Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 24

Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 ✝ María ErnaÓskarsdóttir fæddist á Brú í Biskupstungum 4. október 1940. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut 20. september 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ósk- ar Tómas Guð- mundsson, f. 2.8. 1905, 29.7. 1989, og Marta Aðal- heiður Einarsdóttir, f. 13.1. 1909, l. 5.11. 2004. Þau byrjuðu búskap sinn í Vestmannaeyjum, fluttust þaðan að Arngeirs- stöðum í Fljótshlíð, að Brú í Biskupstungum þar sem bjuggu lengi vel og loks til Reykjavíkur. María Erna ólst upp á Brú í Biskupstungum en fluttist síðar til Reykjavíkur. Systkini Maríu voru: Þor- björg Erna, f. 2.1. 1934, Þorleif- ur Kristján f. 19.11. 1935, l. 21.12. 2009, Ingibjörg, f. 11.6. 1937, Guðmundur Hermann, f. 24.12. 1938, Lilja Jóhanna, f. 25.3. 1946, og Grétar, f. 16.7. 1949. Börn Maríu Ernu eru fjögur: Mörtu er Hannes Svanur Grét- arsson, f. 29.9. 1959 og eiga þau saman synina: a) Grétar, f. 6.9. 1980, og eiginkona hans er Edda Ósk Ólafsdóttir, f. 16.3. 1981. b) Hermann, f. 9.10. 1987, og sam- býliskonan hans er Henný Lindqvist, f. 10.1. 1975. Dóttir þeirra er Freyja Nikki Lind- qvist, f. 9.11. 2008. c) Anton Helgi, f. 20.4. 1993, sambýlis- kona hans er Ingunn Lára Krist- jánsdóttir, f. 11.12.1992. 3) Þórður Ágúst Hlynsson, f. 18.8. 1974, fyrrverandi sambýliskona hans er Þóra Leifsdóttir, f. 9.6. 1980. Eiga þau saman dæturnar: a) Birta María, f. 13.12. 2002, b) Júlía Ósk, f. 28.3. 2007. Þórður kvæntist síðar Astou Boye Mbaye Hlynsson, f. 14.1. 1980 og eiga þau saman börnin: c) Nahla Rós, f. 21.6. 2013, d) Aron Fadel Hlynur, f. 20.3. 2015, e) Abby Lovísa, f. 30.11. 2016. 4) Aðal- heiður Lilja Hlynsdóttir f. 5.2.1979, fyrrverandi sambýlis- maður hennar er Elvar Örn Reynisson, f. 22.3. 1977, og eiga þau saman dæturnar: a) Marta Rut, f. 27.8. 2006. b) Rebekka Ýr, f. 15.7. 2008. Þau Þórð og Aðalheiði átti María Erna með fyrrverandi eiginmanni sínum, Hlyni Smára Þórðarsyni, f. 5.10. 1946. Úför Maríu Ernu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 26. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. 1) Hermann Svanur Sigurðsson, f. 8.3. 1958, l. 9.11. 1980. Skildi hann eftir sig einn son, Guðjón Svan, f. 11.9. 1977, sem hann átti með fyrrverandi sam- býliskonu sinni, Hólmfríði Hjördísi Guðjónsdóttur, f. 6.6. 1958. Guðjón Svanur á tvö börn með fyrrum sambýliskonu sinni, Hrefnu Björg Björnsdóttir, f. 9.8.1977: a) Aníta Ösp Waage, f. 29.8. 1997, og á hún einn son með fyrrverandi sambýlismanni sínum Friðriki Högnasyni, f. 1.10. 1996, Emanúel Mána, f. 25.11. 2016. Núverandi sam- býlismaður hennar er Kristófer Guðmundsson, f. 29.9. 1998. b) Hermann Svanur, f. 13.2. 1999. Núverandi sambýliskona Guð- jóns Svans er Lilja Dögg Schram Magnúsdóttir, f. 25.6. 1981. 2) Helga Marta Helgadótt- ir, f. 7.12. 1961, en hana átti María Erna með fyrrverandi sambýlismanni sínum, Helga Kolbeinssyni, f. 22.5. 1927, d. 8.1.2016. Eiginmaður Helgu Elsku mamma, sárt er að kveðja. Í hvern á ég nú að hringja á morgnana? Og heyra rödd þína segja „já“. Þannig svaraði þú ávallt. Þú varst mikil baráttukona og hafðir afar sterkar skoðanir og litla þolinmæði gagnvart ein- hverju kurteisishjali; þinn stíll var að segja hlutina bara eins og þeir voru. Þú varst mikill dugnaðarforkur, vannst mikið og kvartaðir aldrei. Börnin voru mörg sem fengu að kúra í fanginu á þér, en í yfir 30 ár starfaðir þú sem dag- mamma, þar sem börnin sem þú passaðir voru farin að koma með sín börn í pössun. Þá var handavinna þitt mesta áhuga- mál, sérstaklega prjónaskapur. En á hverju hausti var haldið í Kolaportið til að selja afrakstur ársins og var það mikil stemn- ing. Þú varst alltaf mikil dama, elskaðir glamúr, gull og gling- ur, hælaskó og fallega kjóla. Vildir helst hvít eða litrík föt í fataskápinn þinn og skammaðir okkur systurnar fyrir að ganga bara í svörtu. Okkur Hannesi er í fersku minni ferðin okkar til Spánar 2005 með Öllu systur, Elvari og Antoni Helga. Það var sérstaklega góð minning þegar þú lást á bekkn- um í sólinni og vildir helst ekki hreyfa þig, þú hafðir borgað fyrir sól og þú ætlaðir sko að vera í sól. Sumarið 2017 fengum við fréttirnar um að þú værir kom- inn með krabbamein. Þá hófst mikil barátta sem þú ætlaðir sko ekki að tapa, allan tímann trúðir þú því að þú myndir vinna þennan gest og barðist að öllum mætti. Þú þráðir lífið þrátt fyrir að vera orðin fárveik og ætlaðir ekki að tapa. En sumt getum við ekki ráðið við, elsku mamma. Þín verður sárt saknað en ég veit að vel verður tekið á móti þér fyrir handan. Hemmi bróðir verður með út- breiddan faðminn. Þú hefur loksins fengið frið í hjarta þínu, en alla tíð hefur sorgin verið mikil yfir missi sonar þíns. Elsku mamma, nú er komið að skilnaðarstund, ég kveð með söknuði og mun varðveita minn- ingu þína. Helga Marta Helgadóttir. Litlar gjafir sem gefa lífinu lit. Stöð 2 í bakgrunni og símaspjall. Áramótapartí fyrir fjölskylduna fram á rauða nótt og veitingar með öllu Kaffi í pela þrátt fyrir allt. Spjall um daglega lífið fram á seinustu stund. Krepptur hnefi. Þú gafst ekki upp. Baráttan dó aldrei og lifir enn... (AHH) Anton Helgi Hannesson. Elsku besta amma Mæja okkar. Það er erfitt að hugsa til þess að við fáum ekki að sjá þig aft- ur. Við settumst niður með mömmu og rifjuðum upp fullt af góðum minningum um þig. Þú varst alltaf svo góð við okkur og hugsaðir vel um okkur alveg frá fæðingu, enda varstu dag- amman okkar þegar mamma og pabbi fóru að vinna. Það var alltaf svo gott og gaman að koma til þín og fá að gista hjá þér. Saman áttum við óteljandi kósíkvöld þar sem við kúrðum saman yfir skemmti- legri bíómynd og borðuðum nammi saman, þú varst algjör nammigrís alveg eins og við. En þrátt fyrir allt nammið sem þú gafst okkur var það alltaf soðna ýsan þín sem var okkar uppá- hald. Enginn sýður ýsuna eins og amma Mæja og ekki skemmdu kartöflurnar og smjörið. Þú gast alltaf fengið okkur til að hlæja því þú varst alltaf svo fyndin. Þú gerðir mikið grín að sjálfri þér og það fannst okkur skemmtilegast. T.d. þegar sjón- in þín var að fara og þú komst heim frá augnlækninum með risastór gleraugu sem þú ætl- aðir sko aldrei að nota. En þú settir þau upp fyrir okkur bara svo við gætum hlegið. Og það sem við hlógum. Og þegar þú varst orðin veik núna síðasta vetur og farin að missa hárið gastu samt gert grín að því og fengið okkur til að brosa í gegn- um tárin. Þú dekraðir stöðugt við okk- ur. Það var alltaf gaman að fara með þér í Kringluna um helgar því við komum alltaf heim með ný föt og ný leikföng. Og þegar við heimsóttum þig í Kolaportið laumaðir þú alltaf að okkur smá pening og sagðir okkur að kaupa okkur eitthvað fallegt. Þú áttir líka alltaf til nóg af lit- um og litabókum þegar við komum til þín og það fannst okkur gaman. Þú hafðir gaman af að halda matarboð og komum við alltaf til þín á jólum og páskum. Alltaf laumaðir þú að okkur páskaeggi þegar við fórum frá þér á pásk- unum og á jólunum var alltaf mest spennandi að opna gjaf- irnar frá þér, þær voru líka allt- af flestar frá þér. Og ekki voru afmælisgjafirnar okkar minni. Elsku amma okkar. Mikið eigum við eftir að sakna þín. En við kveikjum nú ljós hvert kvöld fyrir þig og rifjum upp það góða sem þú gafst okkur. Alla þína ást og hlýju knúsin. Takk fyrir að hafa verið amman okkar, við elskum þig. Marta Rut og Rebekka Ýr Elvarsdætur. Amma mín, ég trúi ekki að þú sért farin. Allar minningarnar okkar. Það var alltaf svo gaman að fara með þér í Kolaportið og hjálpa þér að selja það sem þú hafðir prjónað. Ég fékk alltaf að gista hjá þér helgarnar sem ég kom með þér í Kolaportið, það var svo gaman. Við komum alltaf heim pöntuðum pitsu eða fórum á Aktu taktu, horfðum svo á fréttirnar sem mér fannst ekki það gaman en það var allt- af svo fyndið hvað þú gerðir grín að öllu sem kom fram í fréttunum. Þegar fréttirnar voru búnar horfðum við á ein- hverja mynd eða þátt, stundum tvo eða þrjá, og fórum alltaf að sofa eftir miðnætti því við töl- uðum alltaf svo mikið saman. Þegar við vorum komnar upp í rúm kl. svona eitt töluðum við svo lengi saman að við sofn- uðum ekki fyrr en kannski kl. tvö eða þrjú. Allar Kringlu- og Smára- lindarferðirnar okkar, alltaf að fara með ömmu Mæju í Kringl- una og Smáralindina og svo keyptum við ekkert nema mat, nammi og ís. Ég gat líka talað við þig um allt sem ég vildi og það var alltaf bara á milli mín og þín, það var svo gott að vita að ég hafði þig til að tala við um alls konar mál. Ég elska þig svo mikið og er svo miður mín að þú sért farin en þú varst orðin svo pirruð á þessu krabbameini og þú ert komin á miklu betri stað og til Hemma þíns. Ég mun alltaf muna eftir öll- um góðu minningunum okkar og þú verður alltaf til staðar í mínu hjarta. Kveðja, Birta María. María Erna Óskarsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns, föður, afa og langafa, SVEINS SNORRASONAR hæstaréttarlögmanns. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ellen Snorrason Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, SVÖVU SJAFNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Ásvegi 1, Hvanneyri. Pétur Jónsson Ómar Pétursson Íris Björg Sigmarsdóttir Kristján Ingi Pétursson Anna Sigríður Hauksdóttir Kristín Pétursdóttir Øyvind Kulseng og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTRÚN ELLERTSDÓTTIR, Eyjabakka 14, Reykjavík, lést á kvenlækningadeild Landspítalans laugardaginn 22. september. Útför hennar verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 2. október klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Kolbrún Þorsteinsdóttir Matthías Loftsson Þorsteinn R. Kjartansson Lilja Björg Kjartansdóttir Erlendur Ingi Jónsson og langömmubörn Faðir okkar og tengdafaðir, STEFÁN KEMP, Skagfirðingabraut 23, sem lést þriðjudaginn 4. september, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 28. september klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Elísabet Kemp Jón F. Hjartarson Helga Kemp Jean Gudeman Jean Gudeman Guðni Kristjánsson Birna Kemp Ragnar G. Þórðarson Föðurbróðir okkar, BJÖRN Þ. SIGURÐSSON, Bangsi, Höfðabraut 1, Hvammstanga, lést á Heilbrigðisstofnuninni Hvammstanga laugardaginn 22. september. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 12. október klukkan 15. Birgir, Anna, Ósk Jónsbörn Ástkæra sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, dóttir mín og systir okkar, LAUFEY DÍS EINARSDÓTTIR, Vogagerði 1 Vogum á Vatnsleysuströnd, sem lést á heimili sínu mánudaginn 17. september verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í Reykjavík, föstudaginn 28. september klukkan 13. Þorsteinn Frímann Sigurgeirsson Ríkharður Leó Magnússon Ingibjörg Árnadóttir Telma Dögg Magnúsdóttir Óli Sigdór Konráðsson Margrét Erla Gísladóttir Sigurður Lúther Lúthersson Elísa Hafdís Hafþórsdóttir Þráinn Júlíusson Mikael Leó Antonsson Ríkharður Leonard Ríkharðsson Ragnar Týr Ríkharðsson Margrét Erla Einarsdóttir og systkini Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og systir, JÓHANNA RÓS F. HJALTALÍN Stekkjartúni 28, Akureyri, lést sunnudaginn 23. september á heimili sínu. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. september klukkan 13:30. Dagur Magnússon Fannar Magnússon Helga Margrét Ólafsdóttir Friðgeir V. Hjaltalín Salbjörg S. Nóadóttir Eydís F. Hjaltalín Jófríður Friðgeirsdóttir Steinar Þór Alfreðsson og fjölskylda Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.