Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 6

Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Samtök atvinnulífsins (SA) telja æski- legt að umfjöllun um spillingu í skýrslu starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu verði endurskoðuð. Samtökin telja umfjöllunina vera misvísandi og ein- ungis byggða á fræðilegri umfjöll- un að takmörkuðu leyti. Í ítarlegri umsögn SA eru gerðar athuga- semdir við að skortur á trausti sé skýrður með vísan til meintrar spill- ingar og benda á að í þeim hluta skýrslunnar þar sem fjallað er um spillingu hérlendis er vitnað í umfjöll- un fréttamiðla um niðurstöður rann- sókna í stað rannsóknanna sjálfra. „Umfjöllun um spillingu virðist byggja að miklu leyti á frásögnum fjölmiðla (Vísis og Ríksútvarpsins) af erindi Gunnars Helga Kristinssonar á fundi í Háskóla Íslands í janúar 2016 án þess að vitna í erindið sjálft eða leita eftir niðurstöðunum hjá fyrirles- aranum,“ segir í umsögn SA. Í skýrslu starfshópsins er vitnað til ný- legrar könnunar um að yfir 70% þjóð- arinnar telji spillingu í stjórnkerfi og atvinnulífi vera mikla eða frekar mikla. SA benda á að í sömu könnun kemur fram að innan við 20% hafi persónulega reynslu af mismunun og mun færri hafi beina reynslu af því sem kallað er alvarleg spilling. En það hafi verið meginniðurstaða rann- sókna Gunnars Helga án þess að fjallað sé um það í skýrslunni. Segja SA einnig að einungis traust til lög- reglu, forseta Íslands og Landhelg- isgæslunnar hafi mælst hærra en til eigin vinnuveitanda meðal Íslendinga í júlí 2017. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að það sé hrópandi misræmi milli þess sem skýrslan dregur fram og þess sem erlendir skoðunaraðilar, sem birta lista yfir gagnsæi og spillingu, segja um Ís- land. „Þegar Íslendingar líta inn á við draga þeir upp allt aðra mynd en þeg- ar útlendingar sem eru að meta þessa hluti á milli landa sjá, þegar þeir líta inn til landsins. Þetta er staðfest í hverri könnun á eftir annarri þar sem Ísland vermir alltaf efstu sæti, alveg sama þótt það varði litla spillingu, gæði heilbrigðiskerfisins, eða lífskjör þjóðarinnar.“ Alþjóðlegum kvörðum ber ekki saman Hann segir aðalatriðið í alþjóðleg- um mælikvörðum hvað varðar spill- ingu ekki vera það að lenda í fyrsta, öðru eða fjórða sæti, heldur vera með- al efstu þjóða. Samkvæmt Corruption Perceptions Index sem Transparency International gefur út er Ísland 13. minnst spillta landið af 180 löndum. „En innlend orðræða er oft með þeim hætti að hér sé spilling og það hefur eflaust áhrif á upplifun fólks. Erlendir sérfræðingar sem horfa inn til lands- ins finna hinsvegar einfaldlega ekki þá spillingu sem margir innlendir að- ilar virðast hafa áhyggjur af.“ Staðhæfingar án röksemda SA segja einnig að sumar staðhæf- ingar skýrslunnar standi án þess að sett séu fram dæmi eða rök með þeim. Í skýrslunni stendur m.a. að sterkir sérhagsmunaaðilar nái ákveðnu tang- arhaldi á stjórnvöldum og hafi áhrif á þau með viðbrögðum sínum við ein- stökum ákvörðunum. „Til þess að svo þungar ávirðingar séu marktækar verður að styðja þær með dæmum og hverjir aðilarnir séu og hvernig þeir hafa fengið ákvörðunum breytt og í hverju tangarhaldið hafi verið falið,“ segir í umsögn SA. „Það er ekki nefnt dæmi eða þá undir hvaða horni menn hafi tangarhald á einstökum aðilum og á meðan það er ekki nefnt þá er ekki hægt að taka mark á þessum kafla skýrslunnar,“ segir Halldór og bætir við að það séu margir umdeil- anlegir hlutir í skýrslunni og hluti af henni hljóti að kalla á endurskoðuð vinnubrögð. Misvísandi umfjöllun um spillingu  SA telur æskilegt að kafli um spillingu í skýrslu starfshóps forsætisráðherra verði endurskrifaður  Hluti skýrslunnar umdeilanlegur og hljóti að kalla á vandaðri vinnubrögð, segir framkvæmdastjóri SA Halldór Benjamín Þorbergsson Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, afhenti Bjarna Bene- diktssyni fjármálaráðherra skýrslu sína um erlenda áhrifaþætti banka- hrunsins í fjármálaráðuneytinu í gær. „Skýrslan sýnir hversu grátt Íslend- ingar voru leiknir af grannþjóðun- um,“ sagði Hannes í samtali við mbl.is í gær. Skýrslan er á ensku og telur end- anleg útgáfa hennar um 180 blaðsíð- ur. Hannes vann að skýrslunni í um fjögur ár og dróst útgáfa hennar tals- vert, meðal annars vegna þess að stytta þurfti skýrsluna úr um 600 blaðsíðum í upphaflegri gerð hennar. Ruddaleg og óþörf framkoma Hannes sagði að helstu niðurstöður skýrslunnar væru þær að beiting hryðjuverkalaga gegn Íslandi hefði verið bæði ruddaleg og óþörf aðgerð gagnvart Íslendingum vegna þess að breska fjármálaeftirlitið hefði sent til- skipun til útibús Landsbankans í Lundúnum, sem var gefin út fimm dögum áður en hryðjuverkalögin voru sett. „Þar var Landsbankanum bannað að flytja fé úr landi nema með samþykki fjármálaeftirlitsins. Þetta hefði alveg nægt til þess að hindra ólöglega fjármagnsflutninga úr landi, en það var tilgangur hryðjuverkalag- anna,“ sagði Hannes. Þá hefði beiting laganna einnig ver- ið mjög ruddaleg þar sem hún hafði í för með sér þungar búsifjar fyrir Ís- lendinga, auk þess sem hún var dóna- skapur við gamla grannþjóð. „Það sést líka hversu ruddaleg hún var þegar haft er í huga að gegn Þjóð- verjum, sem bjuggu við sömu aðstæð- ur, var engum hryðjuverkalögum beitt, heldur var þeim veitt lán.“ Þetta hefði verið gert þegjandi og hljóða- laust án nokkurrar milliríkjadeilu. Mismunuðu eftir þjóðerni Hannes sagði einnig að önnur meg- inniðurstaða skýrslunnar væri að Bretar hefðu beitt Íslendinga mis- rétti með því að loka tveimur bresk- um bönkum sem voru í eigu Íslend- inga, Kaupthing Singer & Friedlander og Heritable Bank, á sama tíma og öllum öðrum breskum bönkum var bjargað frá falli með að- stoð ríkisins. „Síðan kemur í ljós þegar þessir bresku bankar sem voru í eigu Íslend- inga voru gerðir upp að þeir áttu báð- ir fyrir skuldum. Þeir voru alls ekki gjaldþrota og það var alveg að ósekju sem þeim var lokað.“ Hannes veltir fyrir sér hvers vegna framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins hafi ekki tekið málið upp því þarna hafi Íslend- ingum augljóslega verið mismunað á grundvelli þjóðernis. „Það fengu allir bankar í Bretlandi aðstoð nema þeir tveir bankar sem voru í eigu Íslend- inga.“ Viðeigandi tímasetning Nokkur dráttur hefur orðið á birt- ingu skýrslunnar og nefndi Hannes að hann hefði skilað af sér 600 bls. skýrslu á tilsettum tíma, en að hann hefði séð í samráði við Félagsvísinda- stofnun Háskóla Íslands að hún væri allt of löng og því ákveðið að skera hana niður í 320 bls. Það hefði einnig reynst of langt og því hefði tekist í þriðju atrennu að skera skýrsluna niður í 180 bls. Þá sagði Hannes að sér þætti einn- ig viðeigandi að skýrslan kæmi út núna, en sem kunnugt er verða brátt tíu ár frá hruninu. Vorum grátt leiknir af Bretum í hruninu  Beiting hryðjuverkalaganna bæði „ruddaleg og óþörf“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skýrslan Hannes Hólmsteinn Gissurarson afhendir hér Bjarna Benediktssyni skýrslu sína um bankahrunið. Ísland situr í 13. sæti á lista um spillingu í ríkjum heims, samkvæmt Corruption Perceptions Index sem Transparency International gefur út á hverju ári. Ísland fær þar 77 stig af 100 mögulegum. Í efsta sæti listans er Nýja-Sjáland með 89 stig. Ísland hefur aldrei farið neðar en í 14. sæti listans. Þá telur The Business Anti-Corruption Portal (BACP), sem við- skiptanefndir Sameinuðu þjóðanna líta m.a. til, litla hættu stafa af spill- ingu á Íslandi. Í 13. sæti af 180 löndum SPILLING Á ÍSLANDI Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Í frumvarpinu um veiðigjöld sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði fram í gær eru gerðar ýmsar breytingar á því hvernig gjaldið verður reiknað út og lagt á. Fyrirhugað er að frumvarp- ið taki gildi um áramótin, en þá munu fyrri lög um veiðigjöld renna út. Í fréttatilkynningu frá atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu er greint frá því að breytingarnar sem gerðar eru á forsendum veiðigjaldsins eigi að leiða til þess að minni sveiflur verði á álagningu veiðigjalds, þannig að meira samræmi verði á milli af- komu sjávarútvegsfyrirtækja og fjár- hæðar gjaldsins á hverjum tíma. Þar segir einnig að helsta breyt- ingin sem verði í útreikningi gjald- anna sé sú að veiðigjaldið verður bæði fært nær í tíma og ákveðið fyrir almanaksár. Ákvörðun veiðigjaldsins verður þannig byggð á ársgömlum gögnum um afkomu sjávarútvegs- fyrirtækja í stað gagna sem eru um tveggja ára gömul líkt og nú er, en fyrirtæki í sjávarútvegi hafa oft gagn- rýnt að sá háttur sé hafður á, þar sem aðstæður í greininni geti oft breyst hratt, og veiðigjaldið þá jafnvel komið niður á útgerðinni þegar þróunin hef- ur verið til hins verra. Reiknistofninn gegnsærri Þá verður veiðigjaldanefnd lögð niður en útreikningur veiðigjalds og álagning þess fært til Ríkisskatt- stjóra, sem mun einnig árita allar upplýsingar í greinargerð með skatt- framtali sem rekstraraðilar í sjávar- útvegi skila þegar hún er opnuð, en þannig á að auðvelda eigendum fiski- skipa þessi skil. Um leið er markmiðið að gera reiknistofn veiðigjaldsins gegnsærri og auðskiljanlegri en reiknistofn gild- andi laga, meðal annars með því að veiðigjaldið mun núna byggjast á rekstrarupplýsingum sem sjávar- útvegsfyrirtæki skila inn samhliða skattframtali sínu. Einnig er lagt til í frumvarpinu að hagnaður af fisk- vinnslu komi ekki til útreiknings veiðigjaldsins líkt og verið hefur, þar sem fiskvinnslan sé ekki hluti af auð- lindanýtingu. Þá er hugmyndin sú að draga úr flækjustigi veiðigjaldsins, meðal ann- ars með því að einfalda veiðigjald á lít- ið veiddar tegundir og undanskilja tegundir utan aflamarksins, að frá- töldum makríl. Sér ýmislegt jákvætt Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir ýmsa jákvæða þætti í frumvarp- inu sem lagt var fram í gær, eins og þá fyrirætlan að færa viðmiðunarár gjaldsins nær í tíma. „Við höfum oft bent á þá skekkju sem felst í því að borga gjald sem miðast við afkomu greinarinnar jafnvel tveimur árum áður,“ segir Jens Garðar. „Við höfum séð það núna hvað rekstrarskilyrði greinarinnar geta breyst stórkostlega á örskömmum tíma, bæði hvað varðar gengi, verð á erlendum mörkuðum eða kvóta, þannig að það er mjög hvimleitt að þurfa að greiða gjald sem er með við- miðunarár svona langt aftur í tím- ann.“ Hann bætir við að svo séu aðrir þættir í frumvarpinu sem þurfi að reikna út hvaða áhrif muni hafa á greinina. SFS muni svo senda um- sögn í kjölfarið. Laga annmarka og minni sveifla á veiðigjaldinu  Veiðigjaldanefnd verður lögð niður Morgunblaðið/Eggert Veiðigjöld Frumvarpið á að ein- falda stjórnsýslu veiðigjaldanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.