Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Elsku Auður. Það
var sárara en orð fá
lýst að fá fregnina
um að þú hefðir
kvatt þennan heim. Það stoppaði
allt og minningarnar spruttu
fram. Við vissum að heilsan væri
ekki góð, þótt aldrei heyrðum við
þig kvarta. Þú tókst hlutunum
með stóískri ró og vildir sem
minnst beina athyglinni að sjálfri
þér.
Við vissum af öllum sjúkrahús-
legunum, en þér tókst alltaf ein-
hvern veginn að rífa þig upp. Nú
þegar dauðinn ber að dyrum
verður allt svo endanlegt. Öllu
sem við ætluðum að gera verður
ekkert af að þessu sinni, elsku
Auður okkar.
Við, sem unnum saman í
fjöldamörg ár, ætluðum að halda
áfram að hittast, fara í göngur, á
kaffihús og spjalla. Rifja upp
ánægjustundir og hlæja saman.
Þú með þinn yndislega hlátur,
varst ávallt raungóð, hjálpsöm,
samviskusöm og sannur vinur.
Lífið er undarlegur leikur, fólk
hittist og kveður. Skiptir um
vinnustaði og leitar að réttri hillu.
Við vorum ótrúlega heppnar að fá
tækifæri til að vinna í fyrstu sér-
deildinni fyrir einhverf börn, sem
sett var á laggirnar á Íslandi fyr-
Auður St.
Sæmundsdóttir
✝ Auður StefaníaSæmundsdóttir
fæddist 5. júní
1949. Hún lést 9.
ágúst 2018.
Útför Auðar
Stefaníu fór fram
30. ágúst 2018.
ir rúmlega 30 árum.
Það hljóta að vera
forréttindi að vinna
með fólki öll þessi
ár, þar sem gleði,
hlátur og góð sam-
vinna ríkti upp á
hvern dag. Það var
tilhlökkunarefni á
hverjum degi að
mæta til vinnu, ynd-
islegir nemendur og
frábært andrúms-
loft, þar sem unnið var úr málum,
þau rakin og leyst. Aldrei neinir
árekstrar eða leiðindi á milli okk-
ar. Vináttan óx með hverju ári,
varð nánari og innilegri.
Auður var mikil handverks-
kona og ótrúlega vandvirk. Hún
hafði frumkvæði að því að við
stelpurnar fórum allar að prjóna.
Hún var alltaf tilbúin að aðstoða
og leiðbeina ef á hjálp þurfti að
halda.
Ekki er hægt að minnast Auð-
ar án þess að nefna hundinn
Krumma. Krummi kom einu
sinni í viku í heimsókn á sérdeild-
ina, nemendunum til mikillar
gleði og var beðið eftir þessari
stund með tilhlökkun. Við þökk-
um Auði fyrir einstaklega góða
samfylgd og samveru í lífi og
starfi.
Elsku Katrín Brynja. Við
sendum þér, gullmolunum þínum
þremur og fjölskyldu þinni okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Megi guð gefa ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum.
Minningin lifir.
Anna, Jóhanna, Krista
og Margrét.
Hleyptu sólinni inn
brostu við henni
brosmildir tapa aldrei
og fúlir vinna aldrei.
Hleyptu sólinni inn
brostu við henni.
Opnaðu hjarta þitt og hleyptu
sólskininu inn.
(The McGuire Sisters.)
Þetta lag upp á ensku sung-
um við gjarnan saman skóla-
systurnar á Varmalandi vetur-
inn 1955/1956. Þar var mikið
sungið, og Tolla alltaf með gít-
arinn. Við vorum stór og góður
hópur og náðum vel saman.
Eftir skólavistina héldum við
miklu sambandi og þær sem
bjuggu í Reykjavík voru með
saumaklúbb einu sinni í mánuði.
Við sem bjuggum úti á landi
Þorbjörg Laxdal
Marinósdóttir
✝ Þorbjörg Lax-dal Marinós-
dóttir fæddist 7.
apríl 1935. Hún lést
3. ágúst 2018.
Útför Þorbjarg-
ar fór fram 17.
ágúst 2018.
mættum í sauma-
klúbbinn þegar við
vorum í bænum.
Oft fórum við í
ferðalag á vorin og
það var Þorbjörg
sem stjórnaði því
oftast. Síðasta ferð-
in sem hún skipu-
lagði var heimsókn
til Hrafnhildar í
Boston, sem var
dásamleg ferð.
Þorbjörg var góður stjórn-
andi í hverju sem við vorum að
bralla, hjálpsöm og skemmtileg.
Það einmitt einkenndi Þor-
björgu hvað hún var ráðagóð og
hjálpsöm. Jóhanna og Hrafn-
hildur voru með Þorbjörgu í
herbergi og elskuðu hana.
Hennar er sárt saknað.
Við þökkum henni samfylgd-
ina og sendum ástvinum Þor-
bjargar innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd skólasystra Þor-
bjargar á Varmalandi,
Hrafnhildur Ágústsdóttir,
Guðrún Ákadóttir og
Jóhanna Jónasdóttir.
✝ Guðrún Bergs-dóttir fæddist í
Reykjavík 11. apríl
1933. Hún lést á
Landspítalanum
25. ágúst 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Sara Ólafs-
dóttir, f. 24.3.
1902, og Bergur
Ársæll Arnbjörns-
son, f. 17.8. 1901,
bæði látin. Systkini
Guðrúnar eru Ólafur, látinn,
Þorgerður, látin, Björn Arnar.
Eftirlifandi eiginmaður Guð-
rúnar er Gunnar Sveinbjörn
Jónsson, f. 7.10. 1931. Eign-
uðust þau fjögur börn sem eru:
1) Sara, f. 1956, eiginmaður
hennar er Þorkell Jóhannsson
og eiga þau eitt barn. 2) Berg-
ur, f. 1957, eig-
inkona hans er
Hrönn Arnars-
dóttir og eiga þau
þrjú börn og sex
barnabörn. 3) Ólöf,
f. 1960, eigin-
maður hennar er
Ragnar Þór Jörg-
ensen og eiga þau
þrjú börn og eitt
barnabarn. 4) Auð-
ur, f. 1963, eig-
inmaður hennar er Gunnar
Magnússon og eiga þau níu
börn og tíu barnabörn.
Guðrún lærði hjúkrun og
geislafræði og starfaði lengst
af á Röntgendeild Landspít-
alans við Hringbraut.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Mig langar að skrifa hér
nokkur orð til að minnast
tengdamóður minnar, hennar
Guðrúnar Bergsdóttur sem féll
frá hinn 25. ágúst síðastliðinn.
Dúna, eins og hún var alltaf
kölluð, var algjör eðalmanneskja
og betri tengdamömmu var ekki
hægt að óska sér, en ég hef verið
svo heppinn að eiga hana að í
rúm fjörtíu ár og á eftir að sakna
hennar mikið.
Dúna var algjör snillingur í
hannyrðum, málun á postulíni,
matargerð og mörgu fleiru og
eru til margir fallegir hlutir eftir
hana sem okkur í fjölskyldunni
þykir vænt um að eiga, en fyrst
og fremst var hún fjölskyldu-
manneskja og góð kona,
mamma, tengdamamma, amma
og langamma.
Nú sit ég hér grátandi og
skrifa þessi orð til að minnast
hennar og allra stundanna sem
við áttum saman með henni og
tengdapabba við ýmis tækifæri,
á ferðalögum erlendis, í veiðitúr-
um og ferðum innanlands, stund-
irnar í sumarbústaðnum og sam-
verunnar heima við.
Við eigum öll eftir að sakna
hennar mjög og stórt skarð er í
fjölskyldunni við fráfall hennar.
Ég kveð þig með söknuði og
sorg í hjarta en hugga mig við að
þér líði betur núna og munir
vaka yfir okkur sem erum hér
áfram.
Guð blessi þig, elsku Dúna
mín.
Ragnar Þór Jörgensen.
Það erfitt að þurfa að kveðja
einhvern sem hefur verið stór
hluti af lífi manns. Þannig er
komið fyrir mér þegar ég kveð
tengdamóður mína Guðrúnu
Bergsdóttur.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
veturinn 1973-1974 er ég fór að
venja komur mínar á heimili
hennar í Garðabænum. Frá
fyrstu tíð tók hún mér ákaflega
vel og aldrei féll skuggi á okkar
samskipti. Nánast alla tíð höfum
við verið nágrannar og búið í
göngufæri hvort frá öðru svo
samskiptin hafa verið mikil og
tíð.
Ég á eftir að sakna þess að
geta ekki skotist til hennar í
kaffi og tekið smá spjall. Við
Gunnar tengdafaðir minn rædd-
um gjarnan um skógrækt,
plöntur, fugla og veðrið en Dúna,
eins og Guðrún var kölluð, hafði
áhuga listum og hafði skoðanir á
ýmsu í þjóðmálum og ræddi þau
og tók þá gjarnan stöðu með
þeim sem minna máttu sín í
þjóðfélaginu.
Hún vann lengi fullan vinnu-
dag ásamt því að hugsa um
heimilið og í frístundum málaði
hún postulín og prjónaði. Hún
var alltaf að og maður undraðist
afköstin.
Ekkert skipti hana þó jafn
miklu máli og fjölskyldan og allt-
af vildi hún vera til staðar fyrir
fólkið sitt.
Efst í huga mér nú er þakk-
læti fyrir allar samverustundirn-
ar sem við áttum og það að hafa
fengið að kynnast þessari sóma-
konu. Blessuð sé minning Guð-
rúnar Bergsdóttur.
Þorkell.
Kveðja til ömmu.
Elsku amma mín Dúna
vinkona mikil og kær.
Nú farin ertu frá okkur
þú kvaddir okkur í gær.
Eftir við stöndum döpur og meyr
en sú er raunin er ástvinur deyr.
Af hverju amma, af hverju nú?
Elsku amma mín Dúna, af hverju þú?
Nú sól þín er sest og rís ekki á ný,
en amma var sem sólin,
svo björt og svo hlý.
Ef stiga ég gæti til himins byggt
og mér á rúmstokkinn hjá þér tyllt,
ég segði þér amma að ég elska þig
heitt
og í þinn stað kemur aldrei neitt.
Ég dáðist að dugnaði þínum og dyggð
nú sit ég og skrifa, lömuð af hryggð.
En einhvern tímann við hittumst aftur.
Þangað til andi þinn ver mér kraftur.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Þín
Helga.
Hann er orðinn pínulítill,
saumaklúbburinn okkar núna,
þegar Dúna kveður. Við, verð-
andi hjúkrunarnemar, sem hitt-
umst í kirkjunni á háalofti
Landsspítalans 2. janúar 1952.
Þetta var glaðvær hópur ungra
stúlkna með miklar væntingar til
framtíðarinnar. Ein okkar var
Guðrún Bergsdóttir frá Akra-
nesi, alltaf kölluð Dúna. Hún var
há, einkar broshýr og freknótt,
rauðhærð með mikið krullað hár.
Falleg stúlka sem tekið var eftir
hvar og hvenær sem var. Hún
var glaðvær og það átti eftir að
koma í ljós að hún spilaði á gítar
og söng í góðra vina hópi. Þær
Böggý héldu gjarnan uppi fjör-
inu þegar dvalið var í dagstof-
unni á bakvöktum. Hún var þýð í
lund en með ákveðnar skoðanir
og föst fyrir þegar svo bar undir.
Námið sóttist henni einkar vel.
Við áttum allar eftir að kynnast
svo miklu betur og bindast vin-
áttuböndum til æviloka.
Árin liðu, hluti námsins fór
fram úti á landi og Dúna fór til
Vestmannaeyja, þar réðust ör-
lögin til allrar framtíðar þegar
hún hitti hann Gunnar, sem varð
lífsförunautur hennar til hinstu
stundar. Þau giftu sig og bjuggu
sér og börnum sínum rúmgott
og fallegt heimili í Kópavogi og
síðar Garðabæ. Þar var aldrei
lognmolla eða aðgerðarleysi.
Bæði voru þau höfðingjar heim
að sækja í sínu fallega umhverfi.
Þau elskuðu að ferðast og fóru
víða. Minnisstæð er mér ferð
okkar hjóna til Möltu, þegar við
stigum inn í vélina til Kaup-
mannahafnar kom í ljós að með í
för voru Dúna og Gunnar, ásamt
Ernst og Ragnheiði, systur
Gunnars. Það urðu óvæntir fagn-
aðarfundir. Við leigðum okkur
bíl saman, fórum um allar triss-
ur á eynni, skoðuðum, frædd-
umst, heilluðumst af mörgu. Þau
notuðust við mig sem bílstjóra,
ég stóð mig misvel en það bjarg-
aðist og allir nutu vel og gerðu
grín úr.
Við Dúna unnum saman á Víf-
ilsstöðum um skeið áður en hún
fór í framhaldsnám í röntgen-
hjúkrun. Hún var einstakur
vinnufélagi, fór alls staðar um til
bóta, sléttaði misfellur, leið-
beindi og bætti. Henni var
áskapað að sýna umhyggju.
Við skólasysturnar sem
bjuggum hérna fyrir sunnan
hittumst alla vetur reglulega í
saumaklúbbi og þær sem voru á
landsbyggðinni komu þegar þær
voru á ferð, þá var líf og fjör.
Það var alltaf svo spennandi að
sjá verkefni hagleikskonunnar
Dúnu.
Við gömlu konurnar, skóla-
systur hennar, söknum og syrgj-
um hjartkæra vinkonu. Sendum
hugheilar samúðarkveðjur til
Gunnars og afkomenda og biðj-
um þeim farsældar í framtíðinni.
Fyrir hönd hollsins okkar,
Jóna Valgerður
Höskuldsdóttir.
Guðrún
Bergsdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HULDU SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
áður Básenda 1.
Hallgrímur Jónasson Guðríður Kristófersdóttir
Guðrún Jónasdóttir Eiríkur Páll Eiríksson
Helga Jónasdóttir
Elísabet Jónasdóttir
Ólafur Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS ÁSMUNDSSONAR,
bónda í Ferjunesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands fyrir hlýju og nærgætni
í veikindum hans.
Aðalheiður Kristín Alfonsdóttir
Oddný Kristjánsdóttir Eiríkur Á. Guðjónsson
Helga Kristjánsdóttir Heimir Hoffritz
Ásmundur Kristjánsson G. Hildur Rósenkjær
Eiríkur Steinn Kristjánsson Kolbrún I. Hoffritz
Benedikt Hans Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar sambýliskonu,
móður, tengdamóður, systur, ömmu og
langömmu,
MARGRÉTAR B. GUÐVINSDÓTTUR,
Hólavegi 22, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 1 á Sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki fyrir góða umönnun og umhyggju.
Haukur Björnsson
Óskar Guðvin Björnsson Erla Kjartansdóttir
Guðni Ragnar Björnsson Anna Marie Stefánsdóttir
Lovísa Birna Björnsdóttir Vigfús Vigfússon
Björn Jóhann Björnsson Edda Traustadóttir
Stella Guðvinsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug og hinum látna virðingu
við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
HELGA ÞRASTAR VALDIMARSSONAR,
læknis og prófessors emeritus.
Guðrún Agnarsdóttir
Ásgeir Rúnar Helgason
Valdimar Helgason Helena Margrét Jóhannsdóttir
Birna Huld Helgadóttir Timothy S.P. Moore
Agnar Sturla Helgason Anna Rún Atladóttir
Kristján Orri Helgason Ingibjörg Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar