Morgunblaðið - 26.09.2018, Side 1

Morgunblaðið - 26.09.2018, Side 1
Morgunblaðið/Eggert Veiðigjöld Skipverjar á Stefni IS 28 frá Ísafirði huga að skipinu í Reykjavíkurhöfn, en það er á leiðinni í slipp. Stefán Gunnar Sveinsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði í gær fram nýtt frumvarp um veiðigjöld á Alþingi, en meginmarkmið þess er að færa álagningu veiðigjalda nær í tíma, þannig að miðað verði við afkomu sjávarútvegsfyrirtækja eitt ár aftur í tímann í stað tveggja eins og nú er. Þá á frumvarpið að gera stjórnsýsluna um álagningu veiðigjaldsins einfald- ari, skilvirkari, gegnsærri og áreið- anlegri, en álagning veiðigjalda, upp- lýsingaöflun og meðferð þeirra verður í höndum Ríkisskattstjóra, verði frumvarpið að lögum. „Þetta er miklu einfaldara og auð- skiljanlegra. Við erum að einfalda stjórnsýsluna og færa álagningu veiðigjalds nær í tíma,“ sagði Krist- ján Þór í samtali við mbl.is í gær. Hann sagðist bjartsýnn á að sátt myndi ríkja um regluverkið sjálft, en að skiptar skoðanir yrðu eðlilega um upphæð gjaldsins. Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir nokkra þætti í frumvarpinu vera til hins betra, eins og þá fyrirætlan að færa viðmiðunarár veiðigjaldsins nær, en að auðvitað séu einnig þar inni þættir þar sem þurfi að reikna áhrifin á greinina áður en SFS veiti umsögn sína um frumvarpið. Einfalda stjórnsýslu veiðigjalda  Veiðigjaldið verði fært „nær í tíma“ Álagning á hendi RSK MLaga annmarka »6 M I Ð V I K U D A G U R 2 6. S E P T E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  226. tölublað  106. árgangur  Á FLÆKINGI MEÐ ÖMMU UM MIÐ- AUSTURLÖND LOFAR SAFA- RÍKUM SÖGUM FRÁ ÍSLANDI CLOÉ BEST Í PEPSI-DEILD KVENNA BRUCE DICKINSON 30 FÉKK 18 M ÍÞRÓTTIRVERA ILLUGADÓTTIR 12 MIÐASALA HEFST Á MORGUN KL. 9! MIÐASALA Á TIX.IS/ED – NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SENALIVE.IS/ED LAUGARDALSVÖLLUR 10. ÁGÚST 2019  Áform eru uppi um sameiningu prestakalla á sjö stöðum á landinu á næsta ári en yfirstjórn kirkjunnar hefur sent tillögur um sameiningu til sóknarnefnda og fleiri til umsagn- ar. Málið verður svo til umfjöllunar á kirkjuþingi í nóvember. Tillögurnar eru hluti af stærra máli; hugmyndum biskupafundar um breytta skipan prestakalla á landinu öllu. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að svonefnd einmenn- ingsbrauð leggist flest af í fyllingu tímans. Meginreglan verður sú að í hverju kalli verði þrír þjónandi prestar; þar með talinn sóknar- prestur, sem hefur eins konar verk- stjórn og leiðtogahlutverk með höndum. Meðal þess sem lagt er til er að Bú- staða- og Grensásprestaköll í Reykja- vík sameinist í eitt Fossvogspresta- kall með þremur prestum. »18 Morgunblaðið/Kristinn Bústaðakirkja Lagt er til að Bústaða- og Grensásprestaköll sameinist í eitt Foss- vogsprestakall með þremur prestum. Leggja til samein- ingu prestakalla á sjö stöðum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Framkoma Breta í garð Íslendinga, þegar þeir beittu fyrir sig hryðju- verkalöggjöf í bankahruninu 2008, var þeim til minnkunar að mati Mer- vyns Kings, lávarðar og þáverandi seðlabankastjóra, og lá hann ekki á þeirri skoðun sinni í einkasamtölum á þeim tíma. Þetta kemur fram í að- sendri grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í blaðinu í dag þar sem hann rekur helstu niður- stöður skýrslu sinnar um er- lenda áhrifaþætti bankahrunsins og ástæður þess að Bretar beittu hryðjuverkalög- unum. Þá kemur einnig fram í grein Hannesar að breskir embættismenn hafi séð fljótlega að í útibúi Lands- bankans í Lundúnum voru margar verðmætar eignir og því væri rétt að tryggja því lausafé. Englandsbanki lánaði því útibúinu 100 milljónir punda hinn 12. október 2008, þrátt fyrir að Landsbankinn væri þá á opinberum lista breska fjármála- ráðuneytisins yfir hryðjuverka- samtök. Hannes afhenti í gær Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra skýrsluna, en hún hefur verið í vinnslu í um fjögur ár. Sagði Hannes í samtali við mbl.is að skýrslan sýndi hversu grátt Íslendingar hefðu verið leiknir af grannþjóðum sínum. Skýrslan telur um 180 síður og náði Hannes að stytta hana úr þeim 600 blaðsíðum sem hún var upphaflega. Var Bretum til minnkunar  Skýrsla Hannesar Hólmsteins um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins afhent í gær Hannes H. Gissurarson MSkýrslan »6 og 20-21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.