Morgunblaðið - 08.09.2018, Page 10

Morgunblaðið - 08.09.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Gjafavöruverslun Kringlan Gríptu gjöf með þér! Spurður hvaða væntingar megi hafa fyrir næsta ár, út frá farþega- fjöldanum fyrstu átta mánuði ársins, segir Skarphéðinn Berg of margt óljóst til að hægt sé að segja til um það á þessu stigi. Isavia hafi til dæmis ekki gefið út flugáætlun fyrir næsta ár. Þá eigi eftir að koma í ljós hvernig Icelandair hyggst bregðast við mis- ræmi sem kom upp í framboði á sæt- um til Evrópu annars vegar og til Bandaríkjanna hins vegar. „Við vitum ekki hvernig Icelandair mun bregðast við. Mun félagið fækka Ameríkusætum eða fjölga Evrópu- sætum? Auðvitað myndi það hafa áhrif. Það er líka spurning hvað er- lendu flugfélögin sem fljúga til og frá landinu gera. Hvort það bætist við framboðið eða dregur úr því,“ segir Skarphéðinn Berg og bendir á að mest muni um íslensku flugfélögin og erlendu flugfélögin sem hafa umtals- verða starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Þá meðal annars EasyJet og Wizz Air. EasyJet sé til dæmis orðið afar mikilvægt fyrirtæki í flugi til og frá landinu. „Þótt Lux Air hafi ekki verið umfangsmikið á markaðnum [í sum- ar] munar um að félagið mun ekki fljúga hingað næsta sumar. Það bæt- ist við að Air Berlin hætti áætlunar- flugi til Íslands [þegar félagið fór í gjaldþrot].“ Hátt gengi fælir frá Skarphéðinn Berg segir aðspurður að gengisþróunin hafi dregið úr áhuga erlendra flugfélaga á áætlunarflugi til Íslands. Þá telur hann ólíklegt að spár um hraða fjölgun farþega á Keflavíkur- flugvelli á næstu árum rætist. Þvert á móti sé ólíklegt að farþegum haldi áfram að fjölga hratt við þessar að- stæður. Ferðaþjónustan líði fyrir hátt gengi íslensku krónunnar. Loks segir hann aðspurður að fjölg- un ferðamanna frá Bandaríkjunum og Asíu, á kostnað ferðamanna frá Evrópu, geti haft áhrif á innviðaþörf í ferðaþjónustu. Bandaríkjamenn dvelji til dæmis jafnan skemur en Evrópu- menn og séu mest á suðvestur- horninu, Suðurlandi og Vesturlandi. „Það þarf ýmislegt að gerast í at- vinnugreininni til hagræðingar. Við teljum að afkoman sé ekki nógu góð og fyrirtækin þurfi að ná niður kostn- aði. Það geta þau gert með ýmsum hætti. Til dæmis með sameiningum og með því að bæta tæknistigið hjá sér. Ég tel að erfitt verði að sækja í tekju- hliðina meðan krónan er svona sterk,“ segir Skarphéðinn Berg og bendir á að fjölgun bandarískra ferðamanna í júlí og ágúst hafi haft umtalsverð áhrif á fjölda farþega í Keflavík í sum- ar. Metfjöldi flugfarþega í ágúst  Farþegum á Keflavíkurflugvelli í ágúst fjölgaði um 10% milli ára  Fjöldinn í júlí og ágúst er meiri en Isavia áætlaði í síðustu maíspá  Ferðamálastjóri segir spár um hraðan vöxt óraunhæfar Farþegafjöldi og spá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll 2018 Heildarfarþegafjöldi fyrstu 8 mánuði árs 2017 og 2018 Rauntölur fyrir janúar-ágúst 2017 5.953.411 Spá Isavia frá nóvember sl. fyrir janúar-ágúst 2018 7.049.659 Rauntölur fyrir janúar-ágúst 2018 6.738.063 Heimild: Isavia 1.250 1.000 750 500 250 0 .000 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Farþegafjöldi (rauntölur): Skipti Komur Brottfarir Spá frá nóv. s.l. Heildarfarþegafjöldi 2018 10,38 milljónir Spá Isavia frá nóvember 2017 10,07 milljónir Uppfærð áætlun um farþegafjölda* *Miðað við farþegafjölda í jan.-ágúst og spá Isavia frá maí sl. fyrir sept.-des. 2018 Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli Frá janúar til ágúst 2017 og 2018, rauntölur og spár, milljónir farþega 2,0 1,5 1,0 0,5 0 Brottfarir 2017 Brottfarir 2018 Spá frá nóv. sl. Spá frá maí sl. 1,93 2,14 2,02 1,97 Heimild: Isavia RAUNTÖLUR SPÁR FYRIR 2018 Morgunblaðið/Baldur Keflavíkurflugvöllur Það skýrist í haust hvort farþegaspár rætast. Spá um brottfarir erl. ferðamanna út 2019 Janúar 2013 til desember 2019, leiðrétt fyrir árstíðasveiflu 250 200 150 100 50 0 þúsund 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Heimild: Ferðamálastofa, Analytica Brottfarir erlendra farþega 5% líkur á hærra Spá 5% líkur á lægra BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 10% fleiri farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst en í sama mánuði í fyrra. Alls fóru 1.189.250 far- þegar um völlinn í ágúst sl. sem er metfjöldi í einum mánuði. Alls hafa því tæplega 6,74 milljónir farþega farið um völlinn fyrstu átta mánuði ársins sem er met. Samkvæmt uppfærðri farþegaspá Isavia í maí fyrir árið 2018 fara um 10,07 milljónir farþega um völlinn í ár. Færri farþegar fóru um völlinn í maí og júní en spáð var. Fjöldi farþega í júlí og ágúst reyndist hins vegar umfram spá Isavia í maí. Sú spá var uppfærsla á eldri spá frá nóvember 2017. Breyta ekki fyrri áætlun Með aukinni umferð í júlí og ágúst er maíspáin því orðin raunhæfari. Líkt og rakið var í Morgunblaðinu um miðjan ágúst bendir maíspáin til að um 330 þúsund færri farþegar fari um völlinn í ár en Isavia spáði í nóv- ember í fyrrahaust. Nýjustu farþega- tölur breyta því ekki. Sé eingöngu litið til brottfara frá Keflavíkurflugvelli er fjöldinn fyrstu átta mánuði ársins umfram spána sem Isavia lagði fram í maí. Brottfarirnar eru um 2,022 milljónir, eða 55.500 fleiri en spáð var. Það samsvarar 2,8 prósentustiga fjölgun. Þessar tölur vísa til heildarfjölda farþega og heildarfjölda brottfara. Ferðamálastofa greinir farþegana og brottfarir eftir þjóðerni. Bendir sú greining til að erlendum farþegum á Keflavíkurflugvelli hafi fækkað um 2,8% í ágúst milli ára. Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir tölur um brott- farir besta mælikvarðann á fjölgun, eða fækkun, erlendra ferðamanna. Samkvæmt því og nýjum ágústtölum Isavia virðist mega álykta að ferðalög Íslendinga hafi vegið upp samdrátt í brottförum erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli í ágúst. Of snemmt að spá um 2019 Skarphéðinn Berg segir aðspurður að Ferðamálastofa hafi ekki gert sér- stakar áætlanir um fjölda ferðamanna í ár umfram það sem leiða megi af far- þegatölum Isavia. Skarphéðinn Berg Steinarsson Ráðgjafarfyrirtækið Analytica hefur útbúið reiknilíkan í þeim tilgangi að spá fyrir um fjölda er- lendra ferðamanna á Íslandi. Yngvi Harð- arson, fram- kvæmdastjóra Analytica, segir líkanið spá því að litl- ar líkur séu á frekari fækk- un erlendra ferðamanna hingað í gegn- um Keflavík- urflugvöll síðustu mánuði ársins. Fjölgunin verði þó með mun hægari takti en sl. misseri og fækkun gæti orðið einstaka mánuði. Á árinu 2019 gæti fjöldi brottfara frá Keflavík orðið 2,3- 2,4 milljónir samanborið við 2,2- 2,3 millj. í ár. Þær séu mælikvarði á fjölda ferðamanna. Ferða- mönnum hafi fækkað milli ára í maí, júní og ágúst. Miðað við þróunina, og tilteknar forsendur, muni þeim hins vegar fjölga næstu mánuði. Líkanið byggir á sögulegri þró- un í brottförum erlendra ferða- manna eftir þjóðerni og spáir fyrir um þróun niður á mánuði leiðrétt fyrir árstíðasveiflu. „Væntingin er að þetta gæti farið að rísa aftur næstu mán- uði,“ segir Yngvi. „Er þá ekki tek- ið tillit til áforma um fyrirhugaða áfangastaði í Asíu.“ Spáir frekari fjölgun 2019 LÍKAN ANALYTICA Yngvi Harðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.