Morgunblaðið - 10.09.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 211. tölublað 106. árgangur
TEIKNARINN
TJÁIR SIG Í
MYNDUM
FJÖLBREYTT
FLUGSÝNING Í
REYKJAVÍK
KVENNALIÐ
BREIÐABLIKS
ER Í KJÖRSTÖÐU
DAGLEGT LÍF 12 ÍÞRÓTTIR 6ELÍN ELÍSABET 26-27
Mikil óvissa ríkir í sænskum stjórn-
málum eftir þingkosningar þar í
landi í gær. Þótt Sósíaldemókratar
séu enn stærsti þingflokkurinn eftir
kosningar, þar sem hann fékk 28,4%
fylgi, eru þetta verstu kosninga-
úrslit í sögu flokksins.
Enn er óvíst hvort vinstrifylking-
in, kosningabandalag vinstriflokka
undir forystu Sósíaldemókrata, eða
hægribandalagið, kosningabandalag
mið- og hægriflokka undir forystu
Hægriflokksins Moderaterna, verð-
ur stærra þegar öll atkvæði hafa
verið talin. Báðar fylkingarnar voru
með rúmlega 40% akvæða en Sví-
þjóðardemókratarnir, sem eru utan
bandalaganna, fengu 17,6% atkvæða
og bættu við sig 4,7 prósentustigum
frá síðustu kosningum. Ekki er búið
að telja utankjörstaðaratkvæði og
gætu þau ráðið úrslitum um hvor
fylkingin verður stærri.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, segir að staða mála sé að
miklu leyti svipuð og árið 2014 þar
sem fylkingarnar tvær séu svipaðar
að stærð og Svíþjóðardemókratarn-
ir í oddastöðu. Fyrir fjórum árum
hafi fylkingarnar ákveðið að láta
sem ekkert hefði breyst í sænskum
stjórnmálum segir Ólafur, en að
þessu sinni sé óljóst hver niðurstað-
an verður.
Stefan Löfven, forsætisráðherra
og leiðtogi Sósíaldemókrata, bauð í
gærkvöldi stjórnarandstöðunni til
viðræðna um ríkisstjórnarsam-
starf.
„Það er ljóst að enginn hefur
fengið meirihluta og því er eðlilegt
að vinna saman þvert á fylkingar,“
sagði Löfven þegar hann ávarpaði
stuðningsmenn flokksins á kosn-
ingavöku í gærkvöldi. Þá var útlit
fyrir að vinstrifylkingin hefði eins
þingsætis forskot á hægribanda-
lagið.
Hnífjafnt í Svíþjóð
AFP
Fagnað Stuðningsmenn Sósíaldemókrata fögnuðu ákaft, en flokkurinn verður stærsti flokkur á sænska þinginu þrátt fyrir mikið fylgistap.
Sósíaldemókratar stærsti þingflokkurinn þrátt fyrir verstu kosningaúrslit í sögu
flokksins Svíþjóðardemókratar gætu verið í oddastöðu við stjórnarmyndun
0
5
10
15
20
25
30
Staðan klukkan 23 í gærkvöldi
Aðrir flokkar: 34,2%
Þingkosningar í Svíþjóð
Sósíaldemókratar Svíþjóðar-
demókratarnir
Hægriflokkurinn
Moderaterne
28,4%
19,8% 17,6%
MStjórnarmyndun … »15
Um 20% háskólanema
hafa notað örvandi efni
án fengins lyfseðils,
samkvæmt könnun Jönu
Rósar Reynisdóttur,
deildarstjóra
upplýsingadeildar
Lyfjastofnunar. Flestir
þeirra nota lyfin í þeirri
von að geta einbeitt sér
betur við undirbúning
prófa.
Jana segir niðurstöðurnar
áhyggjuefni, enda sé gild ástæða
fyrir því að lyfjunum sé ávísað til
persónulegra nota.
Jana ræddi einnig við háskóla-
nemendur sem nota
ávanabindandi lyf en að
þeirra sögn er algeng-
ast að þeir afli lyfjanna
hjá einhverjum sem hef-
ur fengið þau með lög-
mætum hætti.
Ný reglugerð
Vonir eru bundnar
við að neysla ávana-
bindandi lyfja muni minnka í kjöl-
far nýrrar reglugerðar velferð-
arráðuneytisins. Samkvæmt henni
má einungis ávísa ávana- og fíkni-
lyfjum rafrænt, frá og með 1.
september. »9
Örvandi lyf notuð til að
auka námsárangur
Staða Íslands, Færeyja og Græn-
lands kann að gjörbreytast og tæki-
færi opnast þeim þegar siglinga-
leiðin um norðurpólinn til Kyrra-
hafsins verður fær. Löndin og
þjóðirnar sem þau byggja geta þá
fengið meira vægi í heimsmálunum
en verið hefur.
Þetta segir Bryndís Haralds-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks
og fulltrúi í vestnorræna þing-
mannaráðinu. Ársfundur þess var í
sl. viku í Þórshöfn í Færeyjum. »6
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Færeyjar Byggingar á Þinganesi.
Vestnorræn
lönd eru í
nýrri stöðu
Engar tillögur
sem snerta Ís-
land og íslenskar
hvalveiðar beint
liggja fyrir árs-
fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins
sem hefst í Bras-
ilíu í dag, en bú-
ast má við að þar
verði hefð-
bundin átök á milli þeirra ríkja sem
vilja að slakað verði á banni við
hvalveiðum í atvinnuskyni og hinna
sem vilja að bannið gildi áfram.
Stefán Ásmundsson, formaður ís-
lensku sendinefndarinnar, segir að
helsta mál þessa fundar sé tillaga
um veiðiheimildir til sjö ára fyrir
svokallaðar frumbyggjaveiðar
Bandaríkjanna, Rússlands, Græn-
lands og St. Vinsent og Grenadín-
eyja. Vísindanefnd ráðsins hafi
staðfest að þessar veiðar séu sjálf-
bærar fyrir viðkomandi hvala-
stofna og því muni Ísland styðja til-
löguna. »16
Engar tillögur um
Ísland á hvalafundi
Hnúfubakur stekkur
Magnús Geir Þórðarson, útvarps-
stjóri RÚV, segir að RÚV hafi í
gegnum árin opnað aðstöðu sína eft-
ir fremsta megni þegar eftir því hef-
ur verið óskað og aðstoðað með
leigu á tækjum og leikmunum. Hann
segir að flest framleiðslufyrirtækin
hafi nýtt sér þessa þjónustu og þetta
skref nú sé að einhverju leyti eðli-
legt framhald af því. „Markmiðið nú
er að formfesta þessa þjónustu og
miðla í anda gagnsæis og jafnræðis,
á svipaðan hátt og t.d. BBC gerði ný-
verið,“ segir Magnús um eininguna
RÚV-stúdíó. Að auki sé myndverið í
Efstaleiti eina fjölmyndavéla-
myndver landsins sem RÚV vilji að
fleiri geti nýtt. »2
Markmiðið að form-
festa þjónustuna
Fulltrúar stjórnvalda funduðu nú
um helgina vegna málefna flug-
félagsins WOW air. Þetta herma
heimildir Morgunblaðsins innan úr
stjórnarráðinu. Forsvarsmenn fyr-
irtækisins róa nú að því öllum árum
að tryggja að lágmarki 50 milljóna
dollara fjármögnun til handa starf-
seminni. Jafngildir sú upphæð 5,6
milljörðum króna.
Líkt og fram kom í fjölmiðlum
nýlega vinna fulltrúar fjögurra
ráðuneyta að viðbragðsáætlun
vegna hugsanlegra áfalla í rekstri
mikilvægra fyrirtækja. Eru það full-
trúar frá forsætisráðuneyti, fjár-
málaráðuneyti, atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneyti og samgöngu-
ráðuneyti.
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
hjá Sigtryggi Magnasyni, aðstoðar-
manni samgönguráðherra, um hvort
fulltrúar fyrrgreindra ráðuneyta
hefðu setið fundina um helgina.
Hann vildi hins vegar ekki staðfesta
að þessir fundir hefðu farið fram.
Fyrrnefndir heimildamenn Morgun-
blaðsins segja að stjórnvöld vænti
fregna af skuldabréfaútgáfu WOW
air á morgun, þriðjudag. ses@mbl.is
Funduðu um stöðu
WOW air um helgina
Tíðinda sagt að vænta á þriðjudag