Mosfellingur - 01.12.2006, Blaðsíða 24
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar24
Heyrst hefur...
...að Gummi á Drauma hafi
komist í hann krappann eftir
ryskingar og þurft að styðjast við
hækju í nokkra daga á eftir.
..að Mosfellsbær ætli að kaupa
hálkueyði af fótboltastrákunum.
Þá þarf ekkert að tengja heita
vatnið á nýja gervigrasvöllinn,
bara láta krakkana strá á völlinn í
upphafi æfingar.
...að Erla Víðis sé komin nokkra
mánuði á leið og farin að láta
verulega á sjá.
...að Óli Már komi fram á nýjasta
DVD disk Bubba Morthens 06.06.06
...að opna eigi verslun í gamla
Krónuhúsinu með lengri
opnunartíma en gengur og gerist.
...að nýi verslunarkjarninn gangi
undir nafninu Mosinn.
...að aldrei þessu vant hafi
verið léleg mæting á síðasta
Sálarballið í Hlégarði.
...að enginn Mosfellingur sé með
öruggt sæti á Alþingi fyrir næstu
kosningar og sé það í fyrsta
skipti í marga áratugi.
...að 13 réttir hafi komið upp
í tippleik Aftureldingar en
seðillinn hafi ekki verið sendur
inn til Íslenskra getrauna.
...að bæjarstjóri Pizzabæjar og
FastMos parið séu búin að
tryggja sér bestu lóðirnar í
Leirvogstungunni.
Sendið okkur slúður...
SMS í síma 694-6426
Í eldhúsinu
„Þetta var eitt það fyrsta
sem Binna eldaði handa
mér er við vorum að kynn-
ast og þessi réttur er hent-
ugur við allar aðstæður.
Hversdags með fjölskyld-
unni, rómantískur dinner
eða gestir í heimsókn.
Fljótlegur og mjög góður
réttur sem þarf lítið að hafa
fyrir, skella öllu í eldfast
mót og láta ofninn sjá um
restina. Leggja á borðið,
daðra við konuna eða sinna
gestunum, allt hægt meðan
rauðsprettan bakast.”
700 gr. rauðsprettufl ök
1 rauðlaukur
1 box sveppir
300 gr. hreinn rjómaostur
¼ líter hreinn appelsínusafi (trópí)
2 egg
salt og pipar
Hrísgrjón eða kartöfl ur
„Þegar rétturinn var fyrst búinn til var enn
framleiddur rjómaostur með appelsínu-
krókant, en núna er sósan búin til með
því að bræða saman hreinan rjómaost og
appelsínusafa. Tilvalið er að nota appel-
sínuþykkni, en reynið ekki að nota Svala,
er búin að prófa það. Mikilvægt að nota
glæný og fersk rauðsprettufl ök. Flökin eru
skorin í bita (með roðinu) og velt upp úr
eggjahræru með salti
og pipar. Léttsteikt á
pönnu og sett í smurt
eldfast mót. Sveppir
og rauðlaukur skorinn
niður, aðeins skellt
á pönnuna og sett
yfi r fi skinn. Osturinn
og appelsínusafi nn
bræddir saman í potti
og hellt yfi r rétt inn.
Sett í ofn við ca. 180°
í ca. 15-20 mínút ur.
Borið fram með hrísgrjónum
eða kartöfl um. Fyrir fjölskylduna mælum
við með kaldri mjólk með þessum rétti,
en ef rómantíkin er við völd er tilvalið að
opna fl ösku af Tokay Pinot Gris hvítvíni frá
Alsace.“
Rauðspretta í appelsínuostasósu
Binnu
og Magga
Árshátíð Bólsins var haldin í Hlégarði
með pompi og prakt fi mmtudaginn
16. nóvember. Húsið var troðfullt og
aldrei hefur verið jafn fjölmennt á
árshátíðinni, sem að sýnir okkur
Föstudaginn 10. nóvember opn aði
verslun Krónunnar í hinum nýja versl-
unarkjarna, Mosanum. Það voru þau
Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri
og Jón Helgi Guðmundsson stjórnar-
formaður Kaupáss sem opn uðu versl-
unina og klipptu á gulan Krónuborða.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar var á
staðnum og spilaði nokkur vel valin lög
fyrir viðskiptavini. Á laugardeginum
var síðan kerruhlaup til styrktar björg-
unarsveitar Kyndils. Í kerruhlaupinu
tóku nokkrir vel þekktir Mosfellingar
þátt og var keppninni lýst í beinni út-
sendingu á Bylgjunni. Keppendur
þutu um alla búð og fylltu kerrurnar af
vörum. Síðan var farið í gegnum allar
kerr urnar og heildarupphæð þeirra
var gefi n Kyndli í styrk. Krónan gerði
gott betur og tvöfaldaði upphæðina
og því endaði styrkur Kyndilsmanna í
tæpri milljón króna.
Ný verslun Krónunnar