Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 48

Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Á plötunni, Influence of buildings on musical tone, sem útleggst á ís- lensku, Áhrif ómrýma á tónlist- arlegri hugsun, er að finna fimm kammerverk sem ég samdi á ár- unum 2013 til 2016. Verkin eru samin fyrir ólík tilefni en koma nú saman á einni plötu,“ segir Þráinn Hjálmarsson tónskáld um sína fyrstu plötu sem gefin er út af CARRIER Records í New York. Platan kom út í gær og verður út- gáfunni fagnað í Mengi í dag kl. 15. „Samtalið við flytjendur, hljóð- færi og tilefni verkanna hefur ávallt haft sterka rödd í sköpun- arferli verka minna. Í öllum hlut- um leynist rödd sem við eigum í stöðugu samtali við meðvitað og ómeðvitað. Tónlistin sprettur fram upp úr þessu samtali okkar við umhverfi okkar, við rými, hljóð- færi, afstöðu við áheyrendur og upp úr lestri okkar í tónlist ann- arra. Tónlistin er falin í skynjun okkar á umheiminum. Þessi plata er hálfgerður minnisvarði um nokkur frjó og ólík samtöl við þessa flytjendur og tilefnin,“ segir Þráinn. Opnunarverk plötunnar, „Áhrif ómrýma á tónlistarlegri hugsun“, er flutt af CAPUT hópnum og opn- ar plötuna kröftuglega, að sögn Þráins sem segir að með verkinu, sem hann samdi fyrir Tectonics- hátíð Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2013, sé hann að hugleiða áhrif ómrýma á tónlistarlega hugs- un. Þátt ómmikilla rýma í tónlist- arsögunni, þar sem sönghefðir hefðu þróast í samtali við ómmikil rými kirkna framan af. „Þurr hljóðvist torfkofans réð ríkjum lengst af hér á landi og verkin voru innblásin af hljóðvist torfkofans svo að úr varð smágerð- ur og þurr hljóðvefur. Mig langaði til þess að færa hljóðheim torfkof- ans inn í Eldborgarsal Hörpu,“ segir Þráinn „Annað verk plötunnar „Gris- aille“ er samið í samtali við Ís- lenska flautukórinn og Sigurð Guð- jónsson myndlistarmann. Verkið er jafnframt hluti af myndbands- verki Sigurðar „Lágmynd“. Þar sem verkið var hugsað sem hluti af verki Sigurðar þurfti að veita hin- um sjónræna þætti myndbands verksins rými og því er sem tíminn standi í stað í tónverkinu,“ segir Þráinn. Þriðja verk plötunnar „Persona“ er flutt af Kristínu Þóru Karls- dóttur. „Verkið sem er íhugult og lágstemmt er klæðskerasniðið fyr- ir Kristínu,“ segir Þráinn sem samdi verkið 2014 og frumflutt var á Tectonics-hátíðinni í Glasgow. Óráðin sena í leikriti Fjórða verk plötunnar „Mise-en- scène“ flytur kammerhópurinn Ensamble Adapter sem skipaður er að mestu íslenskum flytjendum búsettum og starfandi í Berlín. „Verkið er einhvers konar sviðs- mynd fyrir óráðna senu úr leikriti. Það er engin aðalpersóna og í raun engin skýr atburðarás,“ segir Þrá- inn og bætir við að lokaverk plöt- unnar hafi verið samið fyrir Myrka músíkdaga árið 2016. „Verkið heitir „Lucid/Opaque“ og er flutt af Nordic Affect. Verkið er hálfgegnsætt og nokkuð ágengt í ofureinfaldleika sínum. Smágerð tilbrigði í tónlist sem skilja eigin- lega bara eftir hlustun og skynjun. Hér er búið að skera niður inn að beini og tónlistin er ein eftir án nokkurs yfirborðs. Slíkt ýtir við manni á lúmskan hátt,“ segir Þrá- inn. Framundan er flutningur á nýju óperuverkefni sem flutt verður á tón- og myndlistarhátíðinni Cycle í Kópavogi í október í samráði við hönnuðina og listamennina Brynj- ar Sigurðsson og Veroniku Sedl- mair. Ljósmynd/Laufey Jakobsdóttir Sú fyrsta Þráinn Hjálmarsson gaf út sína fyrstu plötu í gær. Ýmsir listamenn flytja kammerverk sem Þráinn samdi á árunum 2013-2016. „Þurr hljóðvist torf- kofans réð ríkjum“  Fimm kammerverk á fyrstu plötunni Nýjar hendur - Innan seilingar Bíó Paradís 18.00 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Bíó Paradís 22.00 Kvíðakast Bíó Paradís 18.00, 22.15, 22.20 Söngur Kanemu Bíó Paradís 20.00 Whitney Bíó Paradís 17.40, 17.45, 20.00 Utøya 22. júlí Bíó Paradís 22.00, 22.20 The Nun 16 Presturinn séra Burke er sendur til Rómar til að rann- saka dularfullan dauðdaga nunnu. Metacritic 55/100 IMDb 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.10, 17.40, 19.30, 20.00, 21.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 17.30, 19.40, 21.50, 22.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 17.40, 20.00, 22.20 Lof mér að falla 16 Þegar 15 ára Magnea kynn- ist 18 ára Stellu breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Laugarásbíó 16.45, 19.50, 22.40 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.40 KIN 12 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40 Alpha 12 Metacritic 63/100 IMDb 7,0/10 Borgarbíó Akureyri 22.00 Crazy Rich Asians Þegar Rachel Chu fer með kærastanum til Singapore til að vera viðsödd brúðkaup kemst hún að því að hann á fáránlega ríka fjölskyldu með myrka sögu. Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Akureyri 19.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Mile 22 16 Hér segir frá sérsveitar- manninum James Silva sem fær það erfiða og vanda- sama verkefni að smygla as- ískum lögreglumanni úr landi sínu., en sá hafði leitað til bandaríska sendiráðsins um vernd þar sem hann býr yfir leynilegum upplýsingum. Laugarásbíó 22.40 The Spy Who Dumped Me 16 Audrey og Morgan eru bestu vinkonur sem lenda óvænt í njósnaævintýri eftir að önn- ur þeirra kemst að því að fyrrverandi kærastinn henn- ar er í raun njósnari. Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 Össi Össi er mjög heppinn hund- ur. Hann býr hjá góðri fjöl- skyldu sem elskar hann af- skaplega mikið og lifið er gott. En einn góðan veð- urdag fer fjölskyldan í ferða- lag og skilur Össa eftir í pössun. Laugarásbíó 17.00 Sambíóin Keflavík 17.50 Christopher Robin Christopher Robin hittir skyndilega gamlan vin sinn Bangsimon, og snýr með honum aftur í ævintýraheim bernskunnar. Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.10 Sambíóin Akureyri 17.15 Hin Ótrúlegu 2 Helen Teygjustelpu er boðið nýtt starf sem hún getur ekki hafnað. Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að þá annast Jack-Jack, Dash og Violet á meðan Teygjustelpa , fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð. Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 21.30 Sambíóin Akureyri 22.00 Sambíóin Keflavík 22.30 The Meg 12 Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lær- ir um fortíð móður sinnar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 16.30, 20.00 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verk- efni misheppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30 Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio 13.09.18 kl. 20:30 ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON – LADDI SALURINN Hamraborg 6 200 Kópavogi 44 17 500 salurinn.is AF FINGRUM FRAM með Jóni Ólafssyni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.