Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 61

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 61
KYNNING Led húsnúmer Sérsmíðum númer á öll hús · sendu okkur mynd þegar þú ert búinn að setja þitt húsnúmer upp Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar. Einnig hægt að hringa í sími 789 3010 · Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni · Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli · Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer Fólki þykir eðlilega vænt um æðardúnssængurn-ar sínar enda afskap- lega notalegt að sofa með slíkar ábreiður ofan á sér. En æðardúnssængur slitna eins og aðrir veraldlegir hlutir og stundum fara þær að leka að auki og æðardúnninn getur verið orðið óhreinn. Margir vita ekki að hér á landi er hægt að fá þá þjónustu að fá gömlu slitnu æðardúnssængurnar sínar góðar á ný. Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir rekur fyrirtækið Morgunroða, sem staðsett er við Borgarnes, og þar er meðal annars boðið upp á þá þjónustu að koma með slitnar æðardúnssængur. Æðardúnninn er þá þveginn og settur í nýtt ver og fólk fær til baka mjúka, slétta og fallega æðardúnssæng. „Við þvoum æðardún- inn, skiptum um dúnver á gömlum æðardúnssængum og setjum nýjan æðardún í dúnver. Einnig seljum við nýjar æðardúnssængur og merkj- um æðardúnssængur,“ segir Dóróthea. Fyrir utan þessa þjónustu við sængureigendur sinnir Morgunroði öllum æðardún- þvotti fyrir dúnhreinsistöðvar. Dóróthea fær þá æðardúninn til sín hreinsaðan og skilar honum hreinum til baka svo hann er tilbúinn í framleiðslu- vörur, sængur eða annað. Dúnþvotturinn er þar í vissum skilningi hluti af framleiðslu- ferlinu. Enn fremur sinnir Morgun- roði dúnþvotti fyrir einstak- linga sem hafa dúntekju og þurfa að láta þvo dúninn sinn. Margt dúntekjufólk veit ekki af þessari þjónustu en hún getur komið sér afar vel. Til að kynna sér og nýta sér þjónustu Morgunroða ehf. er best að hafa samband í síma 893-2928. Er gamla æðardúnssængin þín orðin slitin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.