Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 16
16 SPORT 26. október 2018 BAÐHERBERGIS- Þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum styrkur - ending - gæði HÁGÆða DaNSKar Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is iNNrÉttiNGar Opið: Mán. til föstudaga kl. 09 til 18 Laugardaga kl. 11 til 15 Gat ekki hlaupið fyrir HM og gat varla hlaupið að móti loknu n Aron Einar færði fórnir fyrir íslenska landsliðið n Hefur náð bata og er bjartsýnn á komandi tíma Á hugafólk um íþróttir fagn- aði vel um síðustu helgi þegar fyrirliði karlalands- liðsins í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, snéri aftur á knattspyrnu- völlinn. Endur- koma sem margir höfðu beðið eft- ir og þessi þjóð- hetja frá Akur- eyri hafði ekki spilað fót- bolta í 116 daga þegar hann byrj- aði í sigri Cardiff á Fulham í ensku úrvals- deildinni. Aron hafði ekkert spilað síðan Ís- land féll úr leik á HM í Rússlandi gegn Króat- íu. Síðan þá hefur gangan verið löng, erfið á köflum en meiðslin má rekja til þess að Aron Einar tók sénsa með líkama sinn fyr- ir íslenska þjóð, til að geta leitt liðið út á völlinn í Rússlandi. ,,Það segir sig sjálft að það var mjög ljúft að snúa aftur. Þetta hefur verið langur að- dragandi og erfitt að horfa af hliðarlínunni, það er samt alltaf jafn sætt þegar maður kem- ur aftur, líka miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Þetta var gam- an,“ sagði Aron þegar fréttamaður ræddi við hann í vikunni, hann var þá á leið heim af æfingu. Borga fyrir að fara á HM Aron var meiddur í aðdraganda Heimsmeistaramótsins og þurfti að leggja mikið á sig til að ná mótinu, hann fór í aðgerð á hné og ökkla skömmu fyrir mót en náði bata. Hann þurfti að borga fyrir það eftir mótið. ,,Þetta er bara í rauninni hnéð sem hefur angrað mig, það hefur verið að koma vökvi í það eftir æf- ingar. Það er aðallega það sem hef- ur verið að stríða mér aðeins, sér- staklega eftir sumarfríið. Að koma til baka á undirbúningstímabili eftir að hafa ekkert gert í tvær vik- ur, þá var hnéð ekki alveg nógu ánægt með mann. Það er ekki að bregðast eins mikið við æfingum í dag, eins og það gerði, Ég fór til Katar í viku á dögunum og þar var ég bara að byggja upp vöðvamassa í kringum þetta. Fá styrkinn í kringum þetta allt aftur.“ Aron segist hafa tekið sénsa með því að keyra allt í botn fyrir HM, hann hafi hins vegar ekki get- að vitað að líkaminn myndi svara svona. ,,Það var vitað fyrir fram, ég vissi ekki hvernig þetta myndi fara. Ég var að borga fyrir það núna, ég fór of snemma af stað. Ef ég myndi lenda í þessari stöðu aftur, þá myndi ég gera alveg það sama. Að spila á HM hafði verið draum- ur, ég setti auka pressu á líkamann á þeim tímapunkti. Ég gat ekki vit- að hvernig líkaminn tæki því eftir mót, ég er að komast í gegnum það og er jákvæður á framhaldið. Ég er ekkert sloppinn, ég þarf að hugsa um hnéð og einbeita mér að því að endurheimta eftir leiki.“ Gat ekki hlaupið skömmu fyrir HM Í huga Arons stóð það aldrei tæpt að hann myndi leika á HM, þrátt fyrir að hafa varla geta hlaup- ið skömmu fyrir mót. ,,Það kom aldrei til greina að sleppa HM, það komu samt augnablik þar sem ég var efins. Það voru tímar í undirbúningnum fyrir mót þar sem ég gat bara ekki hlaupið. Að fara á HM og geta ekki hlaupið er smá vesen. Ég náði að koma mér í gegnum það á hausnum, ég var búinn að segja sjálfum mér það að ég myndi spila í gegnum sársauk- ann og taka svo á því seinna. Á HM fann ég ekkert mikið fyrir þessu en undirbúningurinn var erfiður. Hann reyndi á.“ Cardiff gaf Aroni góðan tíma eftir sumarið til að jafna sig, hann ætlaði að ná sér alveg góðum. ,,Það var alveg planið, Cardiff var með mér í þeirri ákvörðunartöku. Ég reyndi aðeins að koma til baka á æfingar en ég var ekki klár í það á þeim tímapunkti. Þetta var húll- umhæ, hvort ég ætti að spila eða hvað. Þjálfarinn sagði í viðtölum það sem hann sá á æfingum en svo eftir þær þá var ég ekki nógu góður. Það var gott að taka sér tíma og reyna að halda sér heilum út tímabilið, frekar en að koma til baka og fara út aftur eftir tvo leiki.“ Leikmannahópur Cardiff er sterkur andlega Cardiff var að vinna sinn fyrsta sigur um liðna helgi, þegar Aron snéri aftur. Liðið er með fimm stig eftir níu umferðir og vitað er að veturinn verður erfiður. ,,Það er mikilvægt fyrir sjálfstraustið, það er það góða við þetta samt, þetta er þannig hópur. Þetta er góð- ur leikmannahópur, við þekkjum okkar gæði og takmörk. Við þurf- um að hafa fyrir hlutunum, við gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta verður erfitt tímabil. Byrj- unin er ekkert að hjálpa okkur en við höfum verið að mæta mörgum sterkum liðum, það er góðs viti að hafa klárað þá leiki. Það var gott að vinna Fulham, við þurfum að taka stigin af liðunum í kringum okkur. Þessi deild skiptist í tvær deildir, fyrir neðan og ofan miðju, það er mikilvægt að ná punktum á móti liðunum í kringum okkur, reyna svo að stríða liðunum fyrir ofan okkur. Það er erfiður leikur við Liverpool næst, það má segja að það verði 90 mínútna eltingaleik- ur. Maður er í þessari deild til að kljást við stærstu liðin.“ Erfitt að horfa á landsliðið ströggla Aron hefur misst af fjórum lands- leikjum eftir HM, þar sem hann hefur verið meiddur. Liðið fékk vonda skelli og umræðan hefur breyst fljótt. Talað er um krísu hjá landsliðinu, nokkrum mánuðum eftir að liðið komst á HM. ,,Þetta hefur verið mjög erfitt, þegar ég hef verið meiddur þá hef ég far- ið og hitt hópinn. Að vera heima og vera ekki partur af hópnum og stemmingunni í kringum það, það hefur verið erfitt. Sérstaklega í fyrstu tveimur leikjunum gegn Sviss og Belgíu, að sjá félagana í veseni var erfitt. Mér leið eins og ég ætti að vera þarna með þeim og ströggla og reyna að hjálpa til, fá drullið yfir sig. Vera með og taka ábyrgð, það var erfitt að taka því. Síðustu tveir leikir voru flottir og menn sá hvernig voru að bregð- ast við. Við fengum Jóhann Berg og Alfreð aftur inn, fleiri leikmenn með mikla reynslu. Það var mikil- vægt upp á sjálfstraustið.“ ,,Það er hluti af þessu að hlusta á slæmu umræðuna líka, við tök- um því eins og menn. Við kvörtum yfir þessu okkar á milli og ætlum að sýna okkur og sanna aftur. Það er búið að afskrifa okkur, það er líka alveg ágætt. Við höfum alltaf eitt- hvað að sanna og bæta, við erum enn að bæta okkur. Með nýjum þjálfara, Erik Hamren, koma nýj- ar áherslur. Við eigum nokkur góð ár eftir til að halda áfram á sömu braut. Menn eru ekki saddir þrátt fyrir að það séu búin tvö stórmót í röð, maður hefur tekið eftir slíkri umræðu. Það er gaman að vera á stórmóti og menn vilja þangað aft- ur. Það er hugur í mönnum.“ n ,,Ef ég myndi lenda í þessari stöðu aftur, þá myndi ég gera alveg það sama. Að spila á HM hafði verið draumur. Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.