Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 8
8 26. október 2018FRÉTTIR
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
Frisland Classic
SAKA NUDDARA ÍSLENSKU
STJARNANNA UM KYNFERÐISOFBELDI
J
óhannes Tryggvi Sveinbjörns-
son hefur verið kærður til lög-
reglu fyrir kynferðisbrot af
minnst þremur konum. Þá
hafa yfir tuttugu konur leitað til Sig-
rúnar Jóhannsdóttur lögmanns og
saka Jóhannes um kynferðisbrot.
Jóhannes rekur fyrirtækið Postura
sem sérhæfir sig í meðhöndlun á
slæmri líkamsstöðu og lagfæringar
á verkjum í stoðkerfi. Jóhannes er
afar vinsæll, bæði hjá almenningi
og eins fræga fólkinu. Samkvæmt
heimildum DV hefur Jóhannes í
þrígang verið kærður áður og sak-
aður um kynferðisbrot enn öll þau
mál voru látin niður falla. Aldrei
hefur eins stórt mál sem inniheldur
jafn alvarlegar ásakanir komið upp
í þessum geira fyrr. Nýju kærurnar
og meint brot eiga hafa verið framin
þegar konurnar voru í meðferð hjá
Jóhannesi.
DV skoðaði málið
Fyrir rúmu ári ræddu blaðamenn
DV við þrjár konur sem sökuðu Jó-
hannes um kynferðisbrot. Án þess
að farið verður í saumana á því
hér taldi ritstjórn rétt að bíða með
þá frétt og fylgjast með framvindu
málsins. Fréttablaðið hóf svo að
fjalla um Jóhannes í síðustu viku án
þess að greina frá nafni hans. Þar
kom fram að eftir fyrstu frétt Frétta-
blaðsins stigu sjö konur til viðbótar
fram og sökuðu hinn fræga sjúkra-
nuddara um kynferðisofbeldi. Þá
var rætt við Björn Leifsson eiganda
World Class sem lét Jóhanes fara
eftir aðeins um viku í starfi við að
hnykkja og meðhöndla viðskipta-
vini. Konráð Valur Gíslason, einka-
þjálfari hjá World Class, sagði:
„Þetta kom upp þegar ung
stúlka, um 16-17 ára, var í meðferð
hjá honum þegar hann starfaði hjá
World Class. Eftir meðferðina sagði
hún kærasta sínum frá sem hringdi
hingað inn og kvartaði yfir mann-
inum,“ segir Konráð. „Ég vissi af
þremur konum í þjálfun hjá mér
sem höfðu farið til hans og lent í
einhverju misjöfnu.“
Sigrún Jóhannsdóttir réttar-
gæslumaður kvennanna sagði í
samtali við Fréttablaðið: „Til mín
hafa nú leitað alls sautján konur. Sjö
þeirra hafa nú þegar mætt í skýrslu-
töku hjá lögreglunni og þrjár hafa
beðið þess að gefa skýrslu síðan í
apríl. Nokkrar eru að meta stöðu
sína,“ sagði Sigrún Jóhannsdótt-
ir, lögmaður og réttargæslumað-
ur kvennanna, í samtali við Frétta-
blaðið í síðustu viku.
Sigrún segir í samtali við DV að
wwnú hafi yfir 20 konur leitað til
hennar. Kærurnar eru minnst þrjár
en samkvæmt heimildum DV eru
fjórar kærur á borði lögreglu. Þá
hefur Jóhannes verið kærður áður
en þau mál fóru ekki fyrir dóm. Sig-
rún segir í samtali við DV:
„Þær eru fleiri, ég er að tala við
fleiri konur á hverjum degi sem
lýsa því hvernig hann braut á þeim.
Ég er ekki búin að taka það saman
hvað þær eru margar, þær eru orðn-
ar fleiri en tuttugu, en ég hef síðan
heyrt um fleiri konur.“
Hvað eru margar búnar að kæra
til lögreglu?
„Það er svo stutt síðan þetta fór
af stað, þetta tekur allt sinn tíma,
það eru nokkrar sem eru búnar að
fá tíma í skýrslutöku.“
Jóhannes steinhissa á konunum
Steinbergur Finnbogason, lög-
maður Jóhannesar, segir í sam-
tali við DV að skjólstæðingur sinn
hafi komið af fjöllum þegar hann
heyrði af þessu. „Þetta er um margt
sérstakt mál og auðvitað ber þar
hæst að bakgrunnur þess virðist
í raun auglýsing að undirlagi lög-
manns kvennanna eftir hugsanleg-
um skjólstæðingum og um leið við-
skiptavinum. Það er sem sagt verið
að safna liði til höfuðs einum til-
teknum einstaklingi. Í öðru lagi eru
engar staðfestingar komnar fyrir því
að 17 konur hafi svarað auglýsingu
lögmannsins enda þótt hann hafi
kosið að upplýsa um þann fjölda í
fjölmiðlum. Sjálfum er mér kunn-
ugt um þrjár konur sem telja að á
sér hafi verið brotið eða að minnsta
kosti upplifað óþægt andrúmsloft
og um leið tilfinningu í meðhöndl-
uninni.“
Sigrúnu var orða vant þegar
blaðamaður spurði hana hvort það
gæti verið að hún sé að safna liði
gegn Jóhannesi. „Ég hafna því al-
farið. Mikill er máttur lögmanns að
geta safnað saman hópi kvenna til
að koma fram með svona ásakanir.
Það er fráleitt. Svona orð dæma sig
sjálf,“ segir Sigrún.
Allir í bransanum heyrt um
Jóhannes
Jóhannes er ekki meðlimur í
osteópatafélagi Íslands, Sjúkra-
nuddarafélagi Íslands eða
Kírópraktorafélagi Íslands. Öll þessi
félög segjast hafa heyrt af honum
sögur og sverja hann af sér.
„Þessi félög finna sig knúin til
að tjá sig um málið og verja sína fé-
lagsmeðlimi. Meðlimir innan allra
félaganna hafa heyrt fjöldann allan
af sögum frá skjólstæðingum sín-
um um óeðlilega starfshætti frá
þessum manni. Við höfum fengið
til okkar fólk sem hafa leitað álits
um það hvort aðferðir sem hann
beitir þyki eðlilegar. Við fordæm-
um svona starfsaðferðir,“ segir í yf-
irlýsingu frá Osteópatafélaginu og
Sjúkranuddarafélaginu. Egill Þor-
steinsson, formaður Kírópraktora-
félags Íslands, vildi ekki ræða málið
við blaðamann DV og vísaði í um-
mæli sín í Fréttablaðinu um að Jó-
hannes tengdist stétt kírópraktora
ekki á neinn hátt.
Haraldur Magnússon, formað-
ur Ostreópatafélags Íslands, sagði í
samtali við DV að allir í bransanum
hefðu heyrt um hann. „Ég held að
hver einasti meðhöndlari hafi heyrt
sögur af honum,“ segir Haraldur.
„Þar sem hann er ekki okkar félags-
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is