Morgunblaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
*M
ið
að
vi
ð
u
p
p
g
ef
n
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
u
m
el
d
sn
ey
ti
sn
o
tk
u
n
íb
lö
n
d
u
ð
u
m
ak
st
ri
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
7
0
4
9
www.renault.is
Þú tankar sjaldnar
á Renault sendibíl
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð:2.250.000 kr. án vsk.
2.790.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL
Verð frá:3.024.000 kr. án vsk.
3.750.000 kr.m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULTMASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá:3.750.000 kr. án vsk.
4.650.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
Minjastofnun Íslands hefur gert
fjölmargar athugasemdir við frum-
varp til laga um þjóðgarðastofnun,
sem er til kynningar af hálfu um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Stofnunin vekur athygli á að hún
hafi ekki haft aðkomu að frum-
varpsgerðinni þótt verið sé að fjalla
um stjórnunar- og verndaráætlanir
fyrir menningarminjar á landflæmi
sem þeki um 20% landsins.
Vandað sé til verka
Í niðurlagi ítarlegrar grein-
argerðar með athugasemdunum
segir meðal annars: „Minjastofnun
ber ábyrgð á minjavörslu í landinu í
umboði mennta- og menningar-
málaráðherra og hefur forræði á
allri ráðstöfun í tengslum við minj-
ar. Nú er það mennta- og menning-
armálaráðuneytið sem fer með
stjórn málaflokksins, en ekki er að
sjá að haft hafi verið samráð við
það ráðuneyti við gerð frumvarps-
ins. Minjastofnun fær ekki séð
hvernig ráðuneyti sem hefur ekki
umsjón með menningarminjum á
Íslandi getur samið lög sem snertir
verulega þann málaflokk …
Minjastofnun Íslands telur það
mikilvægt að vandað sé til verka og
hin nýju lög verði ekki til þess að
flækja umhverfi minjavörslunnar
og skapa óvissu um valdsvið og
hlutverk stofnana eins og yrði ef
ekki verður unnið betur með frum-
varpið og því í raun umbylt.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðgarður Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er fjölsóttur allt árið um kring.
Skapi ekki óvissu
um vald og hlutverk
Frumvarp um þjóðgarðastofnun gagnrýnt
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Stór hluti íslenskra háskólanema
virðist nota örvandi efni og er al-
gengast að tilgangurinn sé að
bæta frammi-
stöðu í námi.
Jana Rós
Reynisdóttir,
deildarstjóri
upplýsingadeild-
ar Lyfjastofnun-
ar, vann nýlega
verkefnið Lyfja-
notkun stúdenta
á Íslandi í dipl-
ómanámi sínu í
vefmiðlun við
Háskóla Íslands. Þar gerði hún
könnun á neyslu íslenskra háskóla-
nema á lyfseðilsskyldum lyfjum en
niðurstöðurnar eru fremur sláandi.
Svarendur voru 1.145 en fram kom
að 20% þeirra hefðu notað lyfseð-
ilsskyld lyf án þess að læknir ávís-
aði þeim til viðkomandi.
Efni notuð í prófatörn
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur fram að af þeim 20% sem
nota lyfseðilsskyld lyf án ávísunar
nota flestir lyfin til að auka ein-
beitingu til að bæta námsárangur
eða 29%. Næstflestir sögðust nota
lyfin einungis í prófaundirbúningi
eða 28%. Færri notuðu lyfin í af-
þreyingarskyni, til þess að minnka
svefnþörf eða til þess að auka ein-
beitingu í aðstæðum ótengdum
skóla.
Grein sem birtist í Stúdenta-
blaðinu í apríl 2016, „Það eru allir
að taka þetta“, dró fram algengi
lyfjanotkunar stúdenta og var
Jönu innblástur til að fjalla um
lyfjanotkun stúdenta og kanna
hana. Í greininni birtust nafnlaus
viðtöl þar sem notendur ávana-
bindandi lyfja sögðu frá reynslu
sinni og algengi þess að örvandi
lyf væru tekin til að auka náms-
árangur.
Í tveggja ára grein Stúdenta-
blaðsins segja nafnlausu viðmæl-
endurnir að mjög auðvelt sé að fá
lyfseðil fyrir ávanabindandi lyfjum
án þess að sjúkdómsgreining eigi
sér stað. Í verkefni sínu talaði
Jana jafnframt við nemendur sem
hafa notað örvandi lyf en koma
ekki fram undir nafni. Aðspurð
segir Jana svör sinna viðmælenda
hafa verið á annan veg: „Enginn
sem ég ræddi við hafði fengið lyfj-
unum ávísað án þess að vera með
greiningu. Mínir viðmælendur
höfðu allir fengið lyfin í gegnum
annan aðila sem var með greiningu
og fékk lyfinu ávísað með lögmæt-
um hætti,“ segir Jana.
Neyslan áhyggjuefni
„Niðurstöður könnunarinnar eru
áhyggjuefni. Lyfjum eins og Con-
certa og Rítalín er ávísað til per-
sónulegra nota og af því leiðir að
það má ekki gefa þau eða selja
öðrum. Í hvert sinn sem læknar
ávísa lyfjum framkvæma þeir ítar-
legt mat til þess að ganga úr
skugga um að lyfið henti viðkom-
andi sjúklingi.“
Öllum ávana- og fíknilyfjum ber
nú að ávísa rafrænt, að því er fram
kemur í reglugerð velferðarráðu-
neytisins, sem tók gildi 1. sept-
ember síðastliðinn. Jana segir að
vonir séu bundnar við að reglu-
gerðin muni draga úr notkun örv-
andi efna, auk þess sem rekjan-
leiki ávísana muni aukast.
Fimmtungur háskóla-
nema notar örvandi efni
Flestir segjast nota efnin til þess að bæta námsárangur
Morgunblaðið/Frikki
Lyf Rítalín er örvandi lyf og er
nokkuð algengt að það sé misnotað.
Jana Rós
Reynisdóttir