Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Kvosin, félag sem beitir sér fyrir um- hverfisvernd á samnefndu svæði í miðborg Reykjavíkur, telst ekki eiga lögvarða hagsmuni til að standa að kæru um lögmæti deiliskipulags- breytingar á Landsímareit eða vegna samþykktar byggingarleyfis á reitn- um. Þetta var niðurstaða úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlindamála á fundi í síðustu viku. Vísaði nefndin málinu frá af þeim sökum. Félagið Kvosin fer fyrir hópi fólks sem andmælt hefur fyrirhugaðri hót- elbyggingu í hluta hins forna Víkur- kirkjugarðs við Kirkjustræti. For- maður félagsins er Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis. Hefur lögmaður félagsins, Ragnar Aðalsteinsson, reynt að fá leyfisveit- ingum borgaryfirvalda hnekkt en ekki orðið ágengt. Í niðurstöðu útskurðarnefndar er bent á að þeir einir geti kært stjórn- valdsákvarðanir sem eigi lögvarða hagsmuni tengda ákvörðun sem kæra á. Til samræmis við aðildarhugtak stjórnsýsluréttarins hafi þetta skil- yrði verið túlkað svo að þeir einir telj- ist eiga lögvarða hagsmuni sem eigi beinna og einstaklegra hagsmuna að gæta af úrlausn máls umfram aðra. Umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtökum, sem uppfylla tiltekin skilyrði og hafa þann tilgang að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, sé þó heimilt að kæra til nefndarinnar nánar tilgreindar ákvarðanir sem sérstaklega séu til- greindar í lögum. Sé þar um að ræða ákvarðanir Skipulagsstofnunar sam- kvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, ákvarðanir sveitarstjórna um matsskyldu framkvæmda, leyfis- veitingar vegna framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfis- áhrifum og ákvarðanir um að veita til- greind leyfi samkvæmt lögum um erfðabreyttar lífverur. „Í máli þessu eru kærðar ákvarð- anir um breytingu á deiliskipulagi og veitingu byggingarleyfis, en þær ákvarðanir falla ekki undir nefnd undantekningarákvæði og verður að- ild kæranda ekki á því reist, enda hef- ur mat á umhverfisáhrifum ekki farið fram,“ segir úrskurðarnefndin. Úr- skurðarnefndin bendir á að tilgangur Kvosarinnar sé að gæta almanna- hagsmuna og byggist kæra félagsins fyrst og fremst á slíkum hagsmunum, en ekki verði séð að þau eigi einstak- lega og lögvarða hagsmuni tengda hinum kærðu ákvörðunum umfram aðra, líkt og krafa sé gerð um í lögum. Félagið á ekki lögvarða hagsmuni Morgunblaðið/Hari Landsímareitur Hluti gamla kirkjugarðsins var innan gulu girðingarinnar.  Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísar frá kæru Kvosarinnar vegna Landsímareits  Uppfyllir ekki skilyrði sem tilgreind eru í lögum  Snýst um hótelbyggingu í gamla kirkjugarðinum Deilt um Landsímareit » Hópur fólks er ósáttur við byggingu hótels í hluta elsta kirkjugarðs Reykjavíkur við Kirkjustræti. » Félagið Kvosin var stofnað til að beita sér fyrir umhverf- isvernd í miðborginni. » Deilt hefur verið um rétt borgaryfirvalda til að heimila bygginguna. » Öll leyfi hafa fengist til framkvæmda við hótelbygg- inguna og eru þær hafnar. 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900,- ORMSSON.IS LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900,- 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill· Mjög auðveld í notkun Verð kr. 79.900,- XE-A217BXE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ár á Íslandi VæNtANLE GuRVerð kr. 74.900,- Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á síðasta fundi skipulags- og sam- gönguráðs Reykjavíkur var kynnt tillaga að breyttri hönnun á göt- unni Steinbryggju. Gatan liggur á milli Tryggvagötu og Geirsgötu, milli Tollhússins og nýrra stór- bygginga á Hafnartorgi. Þessi götuspotti tilheyrði áður Póst- hússtræti. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa staðið yfir endur- bætur á Tryggvagötu. Við fram- kvæmdirnar var grafið niður að hinni fornfrægu steinbryggju sem hafði farið undir landfyllingu árið 1940. Bryggjan er friðuð og reyndist hún vera í góðu ástandi. Hætt við að moka yfir Upphaflega hugmyndin var sú að mokað yrði yfir bryggjuna á nýjan leik. En nú hefur umhverfis- og skipulagssvið komið með tillögu um að bryggjan verði gerð sýnileg til frambúðar. Fyrstu drög að út- færslu voru kynnt á fundinum á miðvikudaginn. „Þetta eru frum- drög og við eigum eftir að skoða þetta betur en í þessari tillögu eru stallar niður að bryggjunni sem mynda dvalarsvæði,“ segir Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður hjá umhverfis- og skipulagssviði. Svæðið sem yrði sýnilegt er rétt austan við Tollhúsið (Kolaportið). Edda ítrekar að tillagan sé enn á vinnslustigi og geti tekið breyt- ingum. Efsti hluti steinbryggjunnar er undir Tryggvagötunni og getur því ekki orðið sýnilegur. Bryggjan liggur skáhallt meðfram Tollhús- inu í norðurátt og lækkar. Á fundi skipulags- og sam- gönguráðs gerðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftirfarandi bókun: „Það er ánægjulegt að sjá fyrstu hugmyndir um breytta hönnun á svæðinu, varðveita stein- bryggjuna og gera hana sýnilega eins og borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins hafa lagt til. Stein- bryggjan er í góðu ástandi og hef- ur mikið sögulegt gildi fyrir borgina, ferðamenn og borg- arbúa.“ Fulltrúi Pírata, Samfylkingar- innar og Viðreisnar bókuðu: „Það er ánægjulegt að sjá hversu vel steinbryggjan hefur varðveist í tímans rás. Á þessum stað bankar sagan upp á og vissu- legt fagnaðarefni að geta mætt henni svo vel. Af þessum sökum fagna fulltrúar Pírata, Samfylk- ingar og Viðreisnar framlagðri til- lögu umhverfis og skipulagssviðs um varðveislu hennar.“ Ljósmynd/Reykjavíkurborg Steinbryggjan Þessi mynd sýnir vel hvernig bryggjan liggur í jörðu, rétt austan við Tollhúsið (Kolaportið). Þarna verður hún sýnileg áfram. Steinbryggjan verður sýnileg  Tillagan er enn á vinnslustigi Emil Thorarensen Eskifirði Karl Óttar Pétursson, nýr bæjar- stjóri Fjarðabyggðar, segir að starfið hafi byrjað vel og frábært starfsfólk sé á hverju strái. Karl Óttar gegnir bæjarstjóra- starfi í fjölmennasta sveitarfélaginu á Austurlandi, sem nær frá Mjóafirði yfir Neskaupstað, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og til Breiðdalsvíkur og íbúafjöldinn telur rúmlega fimm þús- und manns. Hann tók til starfa 13. ágúst, eftir að hafa verið valinn úr hópi sjö um- sækjenda. Í sl. bæjarstjórnarkosn- ingum féll meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks og nýr meirihluti Fjarðalistans og Framsóknarflokks var myndaður eftir sveitarstjórnar- kosningarnar. Í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins kom fram að Karl Óttar er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Stundaði nám við Menntaskólann að Laugarvatni, er menntaður lögfræð- ingur frá Háskóla Íslands og hefur auk þess BA-próf í sagnfræði. Sam- býliskona Karls Óttars er Helga Dóra Jóhannesdóttir. Karl Óttar hefur ekki til þessa tek- ið þátt í pólitísku starfi. Síðustu árin hefur hann starfað sem lögfræðingur hjá Arion banka við að endurskipu- leggja fjármál fyrirtækja og ein- staklinga. Enn fremur hefur Karl Óttar verið framkvæmdastjóri sífellt vinsælli sumarhátíðar Eistnaflugs í Neskaup- stað. Spurður um merkingu á þessu nafni Eistnaflug, sem enginn eða fáir hafa hugmynd um hvað þýðir, gefur hann svarið umbúðalaust: Einfald- lega til að grínast, djók sett til höfuðs Neistaflugi. Færið bara N í Neista- flugi aftar í orðið = Eistnaflug. Nýr bæjarstjóri segir starfið byrja vel Morgunblaðið/Emil Bæjarstjóri Karl Óttar Pétursson, nýr bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.