Litli Bergþór - 01.12.2015, Síða 26
26 Litli-Bergþór
Minningasjóði Biskupstungna. Er áætlaður kostnaður
við hana um tvær og hálf milljón króna og er búið að
afla vilyrða fyrir þeirri upphæð allri.
Þrír vegarspottar voru lagfærðir og malbikaðir í
sumar. Var það fyrir neðan Spóastaði þar sem lengi
hefur verið hvimleið mishæð í veginum, spottinn frá
Iðubrú út hlíðarfótinn og frá vegamótunum við Múla
að Geysi.
Í Bændablaðinu þann 19. nóv. mærir ráðunauturinn
Jón Viðar Jónmundsson BS-ritgerð Jóns Hjalta
Eiríkssonar frá Gýgjarhólskoti sem nefnist Tengsl
kjötmats og ómmælinga, bætt kynbótamat og
erfðaframfarir. Telur Jón Viðar ritgerðina í flokki allra
bestu ritsmíða í íslenskum landbúnaðarrannsóknum
frá upphafi vega og að hún hefði án vafa staðist mun
æðri prófgráður við flesta erlenda háskóla ef því hefði
verið að skipta.
Íbúar í Bláskógabyggð verða
bráðum aftur orðnir 1000 að tölu
eftir að hafa fækkað mikið eftir
hrunið 2008. Sveitarfélagið er nú í
fjórða sæti yfir sveitarfélög þegar lagt
er mat á hvar best er að búa miðað við
rekstrarstöðu.
Bjarnabúð varð 30 ára í ár og var fólki
boðið upp á kaffi, súkkulaði og kökur í
tilefni þess þann 12. desember.
Af sveitarstjórnarmálum:
Til stendur að byggja við fræðslumiðstöðina
við Hakið á Þingvöllum. Gert er ráð fyrir
allt að 900 fm viðbyggingu á einni hæð.
Verið er að skoða lagfæringar á húsnæði íþrótta-
miðstöðvarinnar og hönnun á nýrri sundlaug og
sundlaugarsvæðinu í Reykholti. Arkitektar Hjördís
& Dennis voru fengin í verkið og þau kynntu síðan
hugmyndir sínar á fundi sveitarstjórnar í byrjun
september. Þá var skipaður vinnuhópur til að fara yfir
þessar hugmyndir og skal hópurinn skila tillögum til
sveitarstjórnar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar
2016 – 2019.
Sveitarstjórn hefur auglýst nokkrar byggingarlóðir
fyrir íbúðarhúsnæði lausar til umsóknar: Flestar eru
þær við Miðholt í Reykholti eða 13 lóðir. Ein lóð er
við Lindarbraut á Laugarvatni og ein við Vesturbyggð
í Laugarási. Þá voru einnig auglýstar garðyrkjulóðir
við Ferjuveg í Laugarási.
Tvær umsóknir um lögbýlisrétt voru afgreiddar frá
sveitarstjórn: Það voru þau Erlendur Hjaltason sem
fékk leyfi til að breyta nafni Höfða 2 í Höfða II og skrá
það sem lögbýli og Fríður E. Pétursdóttur sem fékk
leyfi fyrir lögbýli á garðyrkjulóðinni Laugargerði.
Samið var við Jón Þormar Pálsson og Eyjólf Óla
Jónsson um minkaveiðar í Biskupstungum.
Samningur var gerður við sjónvarpsstöðina N4 um að
halda áfram gerð þáttanna „Að sunnan“ sem sýndir
eru á sjónvarpsstöðinni.
Við verðum að
standa okkur betur í
bólinu ef við ætlum að
ná toppnum!
Það er ekki
að spyrja að þeim
fyrir sunnan. Þeir
þurfa allt að gleypa.
Vonandi stendur
þessi biti í þeim.
Sveitarfélagið hefur samið við Tónsmiðju Suðurlands
um að greiða með allt að þrem nemendagildum vegna
tónlistarnáms nemenda þar.
Vegagerðinni var veitt framkvæmdaleyfi í byrjun
september fyrir áframhaldandi lagfæringum á
Kjalvegi. Um er að ræða endurbætur á 2,9 km kafla
sem byrjar norðan Hvítár, frá enda þess kafla sem
lokið var við 2014 og endar við Árbúðir.
Mikil fjölgun hefur orðið á útleigu lítilla bíla sem
hægt er að sofa í. Þeim er iðulega lagt utan vega
þar sem alla hreinlætisaðstöðu vantar og veldur þetta
nú þegar vandræðum vegna óþrifnaðar sem af þessu
stafar. Byggðaráð Bláskógabyggðar gerði athugasemd
við frumvarp til laga um náttúruvernd vegna þessa
og vilja þau að leitað verði lausnar á þessum vanda í
væntanlegu frumvarpi.
Sveitarstjórn hefur veitt leyfi til gerðar fjalla-
hjólabrautar í landi Skógræktarinnar ofan þjóð-
vegar við Laugarvatn. Fyrirhugað er að brautin liggi
frá gömlu skíðalyftunni og endi ofan við núverandi
skógarstíg við innkeyrsluna að tjaldsvæðinu. Leyfið er
háð samþykki landeiganda.
Sveitarstjórn hefur samþykkt að veita tímabundinn
50% afslátt af gatnagerðargjöldum skv. gjaldskrá
til 1. júní 2016, fyrir lóðir sem liggja að gatnakerfi
þéttbýla í Bláskógabyggð.
Innanríkisráðuneytið sendi fyrirspurn til Bláskóga-
byggðar um hvort sveitarfélagið vildi taka á móti
flóttamönnum. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
telur sér það ekki fært á þessu stigi vegna skorts á
stoðþjónustu, aðstöðu og faglegri sér-
þekkingu á málefnum flóttafólks.
Í sumar kom út skýrsla um stöðu
íþrótta- og heilsufræðináms á
Laugarvatni og var í henni öll
tormerki talin á að það borgaði sig
að halda úti þessu námi á þessum
stað. Ekki eru allir sammála þessari
skýrslu og hefur sveitarstjórn
Bláskógabyggðar lýst yfir áhyggjum
af hugmyndum um flutning námsins
til Reykjavíkur. Hvetur hún rektor
Háskóla Íslands og háskólaráð
að halda starfseminni áfram á
Laugarvatni, enda sé háskólastarf einn
af hornsteinum og grunnstoð undir
vöxt og eflingu landsbyggðarinnar.
Afkoma sveitarsjóðs batnar sem
nemur kr. 671.000 fyrir rekstrarárið
2015. Samþykkt var að útsvarshlutfall