Mosfellingur - 01.12.2006, Síða 12
Kristinn Magnússon
fjallar um fornleifar í Mosfellsbæ
Í brekkunni suðaustan og austan
við húsnæði eldri deildar Varmár-
skóla eru rústir húsa sem tilheyrðu
Varmárbænum. Í örnefnalýsingu
segir: „... en bærinn stóð austan í
móti, í brekku, sem hallaði niður að
ánni, en hún heitir Varmá. Af þeirri
á dró bærinn nafn sitt.“ Heim ildir
greina að kirkja hafi verið að Varmá.
Elstu heimildirnar eru frá 1367.
Kirkjan var Péturskirkja, þ.e. hún
var helguð Pétri postula. Kirkjunnar
er getið í Vilchinsmáldaga frá árinu
1397 og eru þar m.a. taldar upp eigur
hennar. Viðeyjarklaustur eignaðist
kirkjuna árið 1395. Ekki er með vissu
vitað hvenær hún var afl ögð en talið
að það hafi verið á árabilinu 1553
– 1584. Í túni Varm ár bæjarins stóð
hóll sem talið var að geymdi rústir
kirkjunnar að Varmá. Á árunum fyrir
1970 voru uppi áform um byggingu
Gagnfræðaskóla Mosfellssveitar svo
nærri hólnum að ekki þótti víst að
hann mundi sleppa óskaddaður frá
þeim framkvæmdum.
Kirkjurústin grafi n upp
Árið 1968 var því ráðist í forn leifa-
uppgröft á staðnum. Sveinbjörn
Rafnsson stjórnaði uppgreftrinum
en honum til aðstoðar var Helgi H.
Jónsson. Sveinbjörn skrifaði grein í
Árbók hins íslenska fornleifafélags
1970 þar sem hann gerði grein fyrir
niðurstöðum rannsóknanna. Í hóln-
um fundust leifar þriggja húsa frá
mismunandi tímum. Efst var tóft
sem var um 3 metra löng og um 1,5
metra breið. Dyr voru á vesturgafl i.
Tóftin var nokkuð vel varðveitt og í
henni var hellugólf. Engar áreiðan-
legar vísbendingar fundust um til
hvers það hús sem þarna stóð hafði
verið notað. Líklegast þótti að að um
hafi verið að ræða ein hverskonar
útiskemmu eða kofa yfi r búpening.
Í tóftinni fannst m.a. eirhani með
skrúfu eða handfangi. Hanar af
þess ari gerð komu fram á síðmiðöld-
um og héldust lengi í notkun. Þeir
voru reknir í öltunnur þegar tappa
skyldi af þeim. Sveinbjörn Rafnsson
taldi að kofi nn hafi verið reistur ein-
hvern tíma á 19. öld. Undir þessari
tóft var önnur. Hún var byggð úr torfi
og grjóti. Í tóftinni voru þykkar gólf-
skánir og í norðvesturhorni tóftar -
inn ar fannst eldstæði. Þar fund ust
járngjalls molar sem rekja má til
járnsmíði. Ljóst þótti að hér hafði
staðið smiðja. Í smiðjunni fannst
fjöldi muna. Margir þeirra voru úr
eir, t.d. tappi sem talin er vera skrúfu-
ventill úr ölhana. Fimmtán rauðir
jaspissteinar lágu saman í hrúgu í
smiðjunni. Þar voru tilhöggnir stein-
ar sem virtust vera sleggjuhausar.
Nokkuð fannst af glerbrotum, bæði
úr rúðugleri og fl öskum og einnig
fundust allmörg brot af leirkerum
sem tímasett voru til 18. aldar. Í rúst-
inni fannst öskulag sem Sveinbjörn
Rafnsson leiddi líkur að að væri úr
Kötlugosi frá 1721. Staðsetningu
lagsins taldi hann sýna að smiðjan
hafi verið reist skömmu eftir árið
1721. Und ir smiðjutóftinni kom
þriðja tóftin í ljós. Voru þar komnar
leif ar kirkjunn ar sem eitt sinn stóð
að Varmá. Kirkjan hefur verið mjög
lítil, aðeins 5 x 3 metrar að innan-
máli eða 15 fermetrar. Undirstöður
veggjanna voru úr grjóti og mjög
vandaðar. Við austurgafl inn var u-
lög uð steinaröð sem myndaði kór
kirkjunnar. Kirkjan var gerð úr torfi
og grjóti. Að innan var hún senni-
lega þiljuð og með timburgólfi . Lík-
lega hefur verið upphækkun í kór
kirkjunnar og þrep upp á hana. Á
vesturhlið kirkjunnar hefur líkast til
verið timburstafn. Grafi r fundust við
norður- og suðurvegg kirkjunnar og
lágu þær eins og tóftin. Í kirkjutóft-
inni fundust m.a. tvær eirþynnur
sem haldið er saman af þremur
eirnöglum, eirhanki, sennilega eyra
af potti, brot af eggjárni, ljá eða sigð,
snældusnúður úr klébergi og græn-
leitt steinbrot sem í hefur verið rist-
ur hringur.
Eru rústir kirkju og kirkju-
garðs enn varðveittar?
Svo virðist sem enginn hafi leng-
ur vitneskju um nákvæma stað-
setningu kirkjurústarinnar, sem
grafi n var upp árið 1968. Rústin
var þó skilin eftir sem næst í sama
ástandi og komið var niður á hana
við uppgröftinn. Í áðurnefndri grein
Sveinbjarnar Rafnssonar seg ir:
„Skýrt skal þó tekið fram, að ekki var
allsstaðar grafi ð í botn á óhreyft und-
ir rústum þessum... Kom þar einkum
til, að við það hefði hin vandaða
steinhleðsla undir kirkj unni verið
gjöreyðilögð... Verði nú ekki skóla-
byggingin byggð beint ofan í tóft-
ina, er óhætt að hylja hana mold
og geyma þannig í jörð að mestu
óskemmda.“ Um 1980 fór fram forn-
leifaskráning í Mosfellssveit. Þá var
leitað að rústinni án árangurs. Um
þetta segir skársetjari: „Við byggingu
skólans, sem er þarna vestan við,
hefur verið ýtt fram mikilli möl og
mold, þann ig að nú er allhár bakki
vestan við rústirnar [þ.e. rústirnar
sem enn eru sýnilegar í brekkunni
upp af Varmá]. Líklega er kirkjan öll
eða að hluta komin undir þennan
bakka.“ Fróðlegt væri ef hægt reynd-
ist að fi nna kirkjutóftina að nýju.
Ef svæðið er ennþá lítt raskað eru
miklar líkur á kringum kirkjutóft-
ina sé órannsakaður kirkjugarður.
Í grein Sveinbjarnar er ekki sagt frá
því hvort bein fundust í gröfunum
sem lágu við langveggi kirkjunn ar.
Uppgröftur hans takmarkaðist að
mestu við rústirnar í hólnum. Í Ár-
bók hins íslenska fornleifafélags
1969 fer Þór Magnússon þáverandi
þjóðminjavörður nokkrum orðum
um rannsóknina. Hann segir m.a.:
„Umhverfi s [kirkjutóftina] mótaði
fyrir kringlóttum garði og á þremur
stöðum varð vart grafa, en vegna
smæðar garðsins hefur ekki verið
um að ræða nema tiltölulega fáar
grafi r í garðinum. Kirkjugarðurinn
sem slíkur var ekkert rannsakaður.“
Kristinn Magnússon
fornleifafræðingur
Sögukornið
Kirkjan að Varmá
Handverkshúsið
komið í jólabúning
Jólaandinn sveimar nú yfi r
Handverkshúsinu og úrval hand-
unna jólagjafa hefur aldrei verið
betra. Opnunartími hússins er nú
þannig að á þriðjudögum til föstu-
daga er opið frá kl. 15-20 og um
helgar frá kl. 14. Handverkshúsið
er sem fyrr í Háholti 24, í gamla
húsnæði Krónunnar.
Styrkur afhentur
Þann 1. nóvember var fundur
hjá Kiwanisklúbbnum Geysi. Á
fundinum var Björgunar sveitinni
Kili á Kjalarnesi afhentur styrkur
fyrir kaupum á nýjum Zodiac bát.
Forseti Kiwanisklúbbsins, Stein-
grímur Ólasson, afhenti Her-
manni Þorsteinssyni for manni
Kjalar, ávísun á fjölmennum
fundi. Í síðasta blaði Mosfell-
ings var ranglega farið með nafn
Kiwanisklúbbsins og er beðist
velvirðingar á því.
Jólagjafi r fyrir
fátæk börn
Börnin í frístundaheimilum
bæjarins tóku þátt í verkefninu
Jól í skókassa á vegum KFUK og
KFUM. Börnin söfnuðu jólagjöf-
um fyrir fátæk börn í Úkraníu.
Þetta framlag barnanna er
frábært og mun gleðja margt
barnið í Úkraníu.
Kirkjan að Varmá gæti
hafa litið svona út.
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar12
Frjálst og óháð bæjarblað
Mosfellingur kemur næst út 22. desember