Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 59
KYNNING W Collection er nýjasta línan frá hinu vinsæla merki Whirlpool sem fæst í Heimilistækjum. Línan inniheldur eldunartæki, svo sem ofna, helluborð, örbylgju- ofna og fleiri tæki sem hjálpa þér að galdra fram fullkomna rétti í eldhúsinu. Miðpunktur nýju W Collect- ion-línunnar frá Whirlpool er hin einstaka 6th Sense-tækni, snjallskynjarar sem einfalda matreiðsluna og aðstoða þig við að ná fram því besta úr hráefninu. Það eina sem þú þarft að gera er að velja hvað skal elda úr listanum og tækin stilla sig sjálfvirkt til þess að há- marka árangur matreiðslunnar. W Collection-tækin eru tengd við 6th Sense LiveApp sem gerir þér kleift að vera skilvirkari í eldhúsinu, hafa fullkomna yfirsýn yfir þín tæki og skipuleggja matarinnkaupin. W Collection-tækin spara þér þannig tíma sem þú getur ráð- stafað með ástvinum frekar en að standa yfir eldavélinni. W Collection er hannað með einfaldleika og klassíska hönnun í huga. Hvert tæki er nútímalegt og fágað í útliti með einföldu stafrænu kerfis- vali með myndum og texta á mannamáli. Notandavænn LED-skjár sér til þess að þú getir hætt að giska og 6th Sense-tæknin sér til þess að eldunartími og hitastig sé eins og best verður á kosið fyrir hvert hráefni. W Collection-tækin hafa yfir 100 forstilltar uppskriftir fyrir þig að velja úr. Þú hefur fullkomna stjórn með LiveApp sem hjálpar þér að fylgjast með tækjunum þínum, skipuleggja máltíðir og hafa fulla stjórn og yfirsýn yfir tækin þín. Glæsileg hönnun tækjanna er nútímaleg og þau njóta sín í hvaða eldhúsi sem er. Þú getur eldað fram á rauða nótt eða bakað fyrir sólarupprás með hæglokun á ofnhurðum svo þær lokast mjúklega og hljóð- laust. Vandað útlit og hreinar línur einkenna W Collection- -tækin. Einstakur innbyggður Multisense-hitamælir skynj- ar hitastig hráefnisins á 4 stöðum í einu. Þannig verður eldamennskan áhyggjulaus. Fjölrétta matseðill er ekkert mál með COOK 4 fjögurra hæða matreiðslukerfi og með READY2COOK-tækninni verður forhitun óþarfi, þú getur byrjað að elda strax. Sjá nánar á heimilistaeki.is W COLLECTION: Einstök upplifun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.