Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Þrándur í götu Hópur spakra gæsa hefur haldið til við hringtorg nálægt Perlunni í Öskjuhlíð í Reykjavík síðustu daga og iðulega sýnt aðdáunarverða biðlund þegar bílar eru að flækjast fyrir. Kristinn Magnússon Hvað á að gera þeg- ar ríkisfyrirtæki sem fær rúmlega 4,1 millj- arð króna frá skatt- greiðendum á þessu ári, fer ekki að lögum? Er þá rétt að fjárveit- ingavaldið – Alþingi – taki ákvörðun um að hækka framlögin um 535 milljónir króna á komandi ári? Í frumvarpi til fjárlaga 2019 er gengið út frá því að gert verði vel við Ríkisútvarpið og að skattgreið- endur láti meira af hendi rakna og tryggi ríkisfyrirtækinu rúmlega 4,6 milljarða króna árið 2019. Hækk- unin er svipuð og það kostar að reka Menntaskólann á Egilsstöðum. Hækkunin er töluvert meiri en verja á í framkvæmdaáætlun í mál- efnum fatlaðs fólks og 110 millj- ónum hærri en sú fjárhæð sem Þjóðskjalasafn Íslands fær á kom- andi ári. Fyrirhuguð hækkun á rekstr- arframlögum til Ríkisútvarpsins verður örugglega samþykkt með yf- irgnæfandi meirihluta atkvæða á Al- þingi – enda eiga fáar stofnanir eða ríkisfyrirtæki jafnmarga stuðnings- menn í þingsal og Ríkisútvarpið. Við afgreiðslu fjárlaga munu þingmenn sjá í gegnum fingur sér við Ríkis- útvarpið sem fer ekki eftir skýrum lagafyrir- mælum. Ekki farið að lögum Í liðinni viku vakti ég athygli á því í þing- sal að samkvæmt 4. grein laga um Ríkis- útvarpið væri ríkisfyr- irtækinu skylt að að- skilja allan sam- keppnisrekstur (s.s. sölu auglýsinga og út- leigu á myndveri, tækj- um og húsnæði) frá rekstri sem skil- greindur er sem fjölmiðlaþjónusta í almannaþágu og er rökstuðningur fyrir því að lagður er á nefskattur á flesta Íslendinga og alla lögaðila. Í 4. grein segir meðal annars: „Ríkisútvarpið skal stofna og reka dótturfélög, sem að fullu leyti eru í eigu þess, fyrir aðra starfsemi en þá sem kveðið er á um í 3. gr.“ Lög um Ríkisútvarpið voru sam- þykkt í mars 2013. Ríkisútvarpinu var, með bráðabirgðaákvæði, veitt tímabundin heimild til „að afla tekna með viðskiptaboðum, sölu og leigu á vörum sem tengjast dag- skrárefni þess og annarri þjónustu sem fellur undir 4. gr. þar til dótt- urfélög hafa verið stofnuð og eru tekin til starfa“. Í desember 2015 voru sam- þykktar breytingar á lögum um Ríkisútvarpið og þar kemur skýrt fram að „4. gr. öðlast gildi 1. janúar 2018“. Með öðrum orðum: Tíma- bundin heimild var felld úr gildi með liðlega tveggja ára fyrirvara. Ríkisútvarpið hafði þannig tvö ár til að undirbúa stofnun dótturfélaga og gera aðrar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar kunnu að vera, til að uppfylla skýr fyrirmæli laga. En ekkert var gert. Haldið var áfram eins og ekkert hefði í skorist og þó ekki alveg. Ríkisfyrirtækið herti á samkeppninni við sjálfstæða fjöl- miðla – þurrkaði upp auglýs- ingamarkaðinn í skjóli Heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu. Og hefur nú snúið sér af hörku að því að keppa við einkaaðila á sviði tækja- leigu og útleigu myndvers. Þagnarmúr Það hefur vakið athygli mína hversu fáir virðast hafa áhyggjur af því að ríkisfyrirtæki, sem er með yf- irburðastöðu á markaði, skuli ekki fylgja skýrum fyrirmælum laga. Engu er líkara en sérstakur þagnar- múr sé reistur í hvert skipti sem bent er á eitthvað sem miður fer í rekstri Ríkisútvarpsins. Samtök iðn- aðarins standa utan við múr þagn- arinnar og hafa sent stjórn ríkisfyr- irtækisins bréf þar sem meðal annars er bent á að forsenda heilbrigðis markaðar og samkeppni sé að allir starfi eftir sömu leikreglum, þar á meðal ríkisrekin fyrirtæki. Þess vegna sé mikilvægt að í starfsemi ríkisrekinna fyrirtækja sem að miklu eða öllu leyti eru fjármögnuð af rík- isfé, sé greint á milli almanna- hlutverks þeirra og samkeppn- isreksturs. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í liðinni viku benda Samtök iðnaðar- ins á að það sé skylda stjórnar Ríkisútvarpsins, að sjá til þess að skipulag og starfsemi sé í „réttu og góðu horfi“ og sú hógværa ósk sett fram að stjórnin sjá til þess að koma starfsemi ríkisfjölmiðilsins „þegar í stað í lögmætt horf með því að setja allan samkeppnisrekstur í dóttur- félög“: Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir útvarpsstjóra að verið sé að vinna að útfærslu þessarar laga- greinar [4. grein] í samstarfi við menntamálaráðuneytið: „Það eru ýmis lagaleg álitaefni sem finna þarf lausn á áður en næstu skref verða tekin.“ Bráðabirgðaskjólið er farið Sá er þetta skrifar hefur ekki hugmyndaflug til að átta sig á því hvaða lagalegu álitaefna útvarps- stjóri vísar til. Ákvæði 4. greinar laganna eru skýr og einföld. En ef það er rétt að einhver álitaefni séu eða hafi verið uppi, þá hafði Ríkis- útvarpið (í samstarfi við mennta- málaráðuneytið) liðlega 24 mánuði til að finna „lausn“ á þeim áður en lagaákvæðið tók gildi 1. janúar síð- astliðinn, samkvæmt ákvörðun Al- þingis 2015. Skjólið sem Ríkisút- varpið hafði í bráðabirgðaákvæði, er ekki lengur fyrir hendi. Það er því rangt hjá útvarpsstjóra að halda því fram að núverandi fyrir- komulag á rekstri Ríkisútvarpsins, sé heimilt – sé í samræmi við lög. Þegar ég gerði lögleysuna í Efstaleiti að umtalsefni í þingsal lauk ég málinu mínu með eftirfar- andi: „Núna þegar september er svo gott sem hálfnaður bólar ekkert á því að Ríkisútvarpið taki ákvörðun um það að fara að lögum. Svo getum við velt því upp hér hvernig við ætl- um að styðja við og reyna að styrkja starfsemi frjálsra fjölmiðla, sjálf- stæðra fjölmiðla. Við munum örugg- lega taka til umræðu tillögur menntamálaráðherra í þeim efnum. En er ekki best að byrja þá á því, herra forseti, að láta ríkisstofnanir fara almennt að lögum?“ Eftir Óla Björn Kárason » Það vekur athygli hversu fáir virðast hafa áhyggjur af því að ríkisfyrirtæki, með yfir- burðastöðu á markaði, skuli ekki fylgja skýrum fyrirmælum laga. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Að fara að lögum eða fara ekki að lögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.