Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 45
Öryggi 26. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Umræðan um smokkanotkun er enn allt of mikið tabú og því miður hefur kynsjúkdómatil- fellum fjölgað mjög mikið hér á landi undanfarin ár. Við erum til dæmis með einn mesta fjölda klamidíu-smits í heiminum og kynsjúkdómar sem voru nánast horfnir eru farnir að stinga upp kollinum aftur, til dæmis sárasótt. Of lítil smokkanotkun er stór orsakavald- ur hér,“ segir Jón Guðmundsson hjá innflutningsfyrirtækinu Nordica ehf. sem flytur inn hina byltingarkenndu SKYN-smokka. SKYN-smokkarnir komu á markað í ágúst hér á landi og margir vilja meina að með tilkomu þeirra sé skrifað- ur nýr kafli í sögu kynsjúkdóma- og þungunarvarna: „Sagt hefur verið að SKYN sé ein mesta bylting á smokka- markaði síðan smokkurinn var upp- götvaður, þar sem efnablandan sem var þróuð í þennan smokk líkist húð og maður finnur vart fyrir því að smokk- urinn sé til staðar. Þeir sem áður hefur þótt óþægilegt að nota smokk munu ekki upplifa það með SKYN,“ segir Jón. Latex-ofnæmi: Afar óþægilegt og upp í að vera lífshættulegt Annar afar mikilvægur eiginleiki SKYN-smokkanna er sá að þeir eru latex-fríir. Afar lítið er um latex-fría smokka á markaðnum. „Latex-ofnæmi er orðið miklu útbreiddara vandamál en áður þekktist en orsökin kann að vera aukin greining á því. Bæði karlar og konur geta verið með latex-of- næmi sem gerir þeim ókleift að nota latex-smokka. Ég þekki dæmi um konu sem hélt að hún væri að fá þvagfæra- sýkingar eftir hvert skipti sem hún stundaði kynlíf og var alltaf á sýkla- lyfjum. Svo kom í ljós að erting vegna snertingar við latex kallaði fram þessi ofnæmisviðbrögð,“ segir Jón. Í grein á vef Astma- og ofnæm- issamtakanna kemur fram að latex- -ofnæmi sé tvíþætt, annars vegar snertiofnæmi sem er hvimleitt og hins vegar bráðaofnæmi sem getur verið lífshættulegt. Af þessum ástæðum eru viðbragðsaðilar á borð við sjúkra- flutningafólk og lækna hættir að nota latex-hanska við störf sín. Gamlar smokkakvartanir hverfa „Við bjóðum upp á fjórar gerðir af latex-fríum smokkum og verksmiðj- an þar sem þeir eru framleiddir meðhöndlar ekkert latex þannig að engin hætta er á að framleiðslan geti innihaldið latex fyrir slysni. Framleið- endur SKYN hafa hannað glænýtt efni til notkunar í þessa framleiðslu, polyisoprene. Það gerir smokkana áþekka húð í viðkomu og eykur gíf- urlega næmni við samfarir svo tilfinn- ingin er sú að maðurinn sé ekki með smokk,“ segir Jón. Gamlar kvartanir um smokkanotk- un, óþægindin af þeim, daufari un- aðstilfinningu og hugsanlega ofnæmi, eiga ekki við lengur. SKYN-smokkarnir eru til sölu í öllum verslunum Lyfju á landinu, öllum versl- unum Heilsuhússins og Iceland versl- unum um land allt. Nánari upplýsingar um sölustaði sem og margs konar fróðleik um þessa byltingarkenndu smokka er að finna á vefsíðunni feel- everything.is. SKYN ER BYLTING: Eins og að vera ekki með smokk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.