Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 1
L A U G A R D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 211. tölublað 106. árgangur
VINSÆLL KVIK-
MYNDALEIKARI
HEFUR KVATT
SINFÓNÍSK
TÓNLIST Í
SÓKN
ÞORVALDUR BJARNI 46BURT REYNOLDS 12
„Ég var á hjólaæfingu í Öskjuhlíð;
þetta var fyrsta fjallahjólaæfingin
mín. Við vorum bara að æfa okkur og
allt gekk vel. Við vinnufélagarnir hjá
Icelandair höfðum verið að hjóla
saman allan veturinn og sumarið áð-
ur, en alltaf á götuhjólum,“ segir
Lára Sif Christiansen flugmaður,
sem lenti í alvarlegu og örlagaríku
slysi í Öskjuhlíð fyrir rúmu ári, en
eftir fall af planka lamaðist Lára
samstundis fyrir neðan brjóst og átt-
aði sig um leið á því að hún væri löm-
uð.
„Ég byrjaði bara að öskra. Ég vissi
það,“ segir Lára, sem hringdi strax í
eiginmann sinn, Leif Grétarsson.
„Vinnufélagar hans sáu hvernig hann
fölnaði í framan. Ég öskraði í símann:
Ég er lömuð, ég er lömuð, ég á aldrei
eftir að geta gengið eða flogið.“
Í viðtali við Láru og eiginmann
hennar, Leif Grétarsson, í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins segja þau
hjónin hvernig síðasta ár hefur verið,
en þau voru nýgift þegar slysið varð
og bjuggu í gömlu í húsi í miðbænum
sem ómögulegt var fyrir hana að
komast um eftir slysið.
„Ég fór aldrei aftur í þá íbúð. Ég
fór bara út að hjóla og fór aldrei aft-
ur heim.“
Kom aldrei aftur heim
Morgunblaðið/Ásdís
Flugmaður Lára Sif Christiansen.
Lamaðist fyrir neðan brjóst á fjallahjólaæfingu
Tryggingafræðileg staða stærstu
lífeyrissjóða landsins hefur versnað
nokkuð frá árslokum 2016 vegna
hríðlækkandi hlutabréfaverðs Ice-
landair Group.
Trygginga-
fræðileg staða
sjóðanna ákvarð-
ar getu þeirra til
þess að standa
undir skuldbind-
ingum sínum til
framtíðar. Sé
staðan jákvæð
gefur það til kynna að sjóðirnir eigi
eignir umfram skuldbindingar.
Þannig hefur lækkun bréfa Ice-
landair lækkað tryggingafræðilega
stöðu Lífeyrissjóðs verslunarmanna
sem nemur 1,1 prósentustigi á síð-
ustu 20 mánuðum. Um nýliðin ára-
mót var tryggingafræðileg staða
sjóðsins jákvæð sem nam 6,4%. Ekki
liggur fyrir á þessari stundu hver
tryggingafræðileg staða sjóðsins er í
dag. Lífeyrissjóður verslunarmanna
er stærsti einstaki hluthafi Iceland-
air með tæplega 14% hlut.
Lífeyrissjóður starfsmanna rík-
isins er næststærsti eigandinn.
Tryggingafræðileg staða A-deildar
hans hefur lækkað um 0,72 pró-
sentustig síðustu 20 mánuði en staða
B-deildarinnar hefur versnað um 0,3
prósentustig. ses@mbl.is »22
Lækkun Icelandair
Group hefur rýrt
eignasöfnin
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Tækjaleigur og framleiðslufyrirtæki
á kvikmynda- og sjónvarpsefni segja
að ný eining Ríkisútvarpsins, RÚV-
stúdíó, hafi ósanngjarnt forskot á
markaði og bjóði þjónustu á útleigu á
aðstöðu og tækjabúnaði á verði sem
„erfitt eða ómögulegt er fyrir einka-
aðila að keppa við“. Þetta kemur
fram í bréfi GN Studios ehf., sem sér
um rekstur kvikmyndaþorpsins í
Gufunesi, til Samkeppniseftirlitsins
þar sem óskað er eftir því að eftirlitið
grípi til aðgerða. Þá hafa tækjaleig-
urnar Exton og Kukl lýst yfir stuðn-
ingi við kvörtun GN Studios.
Í samræmi við stefnu RÚV til árs-
ins 2021 voru gerðar skipulagsbreyt-
ingar og sérstök eining stofnuð,
RÚV-stúdíó. GN Studios segir í
bréfi sínu til SKE að svo virðist sem
RÚV-stúdíó sé ekki dótturfélag
RÚV heldur eining innan Ríkisút-
varpsins ohf. Í því ljósi þykir GN
Studios, Exton og Kukli ófært að
RÚV ráðist inn á markað með slíka
þjónustu í samkeppni við einkaaðila
sem hafa ekki sömu tækifæri og
RÚV til að bjóða slíka þjónustu.
Ekki náðist í útvarpsstjóra RÚV í
gær er Morgunblaðið leitaði frekari
viðbragða um málið. Samkvæmt 4.
mgr. 4. gr. laga nr. 23/2013 eiga dótt-
urfyrirtæki RÚV að lúta sömu lög-
gjöf og starfsemi félaga í samkeppn-
isrekstri. Ætti starfsemin því að lúta
samkeppnislögum nr. 44/2005. Enn
fremur skulu viðskipti RÚV og dótt-
urfélaga þess fara fram á markaðs-
legum forsendum.
Skaðleg áhrif á samkeppni
Framleiðslufyrirtæki og tækjaleigur vilja að Samkeppniseftirlitið grípi til að-
gerða vegna RÚV Ný eining hjá RÚV þjónustar útleigu á tækjum og aðstöðu
MMiklir fjármunir lagðir til »4
Það verður síðdegis í dag sem keppendur sem
taka 100 kílómetra í utanvegahlaupinu Hengli
Ultra koma í mark, en það var klukkan 22 í gær-
kvöldi sem þátttakendur voru ræstir. Lagt var
upp frá miðbænum í Hveragerði en alls voru 372
skráðir til leiks; fólk frá 17 löndum og fjórum
heimsálfum. Flestir létu sér nægja að hlaupa 10
eða 25 kílómetra en um 30 keppendur ætluðu að
hlaupa lengstu leiðina, sem er um Hengilinn og
Hellisheiði. „Veðrið fínt, dropar og gola, sem er
þó bara hluti af áskoruninni í þessari einstöku
keppni,“ sagði Einar Bárðarson skipuleggjandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlaupið inn í haustnóttina á Hengilssvæðinu
100 kílómetrar
og áskoranir í
Hengli Ultra
Íslendingar eiga í þvingunar-
aðgerðum gagnvart 27 ríkjum auk
vígasamtaka. Aðgerðir þessar eru
ákveðnar í samvinnu við alþjóða-
stofnanir, ríkjahópa eða samstarfs-
ríki í samráði við utanríkismála-
nefnd Alþingis. Ríkin sem um ræðir
eru m.a. Afganistan, Norður-
Kórea, Hvíta-Rússland, Bosnía-
Hersegóvína og Rússland.
Flestar þvingunaraðgerðir snú-
ast um vopnasölubann, frystingu
fjármuna og ferðabann. Einnig eru
dæmi um annars konar aðgerðir,
s.s. bann við olíukaupum og sölu á
lúxusvörum, en markmiðið er eink-
um að viðhalda friði og öryggi. »26
Ísland styður á
þriðja tug þvingana
Samkvæmt spálíkani ráðgjafar-
fyrirtækisins Analytica munu 2,3-
2,4 milljónir ferðamanna sækja
Ísland heim með flugi á næsta ári,
borið saman við 2,2-2,3 milljónir í
ár. Það yrði metfjöldi ferðamanna.
Nærri 1.200 þúsund farþegar
Samkvæmt talningu Isavia fóru
um 10% fleiri farþegar um Kefla-
víkurflugvöll í ágúst en í sama mán-
uði í fyrra. Alls fóru þá 1.189.250
farþegar um völlinn, sem er mesti
fjöldi í einum mánuði í sögunni.
Þrátt fyrir þessa aukningu bend-
ir greining Ferðamálastofu til að
færri erlendir ferðamenn hafi kom-
ið til landsins í ágúst en í ágúst í
fyrra.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir óvissu um
næstu skref Icelandair eiga þátt í
að erfitt sé að segja fyrir um þró-
unina á næsta ári.
„Við vitum ekki hvernig Iceland-
air bregst við. Mun félagið fækka
Ameríkusætum eða fjölga Evrópu-
sætum? Auðvitað myndi það hafa
áhrif. Það er líka spurning hvað er-
lendu flugfélögin sem fljúga til og
frá landinu gera,“ segir Skarphéð-
inn Berg. baldura@mbl.is »10
Spá 2,3-2,4 milljónum
ferðamanna 2019