Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 26
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Íslenskan virðist ekki eiga til orð sem
nær að lýsa nægilega vel því sem Elín
Elísabet Einarsdóttir starfar við. Á
ensku er til orðið „illustrator“ og er
kannski best lýst þannig að það lend-
ir á mörkum þess að vera listamaður
og myndasöguhöfundur. Sjálf kýs El-
ín að nota einfaldlega titilinn „teikn-
ari“ en störf hennar spanna allt frá
bráðskemmtilegum myndum sem
hún birtir í Reykjavik Grapevine og á
Facebook yfir í að nota lit og blýant
til að miðla daglegu lífi kvenna suður í
Senegal þar sem hún dvaldi á sínum
tíma um mánaðar skeið.
Elín er 25 ára gömul og útskrif-
aðist fyrir tveimur árum úr teikni-
deild Myndlistaskólans í Reykjavík.
Hún segir að þökk sé þessari nýju
deild fari teiknarastéttinn hér á landi
ört stækkandi: „Bæði dælir skólinn
út í kringum fimmtán nýjum teikn-
urum ár hvert en svo er eftirspurnin
eftir hæfileikum þeirra líka að aukast
og t.d. orðið vinsælt að fá teiknara á
staðinn til að skrásetja mikilvæga
viðburði á borð við ráðstefnur, stór-
afmæli og brúðkaup.“
Þrívítt listform
Það má skipta verkum Elínar í
nokkra flokka. Annars vegar eru
myndasögurnar sem hún byggir að
hluta á eigin lífi, þá eru skreytingar
fyrir blöð, bækur, plötuumslög og
kort, teikningar af fólki og samfélagi
og loks málverkaserían Pink Ladies
sem Elín vonast til að sýna síðar í vet-
ur. Teikningarnar má sjá bæði á Fa-
cebook.com/elinelisabete og á
www.elinelisabet.com.
Hún segir teikningu vera listform
sem býður upp á allt aðra möguleika
en t.d. ljósmyndun eða hefðbundið
málverk. Teiknarinn fangar umhverf-
ið með öðrum hætti en málarinn og
getur leyft sér meira en ljósmynd-
arinn við samsetningu myndarinnar.
„Teikningin er mjög persónulegt list-
form og teiknarinn getur dregið fram
vinkla á myndefninu sem enginn ann-
ar sér. Er kannski hægt að segja að
teikningin sé þrívíðari en t.d. ljós-
mynd og teiknarinn getur dregið úr
umhverfi sínu það sem honum finnst
áhugaverðast.“
Þessi eiginleiki listformsins sést
vel í útskriftarverkefni Elínar; fal-
legri bók sem hún gerði um Borg-
„Teikningin er
mjög persónu-
legt listform“
Elín Elísabet hefur vakið athygli með
myndasögum sínum og teikningum
Morgunblaðið/Valli
Miðill „Allir eiga rétt á að geta séð sig sjálfa í þeirri menningu sem við neytum, bæði í teikningum, myndasögum og
annars staðar,“ segir Elín Elísabet Einarsdóttir um mikilvægi þess að kröftugar konur sjáist í myndasögum.
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
Katrín Halldóra og Arctic Swing-kvintettinn
Norðurhjarasveifla Arctic Swing-kvintettinn hélt uppi svalri sveiflu.
Ánægðar Á meðal tónleikagesta voru þær Anna, Ásbjörg, Marta og Klara.
Myndasögur Elínar fyrir Reykja-
vik Grapevine hafa vakið verð-
skuldaða athygli. Aðalsöguhetj-
an byggist á Elínu sjálfri og
viðfangsefnið er óbærilegur
hversdagsleiki ungrar íslenskr-
ar konu. Hún segir þessa
myndasögu hluta af stærri
bylgju sjálfsævisögulegra
myndasagna sem finna má á
samfélagsmiðlunum nú til dags.
„Stíllinn kom alveg óvart. Ég
var að skissa í strætó, orðin of-
boðslega bílveik en líka við það
að sofna af þreytu. Mér hug-
kvæmdist að teikna sjálfa mig í
strætó og sú teikning var upp-
hafið að þessari sögupersónu.“
Söguhetjan
fæddist í strætó
KUNNUGLEGT ÚTLIT