Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 27
Fjölskylda Eiginkona Jóns Birgis er Fjóla E. Arndórsdóttir, f. 9.7. 1945, sjúkraliði og nuddari. Hún er dóttir Arndórs Jó- hannessonar, f. 5.3. 1905, d. 31.7. 1994, bónda í Skálholtsvík í Bæjarhreppi í Hrútafirði, og Fjólu Vestfjörð Emils- dóttur, f. 10.4. 1920, d. 26.7. 1945, hús- freyju. Sonur Jóns Birgis og Fjólu er Arn- ar Birgir, f. 29.4. 1983, tölvuverkfræð- ingur frá Imperial College í London og Háskóla Íslands en kona hans er Anna María Káradóttir, lögfræðingur Landlæknisembættis og eiga þau tvo syni, Emil Kára og Jóhann Pál. Börn Jóns Birgis og Birnu Karls- dóttur, fyrri konu hans, eru Kolbrún Anna, f. 27.10. 1963, flugfreyja en maður hennar er Ólafur William Hand, markaðsstjóri alþjóðaviðskipta Eimskips í Rotterdam, en fyrri mað- ur Kolbrúnar var Þorkell Stefánsson, kaupmaður í Raftækjaverslun Ís- lands sem lést 2006 og eignuðust þau þrjár dætur, Nínu Hjördísi, Fríðu og Jöru Birnu, og Ólafur á dóttur, Vig- dísi Grace; Hjördís Unnur, f. 31.7. 1965, fulltrúi hjá Valitor, en eig- inmaður hennar er Eiríkur Magn- ússon viðskiptafræðingur og eru börn þeirra Jón Birgir Eiríksson, Guðrún og Birna Kristín; Karl Pétur, f. 30.8. 1969, bæjarfulltrúi Viðreisnar á Sel- tjarnarnesi og ráðgjafi í almanna- tengslum, kvæntur Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, viðskiptafræðingi og rekstrarstjóra Fríhafnar, og eiga þau fjögur börn, Katrínu Önnu, Kötlu, og tvíburana Grím Fannar og Fanneyju Petru en Karl á son frá fyrra sam- bandi, Ara Pál Karlsson, en móðir hans er Sonja Dögg Pálsdóttir. Stjúpbörn Jóns Birgis frá fyrra hjónabandi Fjólu eru Anna Kristín Hjartardóttir, f. 15.9. 1964, arkitekt og verkefnastjóri hjá Eflu en maður hennar er Stefán Ríkharðsson og dóttir Önnu er Lena Mjöll Mark- úsdóttir lögfræðingur; Arndór Hjart- arson, f. 7.10. 1965, fulltrúi hjá Sjóvá- Almennum. Systkini Jóns Birgis: María, f. 25.8. 1925, d. 2.6. 2000; skrifstofumaður; Björn, f. 30.5. 1930, d. 1.3. 1995; flug- virki; Ásthildur, f. 11.6. 1934, d. 4.12. 1997, bæjarfulltrúi í Kópavogi; Stef- anía Ingibjörg, f. 3.12. 1941, skrif- stofumaður HÍ. Foreldrar Jóns Birgis voru Pétur Jónsson, f. í Höfða í Þverárhlíð 19.9. 1895, d. 23.9. 1973, bifreiðarstjóri í Reykjavík, og k.h., Jórunn Björns- dóttir, f. 14.12. 1904, d. 2.2. 1966, hús- móðir. Jón Birgir Pétursson Ingibjörg Ólafsdóttir frá Háagerði á Höfðaströnd, bróðurdóttir Ragnheiðar, langömmu Benedikts Sveinssonar yfirdómara, föður Einars skálds Ólafur Stefánsson vinnumaður á Frosta- stöðum í Blönduhlíð Stefanía Ólafsdóttir húsfreyja á Brekku Jórunn Björnsdóttir húsfreyja í Rvík Jens Kristleifsson myndlistarmaður og kennari Björn ristleifsson arkitekt KKristleifur Björnsson listamaður Kristleifur Jónsson vegaverk- stjóri í Rvík, hönnuður Kleifbúans á Kleifaheiði Samson Jónsson b. á Bugðustöðum í Hörðudal í Dölum Jón amsonarson handrita- ræðingur hjá Árnastofnun S f Heiðbrá Jónsdóttir stærðfræði- hagfræðingur Valgerður Andrésdóttir erfðafr. á Tilraunastöð HÍ Margrét Helga Ögmundsdóttir líffræðingur við HÍ Andrés Björnsson útvarpsstjóri Helgi Jónsson starfsm. hjá Reykhúsi SÍS við Rauðarár- stíg Gylfi Helgason kipstj. á Reyk- hólumHelga Haraldsdóttir myndlistarkona í London og Rvík María Helgadóttir húsfr. í Rvík aldimar Jónsson verkam. í Rvík s VÓlafur Steinar Valdimarsson ráðuneytisstj. í Rvík Björn Bjarnason b. á Brekku í Seyluhr. Hallfríður Sölvadóttir húsfreyja á Þverá Bjarni Jónsson b. á Þverá í HrollleifsdalAndrés Björnsson skáld, ritstjóri og leikari Sigurbjörg Björnsdóttir b. í Deildartungu í Borgarfirði Sólveig Jónsdóttir húsfreyja í Rvík Jón Ásbergsson fv. forstj. Íslandsstofu Pálmi Jónsson stofnandi Hagkaups Sigurður Pálmason kaupsýslumaður og stjórnarform. IKEA á Íslandi Ingibjörg Pálmadóttir eigandi Fréttablaðsins Jón Pálmason kaupsýslum. og fjárfestir Sigurlína Björns- dóttir húsfreyja á Hofi á Höfða- strönd og í Rvík Þórunn Ólafsdóttir húsfreyja á Höfða Jón Helgason b. á Höfða María Elísabet Jónsdóttir húsfreyja á Höfða Jón Guðmundsson b. á Höfða í Þverárhlíð Helga Brandsdóttir húsfreyja á Karlsbrekku Guðmundur Björnsson b. á Karlsbrekku í Þverárhlíð Úr frændgarði Jóns Birgis Péturssonar Pétur Jónsson bifreiðastj. í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Haust 2018 Herra vörurnar komnar Jónas Þorvaldsson fæddist í Álft-ártungukoti í Álftaneshreppi áMýrum 21.9. 1899. Foreldrar hans voru Þorvaldur Sigurðsson, bóndi þar, og k.h., Valgerður Anna Sigurðardóttir húsfreyja. Þorvaldur var sonur Sigurðar Björnssonar, vinnumanns á Lamba- stöðum á Mýrum, en Valgerður var dóttir Sigurðar Bjarnasonar, bónda á Valbjarnarvöllum á Mýrum. Bróðir Jónasar var Sigurður Þor- valdsson, bóndi, kennari og hrepp- stjóri á Sleitu-Bjarnarstöðum í Skagafirði. Eiginkona Jónasar var Magnea Guðrún, ein Laugarvatnssystranna, dætra Böðvars Magnússonar, bónda og hreppstjóra á Laugarvatni, og Ingunnar Eyjólfsdóttur. Jónas og Magnea Guðrún eignuðust fimm börn. Jónas stundaði nám við Alþýðu- skólann á Hvítárbakka 1914-16, lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1924, fór í námsferð til Norð- urlanda 1931, m.a. í Askov. Jónas var kennari í Álftaneshreppi 1924-25 og 1926-27, við Barnaskólann á Akranesi 1925-26, skólastjóri Barna- og unglingaskólans á Hólma- vík 1928-30, kennari við Héraðsskól- ann á Núpi 1930-32 og skólastjóri Barnaskólans í Ólafsvík 1932-57. Hann var síðan fulltrúi í fjármálaeft- irliti skólanna frá 1957. Jónas var erindreki ungmenna- félaganna í Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, hélt erindi víða í Borgarfirði á vegum Ungmennasambands Borgar- fjarðar 1924-27. Hann var oddviti Ólafsvíkurhrepps 1937-54, sóknar- nefndarformaður 1937-56, sýslu- nefndarmaður 1946-50, sat í trygg- ingaráði og fræðsluráði Snæfellsness- og Hnappadalssýslu 1947-51, var endurskoðandi Spari- sjóðs Ólafsvíkur 1934-57, Kaup- félagsins Dagsbrúnar 1943-57, for- maður Olíusamlags Ólafsvíkur frá stofnun 1944-52, sat í stjórn Hrað- frystihúss Ólafsvíkur 1939-50 og var framkvæmdastjóri þess frá 1939. Jónas lést 2.7. 1978. Merkir Íslendingar Jónas Þorvaldsson 101 árs Hólmfríður Sölvadóttir 95 ára Gunnar Ólafsson Helena Sigtryggsdóttir 90 ára Arnheiður Helgadóttir Hannes Ágústsson Sigurgeir Friðjónsson 85 ára Bragi Guðbrandsson Kristinn Guðmundsson 80 ára Atli Heimir Sveinsson Dýrfinna Ósk Högnadóttir Guðfinna Friðriksdóttir Guðný Erna Þórarinsdóttir Gunnar F. Sigurjónsson 75 ára Anna Soffía Sverrisdóttir Halldóra Björt Óskarsdóttir Matthías Sveinsson Ólafur Guðmundsson Þór Már Valtýsson 70 ára Axel Eiríksson Bára L. Guðmundsdóttir Bára Þórðardóttir Birgir Jensson Björg G. Sigurbjörnsdóttir Guðrún Björg Pétursdóttir Guðrún Vigdís Sverrisdóttir Helgi Geir Valdimarsson Hlíf Guðmundsdóttir Ingibjörg Pétursdóttir Olgeir Kristjónsson Sigrún Pálsdóttir Sigurrós Þorsteinsdóttir Smári Þröstur Ingvarsson 60 ára Elísabet Guðmundsdóttir Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir Guðjón Heiðar Pálsson Guðjón Jóhannes Jónsson Guðrún Ólafsdóttir Hrafnkell Gunnlaugsson Hörður Ívarsson Reinilda Perez Sigríður Bryndís Karlsdóttir Sigrún Friðgeirsdóttir Sigurður Ægisson Tryggvi Sverrisson 50 ára Grétar Böðvarsson Hafsteinn Óskarsson Halldór Margeir Ólafsson Indiana Steingrímsdóttir Þorkell Ingi Ingimarsson Örn Valdimarsson 40 ára Alda Sveinsdóttir Davíð Freyr Jónsson Edda Sólrún Jónsdóttir Hermann Jens Ingjaldsson Hörður Þór Harðarson Ricardo Silva Pimenta Sif Bjarklind Ólafsdóttir Sigrún Helga Pétursdóttir Sigurður A. Þorvarðarson 30 ára Aron Berg Jóhannsson Aurimas Mukauskas Bjarni Steinarsson George-Cristian Scarlat Hagalín V. Guðmundsson Hamidreza Hajihoseini Högni Sigurðsson Jirí Skalík Jónas A. Guðmundsson Nikulás Kai Fletcher Paula Wisniewska Son Hoang Nguyen Ngo Unnur Flemming Jensen Valur Sigurðsson Til hamingju með daginn 30 ára Unnar býr í Kópa- vogi, lauk BSc-prófi í sál- fræði, er ráðgjafi og stundar MSc-nám við HÍ. Maki: Erla Bára Kar- elsdóttir, f. 1988, sölu- maður hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Dætur: Marella Margrét, f. 2011; Emelía Geirdal, f. 2013, og Júlía Geirdal, f. 2017. Foreldrar: Marella Geir- dal, f. 1946, og Ari E. Jónsson, f. 1946, d. 2004. Unnar Geirdal Arason 30 ára Unnar ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk sveinsprófi í rennismíði og stundar nám í vél- og orkutæknifræði við Há- skólann í Reykjavík. Systkini: Bjarki, f. 1994; Sara Dögg, f. 1995; Ólafur Hjaltason, f. 1999; Magn- ús Bæring, f. 2009, og Áshildur Bærings, f. 2011. Foreldrar: Árný Anna Svavarsdóttir, f. 1969, og Sigurður Þorsteinn Unn- steinsson, f. 1967. Unnar Bæring Sigurðsson 30 ára Guðríður ólst upp í Reykjadal í Hruna- mannahreppi, lauk prófi í dýralækningum og er dýralæknir við Dýra- læknamiðstöðina á Hellu. Maki: Jón William Bjarka- son, f. 1979, járn- ingamaður. Foreldrar: Þóra Sædís Bragadóttir, f. 1970, versl- unarmaður, og Þórarinn Ingi Úlfarsson, f. 1968, verktaki. Þau búa í Reykjadal. Guðríður Eva Þórarinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.