Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Ármúla 24 - s. 585 2800 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur ákveðnar hugmyndir um það hvernig þú getur bætt heilsu þína. Við- urkenndu staðreyndir mála og freistaðu þess að ná samkomulagi sem allir geta sætt sig við. 20. apríl - 20. maí  Naut Kurteisi kostar ekkert og er sjálfsögð hvernig sem á stendur og hver sem í hlut á. Ræddu málin við félaga þína og drífðu svo í hlutunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er ekki rétti tíminn til þess að gera fjárhagsáætlanir eða taka ákvarðanir um skiptingu eigna. Þú tekur púlsinn á skemmtanalífinu eftir nokkurt hlé. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er gott og blessað að leggja fjölskyldu sinni lið, en varast skaltu að fórna þér. Þú siglir lygnan sjó í fjármálunum þessa mánuðina. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú gætur orðið fyrir óvæntum fjár- útlátum og ættir að ræða það við fjölskyld- una. Segðu hvað þér býr í brjósti. Fall er fararheill. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er óþarfi að taka alla hluti svo bókstaflega sem heimurinn sé einhuga á móti þér. Þú lendir á milli tannanna á fólki, en ekki velta þér upp úr því. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú vilt að fólki líði vel nálægt þér skaltu gæta orða þinna og hafa aðgát í nærveru sálar. Einvera og næði eru það sem þú þarfnast þessa dagana. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú færð hverja hugmyndina á fætur annarri en gengur illa að gera þær allar að raunveruleika. Hafðu allt þitt á hreinu. Þú situr við stýrið í þínu lífi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu nú að vinna draumum þínum brautargengi því þú hefur byrinn með þér. Sælgæti, eftirréttir og sælkerafæði eru freistingar sem erfitt er að standast. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gott er að stunda hreyfingu og lesa til þess að auka þekkinguna. Leyfðu þér að vera til. Ekki setja einhvern á stall sem á ekki heima þar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk mun sýna þér stuðning. Gerðu nú viðeigandi ráðstafanir svo þú komist hjá því að lenda í rifrildi við ná- grannann. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einbeittu þér að hverju verkefni fyrir sig og leystu þau eitt af öðru. Ekki setja þig á háan hest gagnvart öðrum. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hallir og hús það prýðir. Heyrast það tala lýðir. Rekin í réttarsal víða. Ræða í áheyrn lýða. „Þá er það lausnin,“ segir Harpa á Hjarðarfelli: Mun það vera mál-verk. Málið tungunnar. Mörg þar eru mál sterk. Málið rætt er þar. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Mál skal rétt á múr og dúk, en mál, ein fimm, kann Skapti, og höfðar mál gegn Hönnu og Luke, sem hóf sitt mál af krafti. Helgi Seljan svarar: Málning prýðir höll sem hús, heiðra skulum íslenzkt mál. Við málaferli er margur dús, málin rædd af lífi og sál. Helgi R. Einarsson svarar: Hallir, tungur, ræður, réttir reyna að tendra bálið. Glæður myndast, loks mér léttir. Lausnin hún er málið. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Mál sjáum hús og hallir prýða. Hljómar mál á vörum lýða. Mál í réttarsal rekin víða. Rétt er á þingmanna mál að hlýða. Þá er limra: Mælti það Málfríður Sunna, að málstirðum erki klunna, þótt vel kýldur væri og vel sig bæri, aldrei skyldi hún unna. Og síðan er ný gáta eftir Guð- mund: Meðan ennþá allt er hljótt, upp til verka rís ég fljótt, létta gátu læt í té, lítilsvirði þótt hún sé: Skoppar hafsins öldum á. Innst í búri finna má. Eggskurn, þar sem unginn lá. Undir rúmi mátti sjá. Vísan lifir, – Jón Gissurarson yrkir: Meðan engin andleg mein ennþá taka völdin fæðist vísa ein og ein aðallega á kvöldin. Ármann Þorgrímsson yrkir um götunöfn í höfuðborginni: Ef ég sækja ætla um lóð ekki um nafnið skeyti þó finnst mér alltaf Fíflaslóð fagurt götu heiti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fleiri koma mál en bjúgu Í klípu „VIÐ ÞURFUM AÐ KANNA HVAÐ LEIDDI TIL ÞESSARAR KULNUNAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PABBI ÆTLAR AÐ SKIPTA Á BARNINU. ÉG VONA AÐ HANN FÁI HUND Í STAÐINN!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar prófílarnir ykkar passa fullkomlega saman. DÆS ÞAÐ ER TÍMABÆRT AÐ FARA Í FRÍ, EKKI SATT, ODDI? ÉG ÆTLA AÐ GEFA MÉR STÆRRI HLUTA AF GÓSSINU, ÞVÍ AÐ STARFIÐ MITT ER ERFIÐARA! HVERNIG ÞÁ? ÉG ÞARF AÐ HALDA HELGU GÓÐRI! Ó, JÁ! Víkverji er hlynntur nýyrðasmíði.Það er þó ekki gefið að ný orð festi sig í sessi og stundum þarf nokkrar atrennur til að finna rétta orðið. Dæmi um vel heppnuð nýyrði eru vel kunnug. Eitt það þekktasta er sími. Hefði sama leið verið farin og víðast hvar annars staðar væri hér talað um telefón. x x x Víkverji rakst í vikunni á orðiðsýndarfé. Það var ekki í um- ræðu um landbúnað og kjötfjöll, heldur kom fyrir í frétt hér í Morg- unblaðinu um að Fjármálaeftirlitið hefði „tekið til skráningar fyrsta fyr- irtækið hér á landi sem heimild hef- ur til að veita þjónustu í tengslum við viðskipti „milli sýndarfjár, raf- eyris og gjaldmiðla“, eins og það er orðað í tilkynningu frá stofnuninni“. x x x Orðið sýndarveruleiki er orðiðtungutamt, en Víkverji er ekki viss um að það gangi upp að tala um „sýndarfé“ og óttast að þarna hafi merking skolast til. Í huga Víkverja er forskeytið „sýndar“ notað um eitthvað, sem ekki er, en virðist þó vera og minnir hann á töfrabrögð og brellur. x x x Víkverji myndi ekki sætta sig viðsýndarmat á veitingastað. Hann gæti hins vegar örugglega borgað fyrir sýndarmat með sýndarfé og yrði jafnsvangur eftir sem áður, en tæplega alvörumat. x x x Að sama skapi myndi Víkverji ekkivilja kaupa sýndarfé fyrir krón- urnar sínar. Hann er meira gefinn fyrir raunfé, hvort sem hann hefur í höndum myntir og seðla eða getur gengið að því vísu með rafrænum hætti. x x x Í fréttinni var talað um rafeyri ogáttar Víkverji sig ekki á hvers vegna það dugi ekki, en sé merking- armunur á rafeyri og sýndarfé þurfa þeir sem sýsla með slíka gjaldmiðla að finna nýyrði yfir það síðarnefnda, sem merkir eitthvað annað en platfé. vikverji@mbl.is Víkverji En vér, lýður þinn og gæsluhjörð, munum þakka þér um aldur og ævi, syngja þér lof frá kyni til kyns. (Sálmarnir 79.13)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.