Morgunblaðið - 10.09.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 10.09.2018, Síða 14
um náð að koma á samningum við nýja og mjög góða viðskiptavini og svo bættist írska félagið Ocean- path við í marsmánuði.“ Að sögn Helga er markmiðið með kaupunum á Oceanpath og Solo Seafood m.a. að styrkja stöðu ISI á nýjum mörkuðum og einnig að bæta reksturinn með samþætt- ingu. „Kaupin á Oceanpath færðu okkur mjög vel rekið fjölskyldu- fyrirtæki sem annars vegar er stærsti seljandi ferskra sjávaraf- urða í smásölu á Írlandi og hins vegar umfangsmikið í reyktum sjávarafurðum og sælkeraafurðum úr sjávarfangi. Um leið nýtur fé- lagið góðs af samböndum okkar um allan heim og þeim aðföngum sem við nýtum frá Íslandi og öðr- um löndum,“ útskýrir Helgi. „Þeg- ar gengið hefur verið frá kaup- unum á Solo Seafood verðum við komin í enn sterkari stöðu á mjög svo mikilvægum markaði fyrir þorskafurðir í Suður-Evrópu um leið og við fáum geysilega öflug fé- lög inn í eigendahóp Iceland Sea- food.“ Vöxtur Iceland Seafood miðar líka að því að dreifa áhættu. „Í dag erum við með starfsemi í sjö löndum og eigum því ekki allt und- ir því hvernig einn stakur mark- aður þróast, t.d. á Bretlandi, Ír- landi, Spáni eða Þýskalandi.“ Sjávarafurðir sækja á Spurður út í framtíðarhorfurnar segir Helgi allar líkur á að eftir- spurn eftir fiski muni aðeins halda áfram að aukast. „Fiskur er prót- íngjafi sem neytendur eru mjög áhugasamir um og skýrist það bæði af aukinni heilsuvitund og umhverfissjónarmiðum. Ég sé það á unga fólkinu í kringum mig að það hefur önnur gildi sem neyt- endur og sjávarafurðir falla vel að þessum gildum. Við sjáum fjöl- mörg tækifæri til frekari vaxtar í framtíð enda neysla á sjávar- afurðum sterk og krafa neytenda um gæði, áreiðanleika og ábyrgar afurðir sífellt að aukast.“ Staðan á Evrópumarkaði gefur tilefni til bjartsýni. Segir Helgi að efnahagsástand álfunnar virðist stöðugt og löndin í Suður-Evrópu á réttri leið. „Í Bretlandi breyttist kauphegðun neytenda eftir Brexit með þeim hætti að þeir færðu sig að einhverju leyti úr ferskum fisk- afurðum yfir í frosnar. Við gátum lagað okkur að því og brugðumst við veikingu pundsins með ýmsum hætti, t.d. því að kaupa afurðir í vaxandi mæli frá svæðum eins og Barentshafi þar sem verð var lægra,“ segir Helgi en auk Íslands kaupa fyrirtæki ISI sjávarafurðir frá tugum landa um allan heim. Helgi er líka mjög áhugasamur um vaxtartækifæri í Asíu og segir harðnandi tollastríð Kína og Bandaríkjanna geta komið sér vel fyrir ISI. „Evrópa er okkar hefð- bundni markaður en stóru tæki- færin eru fólgin í því að ná sterk- ari stöðu í Asíu þar sem neysla sjávarafurða hefur aukist mjög á undanförnum árum.“ Helgi viðurkennir að yfirstíga þurfi ýmsar hindranir á mörkuðum á borð við Kína. „Þegar seljendur komu fyrst til Kína og vildu selja þar þorsk ráku þeir sig á að það var einfaldlega ekki til kínverskt orð yfir þessa fisktegund og það gerist ekki á einum degi að okkur takist að kenna kínverskum milli- stéttarfjölskyldum að borða hnakkastykki,“ segir hann og bendir m.a. á að sú hefð sé mjög rík í kínverskri matseld að fiskur sé matreiddur heill. „Í þessum heimshluta stækkar millistéttin um tugi milljóna manna ár hvert og er um að ræða hóp með góða kaupgetu sem vill tileinka sér sams konar neysluvenjur og Vest- urlandabúar. Og þegar þessi bolti byrjar að rúlla mun hann bara stækka og stækka.“ Tollastríð BNA og Kína gæti síðan breytt landslagi markaðarins fyrir fiskafurðir enda margir fram- leiðendur sem hafa haft þann hátt- inn á að senda frystar afurðir til Kína til fullvinnslu og svo áfram inn á Bandaríkjamarkað. „Það liggur núna fyrir að bandarísk stjórnvöld hyggjast leggja toll á fisk sem unninn hefur verið í Kína, líkast til strax í október, en enginn veit hvort tollurinn verður 10% eða 25%. Þýðir þetta að íslenskur fiskur ætti að standa þeim mun betur að vígi á Bandaríkjamark- aði.“ Sterkari í S-Evrópu með Solo Seafood  Stefnt að því að Iceland Seafood kaupi Icelandic Iberica  Forstjórinn eygir stór tækifæri í löndum á borð við Kína Kaupmáttur „Þegar þessi bolti byrjar að rúlla mun hann bara stækka og stækka,“ segir Helgi um Kínamarkað. Morgunblaðið/Valli VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Greina má ýmis jákvæð merki í hálfsársuppgjöri Iceland Seafood (ISI). Hagnaður af reglulegri starfsemi jókst um 71% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra og nam 2,2 milljónum evra fyrir skatt. Þá er vonast til að á hluthafafundi sem haldinn verður á morgun, þriðju- dag, verði samþykkt að fela stjórn félagsins umboð til útgáfu nýs hlutafjár til kaupa á Solo Seafood ehf. sem er eigandi spænska fyr- irtækisins Icelandic Iberica og dótturfélaga þess. Núverandi eigendur Solo Sea- food eru útgerðarfélögin Fisk Sea- food, Jakob Valgeir ehf. á Bolung- arvík, Nesfiskur, Hjörleifur Ásgeirsson framkvæmdastjóri Ice- landic Iberica og Sjávarsýn, félag Bjarna Ármannssonar. Helgi Anton Eiríksson forstjóri ISI segir sérstaklega ánægjulegt að standa á þessum tímamótum með félaginu og að markmið sem stjórnendur settu sér um góðan vöxt í núverandi starfsemi ásamt ytri vexti með kaupum sterkra fé- laga gangi vel eftir. Hafa dreift áhættunni Tekjuaukning þessa árs skýrist bæði af aukinni sölu og yfirtökum og segir Helgi að í grófum drátt- um sé hægt að skipta starfsemi fé- lagsins í tvo hluta; sölu og dreif- ingu annars vegar og hins vegar virðisaukandi einingu þar sem sjávarfangi er umbreytt í verð- mætar neytendavörur: „Undan- farin ár höfum við einkum verið að vaxa í virðisaukandi hlutanum, eignast ný fyrirtæki og náð fram góðri samþættingu,“ segir hann en í dag rekur Iceland Seafood fimm verksmiðjur; tvær í Bretlandi, tvær á Írlandi og eina á Spáni en við kaupin á Icelandic Iberica bæt- ast við tvær verksmiðjur. „Sölu- vöxturinn hefur dreifst nokkuð jafnt á milli beggja rekstrarein- inga en hagnaðarvöxturinn hefur orðið mestur í virðisaukandi starf- seminni. Sala hefur aukist, við höf- 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk STUTT ● Niðurstöður ís- lenska hluta nor- rænu frumkvöðla- keppninnar Nordic Startup Awards voru kynntar í lok síðustu viku. Keppt er í fjórtán flokkum og munu sigurveg- arar í hverju landi fyrir sig keppa til úrslita í Kaup- mannahöfn í október. Sigurvegararnir í hverjum flokki eru sem hér segir: Stofnandi ársins: Þor- björg Helga Vigfúsdóttir hjá Kara Connect; sproti ársins og besti heilsu- tæknisprotinn: Kara Connect; besti ný- liðinn og besti samfélagsáhrifasprotinn: PayAnalytics; hetja sprotaumhverf- isins: Brandur Karlsson; besti fjár- tæknisprotinn: Payday; besta aðstaðan fyrir fyrirtæki: Hús Sjávarklasans; fjár- festir ársins: Crowberry Capital; sult- arólarsproti ársins: Genki Instruments; besti vélnámssprotinn: Activity Stream; besti matartæknisprotinn: Jurt Hydro- ponics; besti hraðallinn: Startup Reykjavik; val fólksins: Oliver Luckett. ai@mbl.is Þorbjörg Helga valin stofnandi ársins Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir ● Kínverski milljarðamæringurinn Jack Ma er á förum frá netverslunarrisanum Alibaba Group sem hann stofnaði fyrir tveimur áratugum. Frá þessu var greint um helgina í New York Times. Ma mun þó ekki hætta störfum alveg strax heldur mun hann á mánudag kynna langtímaáætlun um valdaskipti hjá félaginu, sem í dag er metið á um 420 milljarða dala. Að sögn FT mun líða „verulega langur tími“ þar til Ma lætur af störfum sem stjórn- arformaður en árið 2013 fékk hann Daniel Zhang til að taka við framkvæmdastjórastólnum og halda utan um daglegan rekstur félagsins. Jack Ma er í dag í hópi ríkustu manna heims og sagði hann NYT að þegar hann hefði kvatt Alibaba hygðist hann beina kröftum sín- um að menntamálum, en Ma starfaði á sínum tíma sem enskukennari. ai@mbl.is Fararsnið á Jack Ma eftir 20 ár hjá Alibaba Áhrif Jack Ma langar að beita sér á sviði menntamála.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.