Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 23
ÁTVR-verslunum 1990-98. Þórunn
sat í stjórn Landverndar um tíu ára
skeið.
Þórunn hefur verið búsett í
Reykjavík frá 1947. Hún hefur alla
tíð verið mikil útivistarkona og
ferðast bæði innan lands og utan.
Hún fer allra sinna ferða á eigin bíl
eða gangandi þegar svo ber undir
enda létt á fæti.
„Við höfðum ferðast töluvert með
Ferðafélaginu áður en ég hóf þar
störf og eftir að ég hætti þar störfum
slóst ég aftur í hópinn. Ég hef alltaf
haft yndi af ferðalögum um landið,
hef komið í öll byggðarlög landsins,
að Mjóafirði slepptum fyrir austan.
Auk þess tel ég mig þekkja hálendið
býsna vel enda farið um það þvert og
endilangt.“
Var ekki erilsamt að vera fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands?
„Jú, það var í mörg horn að líta
með ferðir og skipulag þeirra og
einnig töluverð vinna við Árbók
Ferðafélagsins. Félagið var stofnað
1927, gaf út fyrstu Árbókina 1928 en
þær eru nú orðnar 90 talsins. Nú er
ég að binda inn Árbækur þess fyrir
sjálfa mig og félagið.
Á þessum árum jókst gífurlega al-
mennur áhugi fólks á göngum í
óbyggðum og hefur aukist stöðugt
síðan.
Þegar Davíð Ólafsson var forseti
félagsins var verið að koma fyrir
göngubrúm á leiðinni milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur. Þá
stakk ég upp á því að nefna þessa leið
Laugaveg og það hefur hún verið
kölluð síðan.“
Fjölskylda
Þórunn giftist 18.10. 1947 Hauki
Bjarnasyni, f. 28.9. 1925, d. 20.8. 2001,
aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, en þar starf-
aði hann í hálfa öld. Foreldrar hans
voru Bjarni Guðnason, húsasmíða-
meistari í Reykjavík, og k.h., Mar-
grét Hjörleifsdóttir húsmóðir. Börn
Þórunnar og Hauks eru: 1) Margrét
Birna, f. 31.10. 1948, en maður henn-
ar er Bjarni Marinósson og eru þau
bændur á Skáney í Reykholtsdal og
eiga þrjú börn, Bryndísi Ástu Birg-
isdóttur, kennara á Suðureyri, en
maður hennar er Bjarni Jóhannsson
vélaútgerðarmaður og þau eiga tvö
börn, Þórunni Birnu og Jóhann Kára;
Hauk, reiðkennara og hrossarækt-
anda á Skáney en kona hans er Randi
Holaker, reiðkennari og hrossarækt-
andi, og þau eiga dæturnar Kristínu
Eiri og Söru Margréti; og Vilborgu,
hársnyrtimeistara og nú bókara hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
búsetta í Reykjavík, en maður henn-
ar er Jón Kristinn Valsson slökkvi-
liðsmaður og þau eiga synina Bjarna
Val og Einar Inga. 2) Lárus Kristinn,
f. 15.10. 1952, starfar við viðskipta-
þróun hjá N1, en kona hans er Helga
Kristín Kristmundsdóttir, móttöku-
stjóri hjá Securitas, og eiga þau fjóra
syni, þá Magnús Hauk, starfsmann
hjá Öskju bílaumboði, en kona hans
er Lovísa Lúðvíksdóttir og þau eiga
tvö börn, Bjarna Hauk og Kristínu
Örnu; Friðrik, sem lést tveggja mán-
aða; Kristin, byggingastjóra hjá
Eykt, en börn hans eru Vilhjálmur
Helgi, Daníel Kári og Andrea Lárey;
og Árna Þór byggingatæknifræðing,
en kona hans er Rún Knútsdóttir og
þau eiga eina dóttur, Þórhildi.
Systkini Þórunnar: Halldóra S.G.,
f. 22.9. 1923 d. 19.3. 2015, húsmóðir í
Reykjavík; Jón Ragnar, f. 11.10.
1924, d. 12.8. 2017, forstjóri Áliðj-
unnar í Kópavogi; Valgeir Leifur, f.
20.3. 1926, d. 29.12. 2009, vélvirki í
Reykjavík; Magnús, f. 7.2. 1932, raf-
virkjameistari í Reykjavík; Ólafía, f.
19.2. 1933, húsmóðir í Reykjavík, og
Pétur, f. 17.10. 1937, d. 30.5. 2017,
bóndi í Káranesi í Kjós.
Hálfsystir Þórunnar, sammæðra,
var Svanhildur Jónsdóttir, f. 7.5.
1922, d. 7.8. 2007, húsmóðir í Reykja-
vík.
Uppeldisbróðir þeirra var Har-
aldur Jóhannsson, f. 22.11. 1942, d.
19.10. 2013, síðast bóndi í Munaðar-
nesi.
Foreldrar Þórunnar voru Lárus
Pétursson, f. 14.10. 1898, d. 25.10.
1974, bóndi í Káranesi í Kjós, og k.h.,
H. Kristín Jónsdóttir, f. 10.9 1896, d.
9.11. 1992, húsfreyja.
Þórunn hélt upp á afmælið sitt í
gær með fjölskyldu sinni.
Þórunn Lárusdóttir
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Káranesi
Gottsveinn Gottsveinsson
b. í Káranesi
Ragnhildur Gottsveinsdóttir
húsfreyja í Káranesi
Jón Halldórsson
b. í Káranesi, síðar í Rvík
Kristín Jónsdóttir
b. í Káranesi í Kjós
Vilborg Árnadóttir
húsfr. á Austurvelli
Halldór Gíslason
b. á Austurvelli á Kjalarnesi og í Káranesi
Kristín Þorkelsdóttir
Húsfreyja í Flóakoti í Kjós
Benjamín Jónsson
bóndi í Flóakoti í Kjós
Margrét Benjamínsdóttir
húsfr. í Miðdal
Pétur Árnason
b. í Miðdal í Kjós, síðar í Rvík
Guðný Magnúsdóttir
húsfr. í Hagakoti, frá
Efstadal í Laugardal
Árni Árnason
b. í Hagakoti
Úr frændgarði Þórunnar Lárusdóttur
Lárus Pétursson
b. í Bæ í Kjós og síðar í Káranesi í Kjós
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
90 ára
Þórunn Lárusdóttir
85 ára
Herborg H. Halldórsdóttir
Jarþrúður Kristjánsdóttir
Stefán Runólfsson
80 ára
Gerða S. Jónsdóttir
Halldór Sverrir Arason
Ólafur Ágústsson
75 ára
Gyða Þórhallsdóttir
Ingibjörg Ágústsdóttir
Jóhanna Þórðardóttir
Kristján Helgi
Guðmundsson
Steinar Halldórsson
Svana Ólafsdóttir
70 ára
Bryndís G. Friðriksdóttir
Guðrún Steinunn
Tryggvadóttir
Helga Ingibjörg
Friðriksdóttir
Jón Helgi Sigurðsson
María V. Karlsdóttir
Valdór Bóasson
60 ára
Andrzej Konczal
Dagný Þórólfsdóttir
Elísabet María Jónasdóttir
Herdís Guðrún Reynisdóttir
Jóhann Thorarensen
Jónas Aðalsteinn Helgason
Ólafur Stefán Halldórsson
Sigurjón Ingvarsson
50 ára
Brynjólfur H. Úlfarsson
Emma Ósk Rossiter
Facelis Carrasco Peguero
Guðrún Hauksdóttir
Haraldur Valur
Haraldsson
Hinrik Bragason
Hulda Sæland
Jón Heiðar Sveinsson
Maciej Jacek Matysek
Sigurður Ingi Sigurðsson
Sólrún Helga Birgisdóttir
Zoran Milutinovic
40 ára
Anna Björg Þorgrímsdóttir
Bryndís Ósk Björnsdóttir
Elvar Þór Alfreðsson
Guðmundur Jökull
Þorgrímsson
Leifur Arnkell
Skarphéðinsson
María Kristjánsdóttir
Valdimar Víðisson
30 ára
Anna Kolbrún
Kristmundsdóttir
Bjarki Óskarsson
Garðar Halldórsson
Hanna Þóra Jónsdóttir
Hera Rut Hólmarsdóttir
Jenni Ólafur Salvarsson
Jónas Logi Sigurbjörnsson
Kristín Valdimarsdóttir
Orgest Qytyku
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir
Sandis Liass
Sigríður Elísabet Árnadóttir
Spodris Lieknins
Þórmar Árnason
Til hamingju með daginn
40 ára Bryndís Ósk er frá
Höfn í Hornafirði en býr í
Kópavogi. Hún er með BA
í tómstunda- og félags-
málafræði, er sjálfstætt
starfandi leiðsögumaður
og MPM-nemi í HR.
Maki: Gísli Jóhann John-
sen, f. 1967, húsasmíða-
meistari.
Sonur: Björn Októvíus, f.
2000.
Foreldrar: Björn Gunn-
laugsson, f. 1952, og Ing-
unn Guðmundsdóttir, f.
1958.
Bryndís Ósk
Björnsdóttir
40 ára Leifur er Ísfirð-
ingur en býr í Reykjavík.
Hann er lögfræðingur
hjá fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu.
Maki: Emese Henczes,
frá Ungverjalandi, f.
1980, efnaverkfræð-
ingur.
Dóttir: Annabella Eyrún,
f. 2016.
Foreldrar: Skarphéðinn
Gíslason, f. 1957, skip-
stjóri, og Eyrún Leifs-
dóttir, f. 1954, vinnur á
Dvalarheimilinu Hlíf.
Leifur Arnkell
Skarphéðinsson
30 ára María Ósk er úr
Vesturbænum í Reykja-
vík. Hún er nemi í
viðskiptafræði í HR.
Maki: Victor Pétur
Ólafsson, f. 1983, kvik-
myndagerðarmaður.
Sonur: Harry Ingvi, f.
2018.
Foreldrar: Ingvi Jón
Rafnsson, f. 1960, d.
2008, matreiðslumeist-
ari, og Þóra Helga
Jónsdóttir, f. 1961, mat-
ráður hjá Olís, búsett í
Rvík.
María Ósk
Ingvadóttir
Bergur Einarsson hefur varið dokt-
orsritgerð sína í jarðeðlisfræði við Há-
skóla Íslands. Heiti ritgerðarinnar er
Vatnafræði íslenskra jökla: Jökulhlaup
og ísflæði (e. Subglacial hydrology of
the Icelandic ice caps: Outburst floods
and ice dynamics). Leiðbeinandi var
dr. Tómas Jóhannesson, fagstjóri á
sviði jöklafræði á Veðurstofu Íslands.
Meginviðfangsefni ritgerðarinnar
eru rannsóknir á rennsli vatns í og
undir jöklum og áhrifum þess á botn-
skrið, bæði við venjulegar aðstæður
og aftakaaðstæður í jökulhlaupum.
Ritgerðin byggist á mælingum á hreyf-
ingu jökla og gögnum um rennsli jök-
ulhlaupa og jökuláa. Einnig er notast
við líkanreiknað afrennsli frá norð-
anverðum Hofsjökli og vestanverðum
Vatnajökli. Unnir eru líkanreikningar á
ísflæði í íshellu yfir lónum við jökul-
botn sem tæmast í jökulhlaupum.
Mælingarnar og túlkun gagnanna frá
jökulhlaupunum sýna: (1) hvernig
þrýstibylgja gengur niður hlaupfarveg-
inn undir jöklinum í hraðrísandi jök-
ulhlaupum og myndar rými fyrir flóð-
vatnið með því að lyfta jöklinum, (2)
aukna hreyfingu jökulsins meðan á
jökulhlaupum stendur vegna minnk-
aðs viðnáms við botn, (3) vatnssöfnun
undir jöklinum í
hægrísandi jök-
ulhlaupum og (4)
lyftingu jökulsins í
bæði hæg- og
hraðrísandi jökul-
hlaupum vegna
vatnsþrýstings við
botn sem er hærri
en fargþrýstingur
jökulsins. Seinustu tvær niðurstöð-
urnar stangast á við hefðbundnar
kenningar um hægrísandi jökulhlaup.
Mælingar á hreyfingu Sátujökuls og
Skaftárjökuls fyrir tímabil milli hlaupa
sýna aukið ísskrið vegna áhrifa vatns á
viðnám við jökulbotn.
Þessar niðurstöður eru mikilvægar
því aukinn skilningur á vatnskerfi við
botn jökla og áhrifum þess á ísskrið er
mikilvægur fyrir spár um breytingar á
jöklum og hækkun á sjávarborði
heimshafanna af þeirra völdum. Góð
þekking á jökulhlaupum er líka mik-
ilvæg því þau geta skapað hættu.
Doktorsverkefnið var unnið á Veð-
urstofu Íslands sem hluti af sam-
norræna öndvegissetrinu SVALI,
„Stability and Variations of Arctic
Land Ice“ sem var fjármagnað af Nor-
rænu ráðherranefndinni.
Bergur Einarsson
Bergur Einarsson (f. 1981) lauk BS-gráðu í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands ár-
ið 2004 og MS-gráðu í sömu grein, frá sama skóla árið 2009. Bergur starfaði hjá
Vatnamælingum Orkustofnunar að loknu BS-námi og meðan á MS-námi stóð.
Bergur hefur starfað á Veðurstofu Íslands frá sameiningu Vatnamælinga og Veð-
urstofunnar árið 2009. Foreldrar Bergs eru Gíslný Bára Þórðardóttir og Einar
Ólafsson.
Doktor
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón