Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 26

Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Anna Rakel Ró-bertsdóttirGlad, graf- ískur hönnuður, út- varpsmaður, fyrir- sæta og diskótekari, á 40 ára afmæli í dag. Hún byrjaði ung að starfa sem fyr- irsæta og vann mikið erlendis en starfar núna aðallega sem grafískur hönnuður. Hún útskrifaðist úr því námi árið 2007 og hefur starfað sjálfstætt við það síð- an. „Ég er með mörg járn í eldinum þar og það er gaman að vera með í verk- efnum sem eru í startholunum og svo er ég einnig með fastakúnna eins og veitingastaði. Ég hef líka unnið mikið með Jóni Karli Helgasyni kvik- myndagerðarmanni og nú var að koma út önnur ljóðabókin með Svika- skáldum sem er sex kvenna ljóðahópur en ég sá um umbrotið á henni.“ Anna hefur starfað við fjölmiðla gegnum tíðina og sér núna um Popp- land á Rás 2 alla virka daga frá kl. 2 til 4. „Ég hef mikinn áhuga á tón- list, er opin fyrir nýrri tónlist og elska gamla tónlist. Núna er ég að hlusta á nýjustu plötuna með Valdimar. Það sem mér finnst fallegast við tónlistina er hversu áhrifamikil hún getur verið. Tónlistin gleður, hríf- ur, skilur, sameinar og segir sögur, í stóru og smáu samhengi. Það er að segja, maður getur skoðað hana og hlustað þannig hvað er að gerast í sögulegu, landafræðilegu og félagslegu samhengi á þeim tíma sem hún er samin. Mér finnst tónlistarsagan í heild sinni svo skemmtileg og hef verið að horfa á þættina Soundbreaking sem eru á RÚV en þeir eru um hljóðblöndun. Önnur áhugamál eru heimildarmyndir, fjölskyldan, vinir og hreyfing, jóga og að hjóla. Það er rétt að ég nefni hreyfinguna síðast því hún hefur mætt afgangi.“ Það verður þriggja daga afmælisdagskrá hjá Önnu. „Það verður af- mæliskaffi í dag eftir vinnu, svo förum við verðandi hjónin út að borða á morgun og veisla á föstudaginn. Ég ætti að bæta einhverju við á laug- ardaginn, hafa það allt er þegar fernt er í tilefni fertugsafmælisins.“ Anna er trúlofuð Agli Erni Rafnssyni, tónlistarmanni og leiðsögu- manni. Sonur þeirra er Róbert Þrymur Egilsson Glad tveggja ára og stjúpsonur Önnu er Helgi Rafn Egilsson átta ára. Þess má geta að Glad- nafnið kemur frá föðurafa Önnu sem var finnskur. Afmælisbarnið Anna Rakel Róbertsdóttir Glad. Tónlistin sameinar og segir sögur Anna Rakel Róbertsdóttir er fertug í dag )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. Á sgerður Júníusdóttir fæddist Reykjavík 26.9. 1968 og ólst þar upp. Hún var auk þess í sveit hjá föðursystur sinni í Seljatungu í Flóa í nokkur sumur. Ásgerður hóf tónlistarnám sex ára, lærði á flautu og píanó fram yfir unglingsaldur, hóf söngnám 19 ára og stundaði það í 11 ár, í Reykjavík, London og víðar. Hún lauk BA-prófi í listfræði og bókmenntum, MA-prófi í menningarstjórn og er að ljúka MA-prófi í listfræði. Ásgerður hefur verið söngkona í tvo áratugi og komið fram víða um heim. Helsti starfsvettvangur henn- ar hefur þó verið hér heima, enda hefur hún lagt sérstaka áherslu á flutning íslenskrar tónlistar. Hún hefur frumflutt fjölda nýrra tón- verka, s.s. eftir Jórunni Viðar, Atla Heimi Sveinsson, Karólínu Eiríks- dóttur, Hauk Tómasson, Jóhann Jó- hannsson o.fl. Ásgerður gaf út þrjá geisladiska í samvinnu við Smekkleysu en þeir hlutu mikið lof og tilnefningar,m.a. til Íslensku tónlistarverðlaunanna og menningarverðlauna DV. Á geisla- diskum sínum hefur Ásgerður leitast við að feta ókannaðar slóðir í við- fangsefnum og framsetningu. Hún hefur dregið fram tónlist sem áður var lítið eða ekkert flutt og má þar nefna sönglög Magnúsar Blöndal Jó- hannssonar en verk hans má finna á tveimur diska Ásgerðar. Á fyrsta diski hennar, Minn heim- ur og þinn, má heyra lög og ljóð eftir íslenskar konur og spannaði við- fangsefnið 100 ár. Ásgerður hefur unnið með fjölda fólks úr ólíkum geirum tónlistar og blandað mark- visst saman ýmsum tónlistarstílum svo sem klassík, djass, raftónlist, kvikmyndatónlist, poppi o.fl. á disk- um sínum. Ásgerður hefur sungið í ýmsum óperum, nú síðast í óperunni Magnús María eftir Karólínu Eiríksdóttur, en sú sýning ferðaðist í nokkur ár og var m.a. sett á svið í helstu óperu- og leikhúsum Norðurlanda. Hún var auk þess sett á svið í Þjóðleikhúsinu í Ásgerður Júníusdóttir óperusöngkona – 50 ára Söngur og bókmenntir Þau Ásgerður og Sjón eru virt og vel kynnt par í íslensku menningarlífi, hvort á sína vísu. Í smiðjum íslenskra samtímatónskálda Ljósmynd/Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir Afmælisbarnið Ásgerður Júníus- dóttir óperusöngkona. Guðbjörg Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 26. september 1928. Hún er dóttir Ingunnar Guð- jónsdóttur og Páls Einarssonar rafvirkjameistara, ein fjögurra dætra þeirra. Guðbjörg giftist Jóni Inga Rósantssyni árið 1949. Þau eignuðust fjögur börn. Guðbjörg heldur upp á níræðisafmælið með fjölskyldu og vinum. Árnað heilla 90 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.