fl ytjast á nýtt hjúkrunarheimili á
Suðurlandsbraut sem stjórn-
völd byggja nú í samstarfi við
Reykjavíkurborg. Starfsfólk í
Víðinesi mun njóta forgangs í
störf á nýja hjúkrunarheimilinu.
Rúmlega 160 manns starfa á
heimilunum. Í Víðinesi eru tvær
deildir fyrir 38 heimilismenn.
Það var opnað eftir miklar endur-
bætur árið 1999.
Allar nánari upplýsingar um
helgihald og safnaðarstarfi ð
er hægt að nálgast á
heimsíðu sóknarinnar:
www.lagafellskirkja.is
laugardagskvöldið 23. janúar 2010
INGÓ OG
Forsalan er hafi n á N1 í Háholti
Upplýsingar varðandi borðapantanir í síma 692-4005 (Anna Ólöf)
Mosfellingar taka upp nágrannavörslu
Samvinna nágranna
Íbúar Rituhöfða hafa
gert samning um ná-
grannavörslu í götunni.
Kvenfélag Lágafellssóknar fagnar
þeim merkisviðburði nú um stundir
að hafa verið starfandi í heila öld.
Annan dag jóla árið 1909, kl. 12 á
hádegi var stofnfundur Kvenfélags
Kjalarneshrepps (síðar breytt í
Kvenfélag Lágafellssóknar) haldinn
á Völl um á Kjalarnesi, stofnend-
ur voru 11 konur. Fyrsti formaður
félagsins var Guðrún Jósefsdóttir frá
Völlum. Samþykkt var á fyrsta fundi
að félagið skyldi vinna að því að
styðja og styrkja fátæka.
Mosfellingar fyrr og nú hafa not-
ið góðs af öllu því góða starfi sem
kvenfélagið hefur innt af hendi og
má til sanns vegar færa að félagið
hafi lagt grunn að því samfélagi sem
við búum nú í. Það hélt út öfl ugu
starfi á sviði félagsþjón ustu, fræðslu
og menningar og var í raun, ásamt
ungmennafélaginu, kjölfestan í
félags lífi Mosfellinga fram eftir 20.
öldinni.
Mosfellsbær tók saman afmælisrit
í tilefni þessa merkisviðburðar sem
hægt er að skoða á www.mos.is
Eldri borgarar láta
gott af sér leiða
Þátttakendur í félagsstarfi eldri
borgara gáfu fyrir jólin ágóða
af sölu muna af jólabasar til
Líknarsjóðs Lága fellssóknar að
upphæð kr. 500.000. Úthlut-
un fjárins er í samvinnu við
Fjölskyldu svið Mosfellsbæj ar.
Að sögn félagsmálastjóra bæj-
arins, Unnar V. Ingólfsdóttur, má
merkja fjölgun þeirra sem eiga
erfi tt með að ná endum sam an
með t.d. aukinni eftirspurn
eftir fjárhagsaðstoð og því er
gjöf þessi kærkomin. „Þar sem
margir eldri borgarar muna
tímana tvenna, er það þeim
mikil ánægja að geta glatt þá
sem þurfa á hjálp að halda,”
segir Svanhildur Þorkelsdóttir,
umsjónarmaður Félagsstarfs
eldri borgara í Mosfellsbæ.
Stjórn kvenfélagsins: Frá
vinstri, Sigrún Sigurðardótt ir,
Ingimunda Loftsdóttir, Esther
B. Gunn arsdóttir og Aðal-
heiður Úlfsdóttir.
Haldið var upp á aldarafmæli kvenfélags Lágafellssóknar í Hlégarði
Kvenfélag Lágafellssóknar 100 ára
Mosfellsbær færði kvenfél-
aginu afmælisrit að gjöf sem
má skoða inn á www.mos.is