Morgunblaðið - 21.09.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 21.09.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Haust Fölna grös, en blikna blóm, af björkum laufin detta, orti Kristján Jónsson fjallaskáld (1842-69) um þennan litskrúðuga árstíma. Kristinn Magnússon Nú þegar líður að 70 ára afmæli Norður- Atlantshafsbandalags- ins (NATO) dregur Atl- antshafið enn á ný að sér athygli þeirra sem huga að varnar- og ör- yggismálum. Í kringum aldamótin lögðu þeir sem mótuðu og skipu- lögðu varnarstefnu NATO litla eða enga áherslu á varnaráætlanir fyrir Norður-Atlantshaf. Nú er unnið að gerð slíkra áætlana meðal annars með heræfingu hér á landi og í Noregi í október. Grænland er einnig inni í mynd- inni að nýju. Mánudaginn 17. sept- ember 2018 birti bandaríska varn- armálaráðuneytið viljayfirlýsingu um þátttöku í flugvallargerð á Grænlandi. Um svipað leyti og Bandaríkjamenn lögðu Keflavík- urflugvöll eftir komu sína hingað 1941 lögðu þeir tvo flugvelli á Grænlandi. Þeir snúa sér aftur að grænlenskum flugvallarfram- kvæmdum með vísan til varn- arsamnings um Grænland frá 1951. Sama ár gerðu Íslendingar tvíhliða varnarsamning við Bandaríkja- menn. Gögn tengd lokun Keflavík- urstöðvarinnar í september 2006 sýna að bandarískir sérfræðingar og embættismenn litu þá á Rússa sem samstarfsaðila í hermálum. Fyrir hendi var sameiginlegur vett- vangur NATO og Rússlands þar sem fundað var reglulega. Rússar bjuggu um sig í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Auk þess mátti rússneski herflotinn sín lítils og um- svif hans á úthöfunum mótuðust af því. Atlantshafsflot- anum ýtt úr vör Bandaríkjastjórn sýndi að ekki væri ástæða til sérstakra aðgerða á Norður- Atlantshafi með því einfaldlega að leggja 2. flota sínum, Atl- antshafsflotanum, og loka stjórnstöð hans í Norfolk í Virginíuríki árið 2011. Áður, árið 2002, ákvað NATO að leggja niður Atlantshafsherstjórn sína í Norfolk og halda þar þess í stað úti herstjórn til að þróa og út- færa hertæknilegar breytingar. Nú er markvisst unnið að því að vinda ofan af þessum ákvörðunum bæði hjá Bandaríkjastjórn og á vettvangi NATO. Á leiðtogafundi bandalagsins í Brussel í júlí 2018 var ákveðið að opna í Norfolk Atl- antshafsherstjórn að nýju. Hátíðleg athöfn var í Norfolk 24. ágúst 2018 þegar 2. flota Bandaríkj- anna, Atlantshafsflotanum, var formlega ýtt úr vör að nýju. Her- stjórn 2. flotans og Atlantshafs- herstjórn NATO vinna náið saman og rofni friðurinn verður aðgerðum stjórnað af yfirmanni 2. flotans und- ir merkjum NATO. Ákvarðanir um þetta í Bandríkj- unum og á vettvangi NATO ráðast af þróun öryggismála frá því að Rússar innlimuðu Krímskaga á ólöglegan hátt í mars 2014 og hófu beinar og óbeinar hernaðaraðgerðir gegn Úkraínu. Breytingar í Norður-Evrópu NATO-þjóðir næst Rússlandi auk Finna og Svía hafa undanfarin fjög- ur ár gripið til margvíslegra ráð- stafana til að auka öryggi sitt. NATO hefur flutt herafla til Eystrasaltsríkjanna og Póllands. Finnar og Svíar hafa gert þríhliða varnarsamkomulag við Bandaríkja- menn. Norðmenn leyfa allt að sjö hundruð bandarískum land- gönguliðum að hafa tímabundna dvöl í tveimur herstöðvum í landi sínu. Í næsta mánuði verður efnt til land-, flug- og sjóhersæfingar með 40.000 mönnum frá 31 landi í Nor- egi. Undanfari æfinganna verður hér í Höfnum, á Keflavíkurflugvelli og í Þjórsárdal með þátttöku 400 bandarískra landgönguliða og fjölda herskipa. Margt hefur breyst frá því í kalda stríðinu: Eystrasaltsríkin og Pólland eru í NATO, Finnar og Sví- ar hafna hlutleysi en standa utan hernaðarbandalaga og Norðmenn leyfa dvöl erlendra hermanna í landi sínu á friðartímum, ekki er lit- ið á hana sem viðvarandi. Þá hefur enginn herafli fasta viðveru á Ís- landi. Rússneskir kafbátar sækja nú að fjarskiptaköplum neðansjávar til truflana og nethernaðar. Fyrir norðan GIUK-hliðið Á útþenslutíma sovéska flotans í kalda stríðinu dró NATO fyrst varnarlínu sína gegn kafbátum frá Grænlandi um Ísland til Bretlands. Var litið á þessa línu, GIUK-hliðið, sem lykilþátt í varnarstefnu NATO. Á níunda áratugnum breyttist þetta. Samhliða því sem ráðist var í mikla endurnýjun í Keflavíkurstöð- inni mótaði stjórn Ronalds Reagans nýja flotastefnu. Hún var kennd við John F. Lehman flotamálaráðherra sem sagði það lýsa skilningsleysi á frumþáttum sjóhernaðar að halda að unnt væri að verja siglingaleiðir yfir N-Atlantshaf eða komast hjá átökum við sovéska flotann með því að draga varnarlínuna í GIUK- hliðinu. Það yrði ekki gert nema með því senda flota Bandaríkja- manna norður fyrir Ísland. Norskir ráðamenn fögnuðu þess- ari áherslu Lehmans. Anders C. Sjaastad varnarmálaráðherra sagði á blaðamannafundi árið 1984 að það ætti ekki að loka flota NATO- ríkjanna fyrir sunnan GIUK-hliðið, ekki ætti að líða að Sovétmenn gætu lagt Noregshaf undir sig, skip frá NATO-ríkjum ættu að fara norður fyrir Ísland. Hann fagnaði því að Bandaríkjamenn ætluðu að fjölga flugmóðurskipum sínum, án þeirra gætu NATO-ríkin ekki kom- ið í veg fyrir að Noregshaf yrði Mare Sovieticum, sovéskt haf. Flotastefnan árið 2018 Orð Sjaastads vísa beint til þess sem sagt var í Norfolk 24. ágúst 2018 þegar rætt var um hlutverk 2. flota Bandaríkjanna. Í grein í tíma- riti Bandarísku flotastofnunarinnar, US Naval Institute, USNI News, eftir Sam LaGrone er rætt um end- urnýjað hlutverk 2. flotans við John Richardson, yfirmann aðgerðasviðs flota Bandaríkjanna. Hann segir að- gerðasvæði 2. flotans ná langt norð- ur fyrir GIUK-hliðið, allt norður fyrir Skandinavíuskaga og heim- skautsbaug í áttina að kafbáta- höfnum Norðurflota Rússa á Kóla- skaga við Barentshaf. Richardson og Andrew Lewis, flotaforingi, nýr yfirmaður 2. flot- ans, sögðu að endurreisn flotans mætti rekja til varnarstefnu James Mattis, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna. Nú sé keppt við Rússa. Í greininni er vísað í samtal við Bob Work, fyrrverandi vara- varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, sem segir einnig að ákvörð- unin um að færa ytri mörk aðgerða- sviðs 2. flotans að heimahöfnum Rússa sé í samræmi við stefnuna sem kennd sé við Mattis. Þetta sýni að Bandaríkjamenn standi vaktina. Keppnin við Rússa sé einkum háð neðansjávar. Besta leiðin til að fylgjast með þeim sé að hleypa þeim ekki út á úthöfin. Magnus Nordenman, sérfræð- ingur í flotamálum á N-Atlantshafi, sagði við USNI News: „Í ákvörðuninni um að fela 2. flot- anum hlutverk í Barentshafi felst viðurkenning á einum mikilvægasta þætti nýrrar flotasamkeppni á Norður-Atlantshafi. Þetta gerist mjög norðarlega, ekki við eða fyrir sunnan GIUK-hliðið og snýst ekki um að verja skipalestir banda- manna á leið yfir Atlantshaf.“ Sem varavarnarmálaráðherra kynnti Bob Work sér aðstæður á Keflavíkurflugvelli í september 2015. Eftir heimsóknina tók Banda- ríkjastjórn ákvörðun um að veita fé í endurgerð flugskýlis og annarrar aðstöðu á vellinum fyrir nýja gerð kafbátaleitarvéla. Magnus Norden- mann var ræðumaður á ráðstefnu Varðbergs í nóvember 2016 um endurmat á hernaðarlegu mikilvægi Íslands og nágrennis. Íslenskir hagsmunir tengjast mjög þessu umróti í öryggismálum á Norður-Atlantshafi. Íslendingar eru ekki stikkfrí áhorfendur heldur verða að leggja sitt af mörkum. Heræfingin hér er liður í því. Er tímabært að til hennar sé efnt. Eftir Björn Bjarnason » Aðgerðasvæði 2. flot- ans nær langt norð- ur fyrir GIUK-hliðið, allt norður fyrir Skand- inavíuskaga og heim- skautsbaug. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Bandaríkjamenn ræsa Atlantshafsflota sinn Félagsfundur Eflingar og hópferðabílstjóra í vikunni var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Þar kom fram að hugur væri í hópnum fyrir komandi kjaraviðræður og rétta þyrfti hlut hópferðabíl- stjóra. Undir það tók for- maður Eflingar. Það má taka undir að hópferðabílstjórar bera mikla ábyrgð, sem staðfest er í launaröðun í kaup- taxtakerfi Eflingar og SA þar sem þeim er raðað í hæsta umsamda launaflokk. Þá eru heildarlaun þeirra hærri en annarra innan fé- lagsins, eins og lesa má út úr launatölfræði Hagstofu Íslands. Heildarlaun þeirra voru að meðaltali 546 þús. kr. árið 2017, eða 11% hærri en meðalheildarlaun ósérhæfðs verkafólks (skv. Ísstarf-flokkun Hagstofu) og 75% af meðalheild- arlaunum starfsmanna á al- mennum vinnumarkaði. Allar tölurnar miðast við starfsmenn í fullu starfi. Yfirvinnugreiðslur voru 25% af heildarlaunum þeirra sem svarar til að þeir hafi fengið greiddar átta yfirvinnustundir á viku, en yfir- vinnugreiðslur til þeirra hafa dregist saman und- anfarin ár. Vandinn er að þrjú stærstu rútufyrirtæki landsins skiluðu mörg hundruð milljóna króna tapi á árinu 2017 og árið 2018 verður sennilega lakara rekstrarár. Væntingar til næsta árs eru í besta falli hóflegar. Spyr sá sem ekki skilur: hvað á að sækja hvert? Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson Halldór Benjamín Þorbergsson » Þrjú stærstu rútufyrir- tæki landsins skiluðu mörg hundruð millj- óna króna tapi á árinu 2017 og árið 2018 verður sennilega lakara rekstrarár. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hópferðabílstjór- ar, Efling og raunveruleikinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.