Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 28
28 FERÐALÖG 26. október 2018 HALLGRIMUR HELGASON. SEXTIU KILO af SLSKINI. H A LLG RIM UR H ELGA SO N. SEX T IU K ILO af S LSK INI. 1 HEILDARLISTI 17.-24. október Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Mæla með ferðalögum til Sri Lanka, Simbabwe og Belís n Árlegur listi Lonely Planet um spennandi áfangastaði n Þýskaland líklegt til vinsælda Sri Lanka Eftir að rúmlega tveggja áratuga borgarstyrjöld lauk í Sri Lanka í maí 2009 hefur landið smátt og smátt opnast fyrir ferðalöngum. Þar er ótrúlegur suðupunktur menningar auk þess sem náttúr- an og dýralífið er engu líkt. Þá eru helstu baðstrandir Sri Lanka tald- ar afar fallegar og landið er sagt vera paradís fyrir þá sem stunda brimbretti. Þýskaland Þjóðverjar hafa löngum verið þekkt- ir fyrir að vera agaðir og skilvirkir, sérstaklega þegar kemur að hvers- konar framkvæmdum. Undantekn- ingin sem sannar þá reglu er upp- bygging alþjóðaflugvallar í Berlín sem enginn getur kynnt sér ógrát- andi. En hvað sem því líður þá eru Þjóðverjar höfðingjar heim að sækja og þar er margt að sjá og skoða. Þá eru þeir miklir áhugamenn um bjórdrykkju og pylsuát. Simbabwe Simbabwe hefur iðulega ratað í heimsfréttirnir fyrir spillingu og óðaverðbólgu en það gleymist gjarnan að landið er eitt hið ör- uggasta fyrir ferðalanga í Afríku. Náttúran þar er stórbrotin, ekki síst hinir mögnuðu Viktoríufossar. Þá eru heimamenn víst einstak- lega gestrisnir. Panama Það eru ekki bara íslenskir áhuga- menn um bókhaldstrikk sem hafa áhuga á Panama. Heimsbyggð- in öll þráir að ferðast þangað. Hvítar strandir, magnaðir regn- skógar og margbrotin menning er meðal annars það sem er í boði í Panama. Þá geta áhugamenn um fraktflutninga horft á skip sigla um Panamaskurðinn dögum saman. Árið 2019 eru stórbrotin hátíða- höld á döfinni í landinu sem mun fagna 500 ára sögu sinni með alls- herjarveisluhöldum. Kyrgystan Kyrgystanar hafa gert byltingu í samgöngumálum í landi sínu og ferðalangar eru farnir að átta sig á að landið býður upp á ótrúlega ósnortna náttúru. Landið er perla sem er ekki lengur falin. Jórdanía Jórdanía hefur uppá margt að bjóða, ótrúlegt eyðimerkurlands- lag Wadi Rum, eitt af sjö undr- um veraldar í Petru, stórborgina skemmtilegu Amman, einstaka gestrisni heimamanna og humm- us eins og hver getur í sig látið. Indónesía Indónesía er samansett af rúm- lega 17 þúsund eyjum og því segir sig nánast sjálft að allir geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi í þeirri paradís. Þá hafa stjórnvöld fjár- fest gríðarlega í innviðum lands- ins til þess að auðvelda íbúum, sem og ferðamönnum, að ferðast um landið. Þá er nú ríkisborgur- um 169 þjóðlanda heimilt að ferð- ast til landsins án þess að sækja fyrirfram um vegabréfsáritun. Hvíta-Rússland Hvíta-Rússland er falin perla í Evrópu og þar er margt að sjá og skoða. Höfuðborgin Minsk skartar fallegum gömlum bæ, þar eru líf- leg kaffihús og listasöfn auk þess sem sú upplifun að skella sér út á næturlífið er víst eins og að stíga upp í tímavél og ferðast til ársins 1999. Saó Tóme og Principe Þetta afríska lýðveldið, sem sam- anstendur af tveimur eyjum utan stranda Gabon, er tekið sem dæmi um stað sem er algjör paradís en fáir heimsækja. Það gæti verið að breytast. Ótrúlegt landslag, fal- legar strandir og spennandi frum- skógar. Belís Mið-Ameríkuríkið státar af næst stærsta kóralrifi heims innan sinn- ar landhelgi auk þess sem landið er þekkt fyrir ótrúleg hellakerfi sem vert er að skoða. Þrátt fyr- ir það hafa ferðamenn ekki veitt landinu sérstaka athygli en starfs- menn Lonely Planet telja að það muni breytast á næsta ári. n Borgir sem Lonely Planet mælir með að ferðalangar heimsæki: 1. Kaupmannahöfn, Danmörk 2. Shenzhen, Kína 3. Novi Sad, Serbía 4. Miami, Bandaríkin 5. Kathmandu, Nepal 6. Mexíkóborg, Mexíkó 7. Dakar, Senegal 8. Seattle, USA 9. Zadar, Króatía 10. Meknes, Morokkó F erðafíklar eru alltaf spennt- ir þegar ferðabókafyrirtækið heimsfræga, Lonely Planet, birtir árlega lista sína yfir bestu áfangastaði næsta árs, bæði lönd og borgir. Sri Lanka varð fyr- ir valinu sem það land sem ferða- langar ættu helst að renna hýru auga til og systurborg okkar, Kaup- mannahöfn, varð fyrir valinu sem mest spennandi borgin. Senni- lega eru ólíkari staðir vandfundir og þannig eru líka listarnir, blanda af áfangastöðum sem Íslendingar þekkja vel og síðan afar framandi slóðir. Topp 10 löndin sem Lonely Planet mælir með árið 2019: Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Viktoríufossar eru ótrúlegt náttúruundur. Panamaborg er lífleg og skemmtileg. Petra í Jórdaníu er eitt af sjö undrum veraldar. Afríkuríkið Saó Tóme og Principe er falin paradís. Indónesía er einn af heitustu áfanga- stöðum næsta árs. Berlín er frábær borg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.