Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 21

Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Starf evrópskra blaðamanna verð- ur sífellt hættulegra,“ segir Mog- ens Blicher Bjerregård, forseti Evrópusambands blaðamanna, European Federation of Journal- ists, en hann er um þessar mundir á Íslandi ásamt formönnum ann- arra blaðamannafélaga á Norður- löndunum. Bjerregård er frá Dan- mörku og hefur starfað sem blaðamaður frá árinu 1984 en hann var formaður danska blaðamanna- félagsins á árunum 1999-2015. Hann segir aðspurður að blaða- menn í Evrópu séu ekki undan- þegnir þeim ógnum sem kollegar þeirra í öðrum heimsálfum glími við. „Það var til dæmis áfall fyrir okkur þegar Daphne Caruana Gal- izia var myrt með bílsprengju á Möltu í fyrra. Það gerðist innan landamæra Evrópusambandsins. Það var líka áfall þegar Ján Kuciak var myrtur fyrr á þessu ári í Slóv- akíu ásamt unnustu sinni.“ Bjerre- gård nefnir einnig að dæmi séu um að blaðamönnum, sem starfi þvert á landamæri við rannsóknarblaða- mennsku, hafi verið hótað. „Þetta sýnir okkur mikilvægi þess að þróa einhvers konar leiðir til þess að efla öryggi blaðamanna, einhvers konar aðgerðaáætlun sem hægt sé grípa til þegar blaðamönn- um er ógnað.“ Bjerregård játar að einhverjir kunni að spyrja hvort slíkra úrræða sé virkilega þörf á Norðurlöndunum, en bendir á að þar hafi færst í aukana að blaða- mönnum sé hótað. „Við sjáum til dæmis mun meiri hatursorðræðu á netinu og áreitni, sérstaklega gagn- vart kvenkyns blaðamönnum. Hvernig tekstu á við slíkt?“ Bjerregård segir að margir blaðamenn láti sem hótanir af þessu tagi sé bara eðlilegur hluti starfsins en sér þyki mikilvægt að hótanir á netinu séu meðhöndlaðar á sama hátt og aðrar hótanir. „Það er því ný staða komin upp í Evrópu og við verðum að finna leiðir til þess að gera starfið öruggt og tryggja gott starfsumhverfi.“ Þarf að takast á við falsfréttir Fjölmiðlar hafa á síðustu árum mátt þola ýmsa ágjöf og jafnvel virtir miðlar verið sakaðir um að dreifa svokölluðum „falsfréttum“. Aðspurður hvernig fjölmiðlar geti á ný áunnið sér traust fólks sem lítur pressuna slíku hornauga segir Bjerregård að það fyrsta sem hann myndi vilja gera væri að hætta að nota hugtakið „falsfréttir“ á þann veg sem verið hefur gert. „Þetta er orðræða sem hefur verið þróuð áfram af stjórn- málamönnum eins og Trump Bandaríkjaforseta og þeir nota hugtakið þannig að það er komið óravegu frá því sem það var upp- haflega um.“ Bjerregård segir að það mætti byrja á að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. „Þegar þú ert að tala um falsfréttir, þá ertu að tala um áróður, lygar og rangar upplýsingar, sem dreift er vísvit- andi.“ Bjerregård nefnir að hann hafi sjálfur komið að gerð bæklings fyr- ir norrænu ráðherranefndina um leiðir til þess að sporna við slíkum rangfregnum. „Mitt fyrsta ráð væri að fólk ætti að hampa hágæða- blaðamennsku og reyna að tryggja að hvert land búi við fjölbreytta fjölmiðlaflóru með frjálsum og óháðum miðlum,“ segir Bjerregård. Hann segir að það þurfi einnig að leggja meiri áherslu á svonefnt „fjölmiðlalæsi“, þannig að almenn- ingur fái færni til þess að greina á milli áróðurs og blaðamennsku. Bjerregård telur þó ekki réttu leiðina að reyna að sporna við út- breiðslu falsfrétta með lagasetn- ingu eða reglugerðafargani heldur ættu óháð fjölmiðlaráð á vegum fjölmiðlanna sjálfra að sinna eft- irlitshlutverki með þeim. Það sé leiðin sem farin hafi verið í Noregi og hún hafi reynst mjög vel þar. Prentmiðlar ekki á útleið Talið berst að stöðu prentmiðla á upplýsingaöld, en segja má að and- láti prentmáls hafi verið spáð á hverju einasta ári síðustu tuttugu árin eða svo. Bjerregård segist ekki hafa áhyggjur af stöðu þeirra til lengri tíma. „Ég er mjög bjart- sýnn á framtíð blaðamennskunnar, kannski er það óvænt, en það er svo mikil þörf á góðri blaða- mennsku, meiri en nokkru sinni fyrr. Málið snýst um að finna rétt rekstrarform og margir fjölmiðlar dafna vel í nýju formi.“ Slík til- raunastarfsemi fari nú fram víða og skili oft góðum árangri. „Einhverjir sögðu að dagblöðin myndu leggja upp laupana fyrir mörgum árum en ég held að það sé ómögulegt að segja fyrir um fram- tíðina. Kannski þurfa þeir að koma út á annan hátt, fækka prent- dögum, sérhæfa sig meira eða þannig.“ Hann segir enga leið að sjá þá þróun fyrir. Blaðamenn þurfi hins vegar að vera tilbúnir til að starfa jafnvel á mismunandi miðl- um á sama tíma, hvort sem þeir eru á netinu eða ekki. „Ein áskorunin sem ég sé snýst um staðbundna blaðamennsku. Við sjáum mikið ákall um rannsóknar- blaðamennsku og alþjóðlega blaða- mennsku og margt af því hefur ver- ið framúrskarandi,“ segir Bjerre- gård og nefnir til dæmis uppljóstr- anirnar um Panamaskjölin, sem hafi jafnvel verið fyrirmynd um hvernig slík vinna geti orðið í fram- tíðinni. „Á sama tíma höfum við ekki verið meðvituð um að staðbundin blaðamennska hefur farið halloka. Í mörgum löndum Austur-Evrópu hafa staðarblöðin kannski verið tekin yfir af ólígörkum eða stjórn- málamönnum og blöðin verða háð- ari því sem þeir vilja segja eða fara jafnvel að flytja áróður. Við þurfum að fylgjast vel með þessari þróun.“ Bjerregård nefnir Bandaríkin í þessu samhengi, þar sem ástandið sé mjög forvitnilegt, sér í lagi í ljósi þess að Bandaríkjaforseti eigi í slag við stóru alþjóðlegu fjölmiðl- ana. Rannsóknir spyrji því hvaðan Bandaríkjamenn fái fréttirnar sín- ar og margir þeirra fá þær frá stað- arfjölmiðlinum sínum. „Ef þær fregnir eru að verða minna áreið- anlegar vegna þrýstings frá stjórn- málamönnum eða öðrum hags- munaaðilum gæti það valdið miklum skaða og það þarf að gæta að því.“ Meiri þörf á góðri blaðamennsku  Mogens Blicher Bjerregård, forseti Evrópusambands blaðamanna, segir starf blaðamanna verða sífellt hættulegra  Hótanir sjást oftar en áður  Segir mikilvægt að sporna gegn „falsfréttum“ Morgunblaðið/Valli Blaðamennska Mogens Blistrup Bjerregård, forseti Evrópusambands blaðamanna, EFJ, segist vera bjartsýnn fyr- ir hönd prentmiðla á framtíðina, þar sem nú sé meiri þörf á góðri blaðamennsku en nokkru sinni fyrr. Síðasta stóra helgi sumarvertíðar skemmtiferðaskipa er um helgina. Þrjú skip eru væntanleg í Sundahöfn í Reykjavík með samtals rúmlega 4.500 farþega og tæplega 2.000 manns í áhöfn. Komur tveggja skipa eru skráðar klukkan átta á sunnudagsmorgun. Það eru Norwegian Jade sem er 93.558 brúttótonn og Viking Sea, sem er 47.800 brúttótonn. Klukkan 20 á mánudagskvöld er væntanlegt til hafnar skipið AIDAcara, sem er 38.557 brúttótonn. Um síðustu helgi komu einnig þrjú skip í Sundahöfn, með samtals rúmlega 4.500 farþega. Samkvæmt yfirliti á heimasíðu Faxaflóahafna er von á alls 72 skip- um þetta sumarið og skipakomur eru 169. Síðasta skipið er væntanlegt 21. október. Farþegafjöldinn er sam- tals 150 þúsund manns. Þetta er nýtt met í fjölda farþega. sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Sundahöfn Þrjú skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur um síðustu helgi. Serenade of the Seas og Zuiderdam lágu samtímis við Skarfabakkann. Síðasta stóra helgin  Þrjú skemmtiferðaskip væntanleg Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Knoll International WOMB Hönnun: Eero Saarinen 1948

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.