Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 27
samvinnu við Listahátíð í Reykjavík,
vorið 2015. Ásgerður hefur komið
reglulega fram á Listahátíð í Reykja-
vík, á tónleikum og stærri sýningum,
hefur sungið á erlendum listahátíð-
um og tónleikum og þá einkum til að
kynna íslenska tónlist. Hún hefur
tekið þátt í ýmsum leiksýningum, s.s.
Carmen í Borgarleikhúsinu þar sem
hún lék og söng Carmen, Common
Nonsense í Borgarleikhúsinu,
Hnykli í leikstjórn Margrétar Vil-
hjálmsdóttur og Wide Slumber í
samstarfi við VaVaVoom og Bedro-
om Community.
Ásgerður hefur unnið nokkuð með
myndlistarfólki og tók þátt í framlagi
Íslands til Feneyjartvíæringsins árið
2011. Í verki eftir Libiu Castro og
Ólaf Ólafsson, sigldi hún syngjandi
um kanala Feneyjarborgar á gondól
og með henni léku ítalskir hljóðfæra-
leikarar.
Ásgerður hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar og styrki og þegið
starfslaun. Hún vinnur nú að tveim-
ur nýjum geisladiskum og tón-
leikum. Hún gefur lítið upp um
áform næstu ára en segir þó að „þá
muni hún leita fanga og starfa á
nokkuð framandi slóðum“.
Fjölskylda
Maður Ásgerðar er Sigurjón B.
Sigurðsson, Sjón, f. 27.8. 1962, rithöf-
undur. Foreldrar hans: Sigurður
Geirdal, f. 4.7. 1939, d. 28.11. 2004,
bæjarstjóri í Kópavogi, og Áslaug
Sverrisdóttir, f. 24.9. 1936, fv. banka-
starfsmaður.
Börn Ásgerðar og Sjón eru 1)
Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,
21.7. 1992, ljósmyndari í Reykjavík,
en unnusti hennar er Ólafur Jóhann
Sigurðsson, og 2) Flóki Sig-
urjónsson, f. 30.4. 1999, nemi í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík.
Systkini Ásgerðar eru 1) Ragn-
heiður Júníusdóttir, f. 23.9. 1962, há-
skólakennari og doktorsnemi; 2) Mó-
eiður Júníusdóttir, f. 4.5. 1972,
kennari, guðfræðingur og fyrrv.
söngkona; 3) Kristinn Júníusson, f.
7.6. 1976, tónlistarmaður og nemi í
félagsráðgjöf; 4) Guðlaugur Júníus-
son, f. 7.6. 1976, tónlistarmaður og
verkefnastjóri hjá Klúbbnum Geysi,
og 5) Sigríður Elísabet Benedikts-
dóttir, f. 26.4. 1986, kerfisfræðingur.
Foreldrar Ásgerðar: Júníus H.
Kristinsson, f. 12.2. 1944, d. 7.1. 1983,
sagnfræðingur og skjalavörður á
Þjóðskjalasafninu, og Guðrún Guð-
laugsdóttir, f. 20.7. 1944, rithöfundur
og blaðamaður, gift Guðmundi Páli
Arnarssyni, f. 4.11. 1954, bridds-
kennara og blaðamanni.
Sigríður Jensdóttir
þjóðbúningasaumak. Bolungarvík og Rvík
Elías Þ. Magnússon
skipstj. í Bolungarvík
Þorgerður Nanna
Elíasdóttir
skrifstofuk. í Rvík
Guðlaugur Maggi Einarsson
hrl. og fv. bæjarstj. á Akranesi
Guðrún Guð-
laugsdóttir
rithöf. og blaðam.
í Kópavogi Guðrún Guðlaugsdóttir
borgarfulltr. í Rvík
Einar B. Kristjánsson
húsasmíðam. í Rvík
Vilhelm-
ína Valdi-
marsdótt-
ir húsfr. í
Seljatungu
í Flóa
Kristján Krist-
jánsson (KK)
tónlistarmaður
Kristján Guðlaugsson ritstj. Vísis
Ásgerður Ólafsdóttir sérkennari
Andri Gaukur
Ólafsson skurð-
læknir í Arizona í
Bandaríkjum
Kristján
Einarsson
byggingaverkfr. í
Bandaríkjunum
Jónas Guðlaugsson skáld
Jakob Sigurjón Einarsson
þjónn og tónlistarm. í Rvík
(fórst með Goðafossi)
Sólborg Jens-
dóttir húsfr. í Rvík
Ásgerður
Jensdótt-
ir húsfr. í
Hnífsdal
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
óperusöngvari
Ólafur Kjartan
Guðjónsson
kaupm. á Akranesi
Svanhildur
Jakobsdótt-
ir söngkona
Sigríður
Elísabet Bene-
diktsdóttir
kerfisfræðingur
Ásgerður
Júníusdóttir
Kristinn Júníusson tónlist-
arm. og nemi í félagsráðgjöf
Ragnheiður Júníusdóttir há-
skólakennari og doktorsnemi
Móeiður Júníusdóttir
kennari, guðfr. og söngkona
Guðlaugur Júníusson tón-
listarmaður og verkefnastj.
Sigurjón Júníusson harmonikku-
leikari frá Rútsstöðum
Ellen Kristjáns-
dóttir söngkona
Guðmunda
Elíasdóttir óp-
erusöngkona
Guðjón Baldvin Ólafsson forstj. SÍS
Anna Mjöll Ólafs-
dóttir söngkona í
Los Angeles
Vilborg Sturlaugsdóttir
húsfr. á Stokkseyri
Guðni Gíslason
verkam. á Stokkseyri
Margrét Guðnadóttir
húsfr. á Rútsstöðum
og í Rvík
Kristinn Júníusson
b. á Rútsstöðum í Flóa, lék á harmon-
ikku á sveitaböllum, síðar verkam. í Rvík Jóhanna Jónsdóttir
húsfr. á Rútsstöðum
Júníus Jónsson
b. á Rútsstöðum
Úr frændgarði Ásgerðar Júníusdóttur
Júníus H. Kristinsson
sagnfr. og skjalavörður
á Þjóðskjalasafninu
Með börnunum Ásgerður með
Flóka og Júnínu Líf fyrir áratug.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
Ólafur Jóhann fæddist í Hlíð íGarðahreppi 26.9. 1918 enflutti fimm ára með for-
eldrum sínum að Litla-Hálsi í Grafn-
ingi og fjórum árum síðar að Torfa-
stöðum í sömu sveit. Foreldrar hans
voru Sigurður Jónsson, búfræðingur,
kennari og hreppstjóri, og k.h., Ingi-
björg Þóra Jónsdóttir húsfreyja.
Eiginkona Ólafs Jóhanns var Anna
Jónsdóttir og eignuðust þau tvo syni,
Jón Ólafsson haffræðing og Ólaf Jó-
hann Ólafsson, rithöfund og for-
stjóra.
Ólafur Jóhann sótti fyrirlestra um
nútímabókmenntir og skáld-
sagnaritun hjá Dorothy Brewster og
Manuel Komroff í Columbia Uni-
versity í New York veturinn 1943-44.
Hann stundaði verkamannavinnu og
almenn sveitastörf 1934-40, var bú-
settur í Reykjavík frá 1939, var þar
blaðmaður og síðan starfsmaður
Helgafellsútgáfunnar 1940-44, og
vann um árabil við handrita- og próf-
arkalestur til 1975.
Ólafur var í hópi virtustu rithöf-
unda hér á landi. Eftir hann liggja
fimm smásögur, sex skáldsögur,
tvær smáskáldsögur, fjórar barna-
bækur og fjögur ljóðasöfn. Hann
vakti strax athygli á sér 16 ára með
annarri bók sinni, Við Álftavatn,1934,
en skáldsagan Fjallið og draum-
urinn, sem kom út 1944, er af mörg-
um talin hans höfuðverk. Meðal
þekktari verka hans eru Liggur veg-
urinn þangað?, 1940; Litbrigði jarð-
arinnar, 1947, Vorköld jörð, 1951,
Gangvirkið, 1955; Hreiðrið, 1972,
Seint á ferð, 1972; Að laufferjum,
1972: Að brunnum, 1974; Seiður og
hélog, 1977, Virki og vötn, 1978, og
Drekar og smáfuglar, 1983.
Ritsafn Ólafs Jóhanns kom út hjá
Máli og menningu. Auk þess þýddi
hann Mýs og menn eftir Steinbeck
og samnefnt leikrit.
Ólafur Jóhann hlaut Silfurhestinn,
1972, og bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1976 fyrir ljóðabæk-
urnar Að laufferjum og Að brunnum.
Ólafur Jóhann lést 30.7. 1988.
Merkir Íslendingar
Ólafur Jóhann Sigurðsson
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
95 ára
Bryndís Þorsteinsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
90 ára
Eyþór Júlíusson
Guðbjörg Pálsdóttir
Klemens Sigurgeirsson
Kristín Kristinsdóttir
85 ára
Aðalheiður Edilonsdóttir
Elísabet Rósinkarsdóttir
Sigurður Jónsson
Þóra Kristín Flosadóttir
80 ára
Agnes Guðmundsdóttir
Arndís Ágústsdóttir
Guðmundur Hallgrímsson
Gunnlaugur B. Óskarsson
Haukur Haraldsson
Þórdís Halldórsdóttir
75 ára
Ása Bjarnadóttir
Hulda Friðþjófsdóttir
Hulda Gestsdóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Jón Þórður Jónsson
Kristján Ólafsson
Sigríður Einarsdóttir
Sigurður J. Ársælsson
70 ára
Anna Guðmundsdóttir
Anna Höskuldsdóttir
Evelyne Nihouarn
Gunnar Bjarnason
Halldóra H. Kristinsdóttir
Heiðrún R. Guðmundsdóttir
Jón Sigurðsson
Jórunn Sveinsdóttir
Sesselja U. Magnúsdóttir
60 ára
Aðalheiður Gunnarsdóttir
Gísli Guðni Sveinsson
Jerzy Utratny
Jón Benediktsson
Jón Halldórs Bjarnason
Jón Sigurðsson
Kolbrún Elsa Hauksdóttir
Lilja Kristín Einarsdóttir
Ófeigur Freysson
Ómar Sigurbergsson
Sigrún Erla Sigurðardóttir
Sigurlaug Jakobsdóttir
Stefán Haraldsson
50 ára
Anusorn Thaiprasert
Ása Gunnlaugsdóttir
Bergrún G. Sigurðardóttir
Constantin Stancu
Georg Hansen
Guðjón Axel Guðjónsson
Guðrún Erna Tryggvadóttir
Hálfdán Hjalti Hálfdánarson
Jón Kristinn Auðbergsson
Sigurgeir Höskuldsson
40 ára
Atli Jóhann Guðbjörnsson
Guðmunda Þorsteinsdóttir
Íris Traustadóttir
Jóhanna L:Guðbrandsdóttir
Kristján Pétur Hilmarsson
Ómar Ómarsson
Pétur Helgason
Sigurjóna Sigurjónsdóttir
Vöggur Mar Guðmundsson
30 ára
Aron Högni Georgsson
Ásgeir Vísir Jóhannsson
Dagmara M. Kandora
Eydís Ósk Einarsdóttir
Eygló Sófusdóttir
Fríða María Reynisdóttir
Helga Jóakimsdóttir
Herdís I.A. Svansdóttir
Ingibjörg K. Ingólfsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þorgeir býr í Mos-
fellsbæ, lauk sveinsprófi í
húsasmíði frá Iðnskól-
anum í Hafnarfirði og er
netsérfræðingur og ráð-
gjafi hjá Opnum kerfum.
Maki: Karen Dröfn Hall-
dórsdóttir, f. 1986, starfs-
maður hjá Íslandsbanka.
Sonur: Ágúst Már, f.
2014.
Foreldrar: Elín Arna Þor-
geirsdóttir, f. 1967, gest-
gjafi, og Jón Már Jónson,
f. 1966, lögreglumaður.
Þorgeir Már
Jónsson
30 ára Gylfi ólst upp í
Rifi, býr þar lauk stýri-
mannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykja-
vík og er skipstjóri á
Tryggva Eðvars SH.
Maki: Hafrún Ævars-
dóttir, f. 1991, hafn-
arvörður í Rifi.
Foreldrar: Ásbjörn Ótt-
arsson, f. 1962, skipstjóri
og útgerðarmaður í Rifi,
og Margrét G. Scheving, f.
1962, útgerðarkona. Þau
búa í Rifi.
Gylfi Scheving
Ásbjörnsson
30 ára Guðni Teitur ólst
upp í Kópavogi, hefur
lengst af búið þar, býr nú í
Reykjavík og er sölumað-
ur hjá IKEA.
Systir: Svava Dögg
Björgvinsdóttir, f. 1994,
sem nú er að flytja til
Danmerkur.
Foreldrar: Björgvin Þór
Guðnason, f. 1966, öku-
kennari, og Ásdís Sveins-
dóttir, f. 1966, ökukenn-
ari. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Guðni Teitur
Björgvinsson