Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Haust Fölna grös, en blikna blóm, af björkum laufin detta, orti Kristján Jónsson fjallaskáld (1842-69) um þennan litskrúðuga árstíma.
Kristinn Magnússon
Nú þegar líður að 70
ára afmæli Norður-
Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) dregur Atl-
antshafið enn á ný að
sér athygli þeirra sem
huga að varnar- og ör-
yggismálum. Í kringum
aldamótin lögðu þeir
sem mótuðu og skipu-
lögðu varnarstefnu
NATO litla eða enga
áherslu á varnaráætlanir fyrir
Norður-Atlantshaf. Nú er unnið að
gerð slíkra áætlana meðal annars
með heræfingu hér á landi og í
Noregi í október.
Grænland er einnig inni í mynd-
inni að nýju. Mánudaginn 17. sept-
ember 2018 birti bandaríska varn-
armálaráðuneytið viljayfirlýsingu
um þátttöku í flugvallargerð á
Grænlandi. Um svipað leyti og
Bandaríkjamenn lögðu Keflavík-
urflugvöll eftir komu sína hingað
1941 lögðu þeir tvo flugvelli á
Grænlandi. Þeir snúa sér aftur að
grænlenskum flugvallarfram-
kvæmdum með vísan til varn-
arsamnings um Grænland frá 1951.
Sama ár gerðu Íslendingar tvíhliða
varnarsamning við Bandaríkja-
menn.
Gögn tengd lokun Keflavík-
urstöðvarinnar í september 2006
sýna að bandarískir sérfræðingar
og embættismenn litu þá á Rússa
sem samstarfsaðila í hermálum.
Fyrir hendi var sameiginlegur vett-
vangur NATO og Rússlands þar
sem fundað var reglulega. Rússar
bjuggu um sig í höfuðstöðvum
NATO í Brussel. Auk þess mátti
rússneski herflotinn sín lítils og um-
svif hans á úthöfunum mótuðust af
því.
Atlantshafsflot-
anum ýtt úr vör
Bandaríkjastjórn
sýndi að ekki væri
ástæða til sérstakra
aðgerða á Norður-
Atlantshafi með því
einfaldlega að leggja
2. flota sínum, Atl-
antshafsflotanum, og
loka stjórnstöð hans í
Norfolk í Virginíuríki
árið 2011. Áður, árið
2002, ákvað NATO að
leggja niður Atlantshafsherstjórn
sína í Norfolk og halda þar þess í
stað úti herstjórn til að þróa og út-
færa hertæknilegar breytingar.
Nú er markvisst unnið að því að
vinda ofan af þessum ákvörðunum
bæði hjá Bandaríkjastjórn og á
vettvangi NATO. Á leiðtogafundi
bandalagsins í Brussel í júlí 2018
var ákveðið að opna í Norfolk Atl-
antshafsherstjórn að nýju.
Hátíðleg athöfn var í Norfolk 24.
ágúst 2018 þegar 2. flota Bandaríkj-
anna, Atlantshafsflotanum, var
formlega ýtt úr vör að nýju. Her-
stjórn 2. flotans og Atlantshafs-
herstjórn NATO vinna náið saman
og rofni friðurinn verður aðgerðum
stjórnað af yfirmanni 2. flotans und-
ir merkjum NATO.
Ákvarðanir um þetta í Bandríkj-
unum og á vettvangi NATO ráðast
af þróun öryggismála frá því að
Rússar innlimuðu Krímskaga á
ólöglegan hátt í mars 2014 og hófu
beinar og óbeinar hernaðaraðgerðir
gegn Úkraínu.
Breytingar í Norður-Evrópu
NATO-þjóðir næst Rússlandi auk
Finna og Svía hafa undanfarin fjög-
ur ár gripið til margvíslegra ráð-
stafana til að auka öryggi sitt.
NATO hefur flutt herafla til
Eystrasaltsríkjanna og Póllands.
Finnar og Svíar hafa gert þríhliða
varnarsamkomulag við Bandaríkja-
menn. Norðmenn leyfa allt að sjö
hundruð bandarískum land-
gönguliðum að hafa tímabundna
dvöl í tveimur herstöðvum í landi
sínu. Í næsta mánuði verður efnt til
land-, flug- og sjóhersæfingar með
40.000 mönnum frá 31 landi í Nor-
egi. Undanfari æfinganna verður
hér í Höfnum, á Keflavíkurflugvelli
og í Þjórsárdal með þátttöku 400
bandarískra landgönguliða og fjölda
herskipa.
Margt hefur breyst frá því í
kalda stríðinu: Eystrasaltsríkin og
Pólland eru í NATO, Finnar og Sví-
ar hafna hlutleysi en standa utan
hernaðarbandalaga og Norðmenn
leyfa dvöl erlendra hermanna í
landi sínu á friðartímum, ekki er lit-
ið á hana sem viðvarandi. Þá hefur
enginn herafli fasta viðveru á Ís-
landi.
Rússneskir kafbátar sækja nú að
fjarskiptaköplum neðansjávar til
truflana og nethernaðar.
Fyrir norðan GIUK-hliðið
Á útþenslutíma sovéska flotans í
kalda stríðinu dró NATO fyrst
varnarlínu sína gegn kafbátum frá
Grænlandi um Ísland til Bretlands.
Var litið á þessa línu, GIUK-hliðið,
sem lykilþátt í varnarstefnu NATO.
Á níunda áratugnum breyttist
þetta. Samhliða því sem ráðist var í
mikla endurnýjun í Keflavíkurstöð-
inni mótaði stjórn Ronalds Reagans
nýja flotastefnu. Hún var kennd við
John F. Lehman flotamálaráðherra
sem sagði það lýsa skilningsleysi á
frumþáttum sjóhernaðar að halda
að unnt væri að verja siglingaleiðir
yfir N-Atlantshaf eða komast hjá
átökum við sovéska flotann með því
að draga varnarlínuna í GIUK-
hliðinu. Það yrði ekki gert nema
með því senda flota Bandaríkja-
manna norður fyrir Ísland.
Norskir ráðamenn fögnuðu þess-
ari áherslu Lehmans. Anders C.
Sjaastad varnarmálaráðherra sagði
á blaðamannafundi árið 1984 að það
ætti ekki að loka flota NATO-
ríkjanna fyrir sunnan GIUK-hliðið,
ekki ætti að líða að Sovétmenn
gætu lagt Noregshaf undir sig, skip
frá NATO-ríkjum ættu að fara
norður fyrir Ísland. Hann fagnaði
því að Bandaríkjamenn ætluðu að
fjölga flugmóðurskipum sínum, án
þeirra gætu NATO-ríkin ekki kom-
ið í veg fyrir að Noregshaf yrði
Mare Sovieticum, sovéskt haf.
Flotastefnan árið 2018
Orð Sjaastads vísa beint til þess
sem sagt var í Norfolk 24. ágúst
2018 þegar rætt var um hlutverk 2.
flota Bandaríkjanna. Í grein í tíma-
riti Bandarísku flotastofnunarinnar,
US Naval Institute, USNI News,
eftir Sam LaGrone er rætt um end-
urnýjað hlutverk 2. flotans við John
Richardson, yfirmann aðgerðasviðs
flota Bandaríkjanna. Hann segir að-
gerðasvæði 2. flotans ná langt norð-
ur fyrir GIUK-hliðið, allt norður
fyrir Skandinavíuskaga og heim-
skautsbaug í áttina að kafbáta-
höfnum Norðurflota Rússa á Kóla-
skaga við Barentshaf.
Richardson og Andrew Lewis,
flotaforingi, nýr yfirmaður 2. flot-
ans, sögðu að endurreisn flotans
mætti rekja til varnarstefnu James
Mattis, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna. Nú sé keppt við Rússa.
Í greininni er vísað í samtal við
Bob Work, fyrrverandi vara-
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sem segir einnig að ákvörð-
unin um að færa ytri mörk aðgerða-
sviðs 2. flotans að heimahöfnum
Rússa sé í samræmi við stefnuna
sem kennd sé við Mattis. Þetta sýni
að Bandaríkjamenn standi vaktina.
Keppnin við Rússa sé einkum háð
neðansjávar. Besta leiðin til að
fylgjast með þeim sé að hleypa
þeim ekki út á úthöfin.
Magnus Nordenman, sérfræð-
ingur í flotamálum á N-Atlantshafi,
sagði við USNI News:
„Í ákvörðuninni um að fela 2. flot-
anum hlutverk í Barentshafi felst
viðurkenning á einum mikilvægasta
þætti nýrrar flotasamkeppni á
Norður-Atlantshafi. Þetta gerist
mjög norðarlega, ekki við eða fyrir
sunnan GIUK-hliðið og snýst ekki
um að verja skipalestir banda-
manna á leið yfir Atlantshaf.“
Sem varavarnarmálaráðherra
kynnti Bob Work sér aðstæður á
Keflavíkurflugvelli í september
2015. Eftir heimsóknina tók Banda-
ríkjastjórn ákvörðun um að veita fé
í endurgerð flugskýlis og annarrar
aðstöðu á vellinum fyrir nýja gerð
kafbátaleitarvéla. Magnus Norden-
mann var ræðumaður á ráðstefnu
Varðbergs í nóvember 2016 um
endurmat á hernaðarlegu mikilvægi
Íslands og nágrennis.
Íslenskir hagsmunir tengjast
mjög þessu umróti í öryggismálum
á Norður-Atlantshafi. Íslendingar
eru ekki stikkfrí áhorfendur heldur
verða að leggja sitt af mörkum.
Heræfingin hér er liður í því. Er
tímabært að til hennar sé efnt.
Eftir Björn
Bjarnason » Aðgerðasvæði 2. flot-
ans nær langt norð-
ur fyrir GIUK-hliðið,
allt norður fyrir Skand-
inavíuskaga og heim-
skautsbaug.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Bandaríkjamenn ræsa Atlantshafsflota sinn
Félagsfundur Eflingar og
hópferðabílstjóra í vikunni
var merkilegur fyrir
margra hluta sakir. Þar
kom fram að hugur væri í
hópnum fyrir komandi
kjaraviðræður og rétta
þyrfti hlut hópferðabíl-
stjóra. Undir það tók for-
maður Eflingar.
Það má taka undir að
hópferðabílstjórar bera
mikla ábyrgð, sem staðfest
er í launaröðun í kaup-
taxtakerfi Eflingar og SA
þar sem þeim er raðað í
hæsta umsamda launaflokk.
Þá eru heildarlaun þeirra
hærri en annarra innan fé-
lagsins, eins og lesa má út
úr launatölfræði Hagstofu
Íslands. Heildarlaun þeirra
voru að meðaltali 546 þús.
kr. árið 2017, eða 11%
hærri en meðalheildarlaun
ósérhæfðs verkafólks (skv.
Ísstarf-flokkun Hagstofu)
og 75% af meðalheild-
arlaunum starfsmanna á al-
mennum vinnumarkaði. Allar tölurnar miðast við
starfsmenn í fullu starfi. Yfirvinnugreiðslur voru 25%
af heildarlaunum þeirra sem svarar til að þeir hafi
fengið greiddar átta yfirvinnustundir á viku, en yfir-
vinnugreiðslur til þeirra hafa dregist saman und-
anfarin ár.
Vandinn er að þrjú stærstu rútufyrirtæki landsins
skiluðu mörg hundruð milljóna króna tapi á árinu
2017 og árið 2018 verður sennilega lakara rekstrarár.
Væntingar til næsta árs eru í besta falli hóflegar.
Spyr sá sem ekki skilur: hvað á að sækja hvert?
Eftir Halldór Benjamín
Þorbergsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
» Þrjú stærstu
rútufyrir-
tæki landsins
skiluðu mörg
hundruð millj-
óna króna tapi á
árinu 2017 og
árið 2018 verður
sennilega lakara
rekstrarár.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Hópferðabílstjór-
ar, Efling og
raunveruleikinn