Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA 26. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.7 110.22 109.96 Sterlingspund 143.96 144.66 144.31 Kanadadalur 84.69 85.19 84.94 Dönsk króna 17.295 17.397 17.346 Norsk króna 13.493 13.573 13.533 Sænsk króna 12.49 12.564 12.527 Svissn. franki 114.33 114.97 114.65 Japanskt jen 0.9736 0.9792 0.9764 SDR 153.97 154.89 154.43 Evra 129.04 129.76 129.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.7833 Hrávöruverð Gull 1198.75 ($/únsa) Ál 2032.0 ($/tonn) LME Hráolía 78.97 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Á hluthafafundi smásölurisans N1 var ákveðið í gær að félagið tæki upp nafnið Festi. Þar með hefur N1 tekið upp nafn félagsins sem það nýlega festi kaup á en undir hatti þess eru m.a. reknar verslanirnar Krón- an, Nóatún og Elko, ásamt félögunum Festi fasteignum og Bakkanum vöru- hóteli. Á hluthafafundinum var einnig samþykkt ný samkeppnisstefna sem byggist á sátt við Samkeppniseftirlitið og þá var endurskoðuð starfskjara- stefna samþykkt. Þannig er m.a. gert ráð fyrir að kaupauki forstjóra geti að hámarki numið þriggja mánaða laun- um í stað sex mánaða eins og áður. Margrét Guðmundsdóttir verður áfram stjórnarformaður. Með henni í stjórn verða Björgólfur Jóhannsson, Guðjón Karl Reynisson, Kristín Guðmundsdóttir og Þórður Már Jóhannesson. Uppstokkun hjá N1 og félagið skiptir um nafn Margrét Guð- mundsdóttir STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fjórir heimsþekktir erlendir fyrir- lesarar fjalla á morgun á Hilton Nor- dica um nýjar áskoranir í stjórnun, að því er Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Ís- lands, segir í samtali við Morgun- blaðið. Yfirskrift ráðstefnunnar, sem er samstarfsverkefni Manino og Við- skiptaráðs, er „Bylting í stjórnun“. Aðspurð segir Ásta að breytt viðhorf til vinnu og framþróun í tækni og þekkingu starfsfólks sé að breyta starfsháttum í fyrirtækjum og stofn- unum. „Það má segja að þessi sígilda miðlæga stjórnun eins og þekkja má af verksmiðjugólfinu sé löngu orðin úrelt. Kröfur til stjórnenda, hvort sem það eru forstjórar, verkefna- stjórar í litlum teymum eða aðrir, eru orðnar allt aðrar,“ segir Ásta. Hún segir sem dæmi að íslenska þjóðin sé í dag orðin hámenntuð, og í 12. sæti á lista Framfarastofnunar Evrópu, OECD, yfir þjóðir með hæsta hlutfall háskólamenntaðra. „Við vitum að þetta er mestmegnis þekkingarstarfsfólk, sem vill vinna sjálfstætt og vill frelsi og sveigjan- leika í vinnunni. Þá vilja þessir ein- staklingar fá aukna ábyrgð og hika ekki við að færa sig til í starfi ef eitt- hvað betra býðst annars staðar.“ Laun ekki aðalmálið Hún segir að í þessu samhengi séu það ekki endilega launin eða vinnu- tíminn sem öllu máli skipti. Aðalmál- ið sé að fólk vinni að einhverju skemmtilegu, störf þess hafi þýðingu og fólk njóti sín í starfi. „Til að það geti gerst þarf að skapa umhverfi og menningu á vinnustað sem styður við það markmið. Þarna er traust lyk- ilorðið. Að fólki sé treyst til að vinna með hag fyrirtækisins að leiðarljósi. Þetta snýst m.a. um að dreifa ákvarð- anatöku, hætta að mynda flöskuhálsa hjá yfirstjórnendum og ýta ákvarð- anatöku niður píramídann.“ Fyrirlesararnir fjórir koma hver úr sinni áttinni að sögn Ástu. Hún segir að Alexander Kjerulf sé t.d. nokkurs konar „hamingjugúrú“ Dan- merkur, en fyrirlestur hans nefnist Happiness at Work eða Hamingja á vinnustaðnum. „Hann segir til dæmis að „Happy Hour“ eigi í raun að vera á milli kl. 9 og 17 á daginn á vinnu- staðnum með það fyrir augum að vellíðan auki framleiðni starfsfólks.“ Yfirskrift fyrirlesturs Benju Stig Fagerland er SHEconomy, eða HÚNhagfræði. Ásta segir að út- gangspunktur Fagerland sé að breyta þurfi kerfinu, ekki konunni. „Hún segir að konur séu að verða stærsti nýmarkaður í viðskiptum í heiminum og menn verði að gefa því gaum eða heltast úr lestinni ella.“ Joost Minnaar mun svo tala m.a. um það að sögn Ástu að fyrirtæki ættu að hætta eilífri langtímamark- miðasetningu en auka frekar til- raunastarfsemi. Að lokum ræðir Jos De Blok meðal annars um það að sjálfstæð teymi einstaklinga með ólíkan bakgrunn starfi best séu þau gerð ábyrg fyrir sínum eigin árangri. Treysta þarf starfsfólki til að vinna að hag fyrirtækis Erindi Alexander Kjerulf, Benja Stig Fagerland, Jos De Blok, Ásta Fjeldsted, Helga Arnardóttir og Joost Minnaar. Bylting í stjórnun » Það eykur vellíðan á vinnu- stað ef starfsmenn fá aukna ábyrgð. » Hámarksfjöldi á vinnustað ætti að vera 60 manns. » Fyrirtæki ættu að hætta í langtímamarkmiðum en gera frekar meiri tilraunir. » Breyta þarf kerfinu, ekki konunni. » Nú stendur yfir alþjóðleg vika hamingju á vinnustað.  Fjórir erlendir fyrirlesarar á stjórnunarráðstefnu Viðskiptaráðs Íslands Greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir mjög lítilli fjölgun ferða- manna á næstu árum, eins og það var orðað á morgunfundi deildarinnar í gærmorgun um íslenska ferðaþjón- ustu, og sagði Erna Björg Sverris- dóttir sérfræðingur að komið væri að kaflaskilum í greininni. Í spá greiningardeildarinnar er gert ráð fyrir að ferðamönnum fjölgi um 4,5% á þessu ári, 1,4% árið 2019, 2,4% árið 2020 og 2,7% árið 2021. Í máli sérfræðinga deildarinnar kom fram að flugfargjöld Icelandair og WOW air þyrftu að hækka, enda væri rekstrartap, EBIT, Icelandair og WOW air í ár um 1.000 kr. á hvern flugfarþega. Þó gæti 10% hækkun flugfargjalda leitt til „skells“ sem hefði í för með sér töluvert minnk- andi heildarneyslu ferðamanna hér á landi, fækkun starfa í ferðageiranum og minni útflutningtekjur þjóðarinn- ar, sem aftur þýddi að viðskiptajöfn- uður færi úr því að vera jákvæður yfir í viðskiptahalla. AirBNB-eignum fækkar Eignum sem boðnar eru til leigu hér á landi á gistisíðunni AirBNB er tekið að fækka, að því er kom einnig fram á fundinum, og vísbending er um að ferðamenn séu að færa sig úr AirBNB yfir í hótelgistingu. Þarna spilar inn í, að mati sér- fræðings deildarinnar, sterkt raun- gengi, hert regluverk og aukin sam- keppni við hótel. Allt þetta hafi mögulega dregið úr hvatanum til að leigja út eignir í gegnum AirBNB. Þá hafi hvati húseigenda til að selja fasteignir sínar í stað þess að leigja þær út aukist vegna hækkandi fast- eignaverðs. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Hari Herbergi Gistinóttum á AirBNB fækkað 5 mánuði í röð í borginni. Spá 1,4% fjölgun ferðamanna 2019  Kaflaskil í ferða- þjónustunni að mati Arion banka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.