Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 29
26. október 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Öryggi
IPT er verslun og þjón-ustuaðili sem býður upp á afar fjölbreyttar og
spennandi lausnir í öryggis-
málum og eftirlitsbúnaði.
Kappkostar fyrirtækið að
bjóða reglulega upp á það
nýjasta og besta í þess-
um bransa. Snjallbúnaður
hefur rutt sér mjög til rúms
á þessu sviði og IPT býð-
ur upp á framúrskarandi
snjalllausnir fyrir bæði
heimili og fyrirtæki. Með-
al annas býður IPT upp
á dyrasíma, myndavél-
ar, innbrotsviðvörun og
brunavörn fyrir heimili. Þá
vinnur fyrirtækið mikið fyrir
hótel og býður þeim upp á
aðgangskerfi, myndavélar,
innbrotsviðvörun og bruna-
vörn. Þess má geta að IPT
setti upp allan öryggisbún-
að í Hörpu.
Kjartan Scheving, fram-
kvæmdastjóri IPT, segir
okkur frá þremur áhuga-
verðum vörum hjá fyrir-
tækinu en upplýsingar um
aðrar vörur er að finna á
vefnum ipt.is. Við gefum
Kjartani orðið:
„Comelit er ítalskt há-
tæknifyrirtæki sem fram-
leiðir dyrasíma fyrir heimili,
bæði einbýlishús og fjölbýli,
stofnað árið 1956. Hjá
Comelit er mikið er lagt
upp úr hönnun og mjúkum
línum, og í boði eru margar
gerðir af kerfum, bæði hlið-
rænum og stafrænum, og
bæði myndkerfi og talkerfi.
Hægt að setja upp kerfi
með bæði bjölluhnappi fyrir
hverja íbúð og lyklaborði
þar sem valið er númer
íbúðar.
Hægt er að hafa mynda-
vélar tengdar kerfunum,
t.d. í sameign eða í einbýl-
ishúsum, og getur fólk haft
myndavélar við hús ásamt
nándarlestri til að opna
dyr. Kerfin geta verið tengd
nánast hvaða hlut sem er
með út- eða inngangsein-
ingum sem gerir það að
verkum að hægt er að að-
laga kerfin að notendum.“
Kerfinu raðað saman eftir
stærð hússins
Næst segir Kjartan okk-
ur frá IKALL-kerfinu sem
hentar jafnt fyrir einbýl-
ishús sem mjög stór fjölbýli:
„IKALL-kerfið er kerfi
sem hentar öllu frá einbýli
til hundraða íbúða. Kerfið
er sett saman úr eining-
um þannig að því er raðað
saman eftir stærð hússins.
Það hentar einstaklega vel
þegar skipta þarf út göml-
um kerfum með lágmarks
fyrirhöfn. Með IKALL ertu
líka kominn með kerfi sem
hefur marga viðbótar-
möguleika, til dæmis auka-
myndavélar, og þú getur
látið kerfið elta þig. Hægt
er að sérsníða möguleikana
fyrir hverja og eina íbúð
og því getur þú valið aðra
möguleika fyrir þig en ná-
granni þinn.
Ikall er 2 víra kerfi sem
vinnur á gömlum lögnum
frá gamla kerfinu. Þú getur
haft öryggiskerfi heimilis-
ins og dyrasímann í einum
pakka.“
Dyrasími + app
Kjartan segir okkur loks
frá Visto, nýjustu afurðinni
frá hinum rómaða, ítalska
framleiðanda, Comelit:
„Visto er nýjasta afurð
Comelit: Dyrasími sem
vinnur eingöngu með appi
og hægt er að hafa bæði
inni- og útimyndavélar
tengdar við appið. Þetta er
dyrasími sem veit hvar þú
ert og með appi getur hann
haft samband við þig, hvar
sem þú ert.“
Þess má geta að IPT er
með afar góðan afslátt hjá
Comelit næstu mánuði og
færir þann afslátt beint til
viðskiptavina sem geta því
fengið hágæða vörur frá
Comelit á sérlega góðum
kjörum.
Sjá nánar á ipt.is. IPT
er til húsa að Skútuvogi 1
G, Reykjavík. Leitið tilboða
eða komið með fyrirspurnir
í síma 763-8831 eða með
tölvupósti á netfangið ipt@
ipt.is.
IPT:
Snjallar lausnir fyrir heimili
og fyrirtæki