Morgunblaðið - 26.09.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 26.09.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50 tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is . Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum. Arctic Star Sæbjúgnahylki Sæbjúgu eru þekkt fyrir: • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu líkamans gegn ýmsum sjúkdómum • Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlíns Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Bruce Dickinson, söngvari hins goð- sögulega málmbands Iron Maiden og flugstjóri með meiru, mun troða upp í Hörpu sunnudaginn 16. desember næstkomandi. Ekki er um tónleika að ræða, heldur einskonar eins manns leikhúsgjörning eða spjallsýningu undir yfirskriftinni, Hið talaða orð (Spoken Word). Sýningin er tvískipt; í fyrri hlut- anum fjallar Dickinson í máli og myndum um feril sinn en hann er maður eigi einhamur, eins og þar stendur. Auk þess að hafa verið söngvari Iron Maiden í 37 ár (með stuttu hléi á tíunda áratugnum) er Dickinson atvinnuflugmaður, við- skiptajöfur, bruggari, frumkvöðull, rithöfundur, fyrirlesari, útvarps- maður og fyrrverandi skylminga- kappi á heimsmælikvarða, svo fátt eitt sé nefnt. Frásögnin byggist að mestu á endurminningum hans, What Does This Button Do?, sem Dickinson skrifaði ekki bara sjálfur, heldur handskrifaði og komu út á síð- asta ári. „Gestir mega eiga von á óborganlegum sögum og vandræða- legu myndefni,“ segir í kynningu. Tekur við spurningum úr sal Er það bara ég, eða minnir þetta á einhvern hátt á spjallsýningar Kaffi- brúsakarlanna í gamla daga? Nema hvað þessi er einn á ferð, Kaffi- Bruce-akarlinn. Seinni hluti sýningarinnar er fyr- irspurnatími, þar sem gestum gefst tækifæri til að spyrja Dickinson spjörunum úr. Hverjum miða fylgir áritað eintak af endurminningum hans. Hvor hluti stendur í um 45 til 50 mínútur. What Does This Button Do? er metsölubók bæði í Bandaríkjunum og heimalandi Dickinsons, Bretlandi. „Dickinson er eins og við var að búast sögumaður fram í fingur- góma ... ótrúlegur maður sem veitir öðrum innblástur,“ skrifaði tímaritið LOUD Magazine. „Dickinson er ekki bara málm- goðsögn. Hann er Málmgoðsögnin,“ skrifaði tímaritið Noisey. Dickinson skrifaði einnig tvær sat- írískar skáldsögur snemma á tíunda áratugnum og handritið að kvik- myndinni Chemical Wedding ásamt leikstjóranum Julian Doyle en hún var frumsýnd árið 2008. Dickinson lék nokkur lítil hlutverk í myndinni. Gera má ráð fyrir safaríkum sög- um frá Íslandi á sýningunni en Dick- inson hefur tengst landinu sterkum böndum í hálfan annan áratug, eftir að hann hóf að fljúga fyrir Iceland sáluga Express og eins og margir vita er breiðþotan sem Iron Maiden flýg- ur á milli tónleika, Ed Force One, í eigu Air Atlanta. Dickinson mun ein- mitt hafa lokið við endurminning- arnar um borð í henni á Book of So- uls-heimstúrnum. Dickinson var um tíma markaðs- stjóri flugfélagsins Astraeus, sem flaug einmitt fyrir Iceland Express, en það lagði síðar upp laupana. Líf kappans hefur ekki alltaf verið dans á rósum en hann greindist með krabbamein í tungu, af öllum stöðum, árið 2015. Hann undirgekkst í kjölfar- ið meðferð, þar sem komist var fyrir meinið. Það var einmitt að meðferð lokinni sem Dickinson lauk þjálfun á Boeing 747-vélar, ásamt fleiri flug- mönnum frá Air Atlanta. Eftir það hefur hann flogið Ed Force One til 36 landa, vítt og breitt um heiminn. Þot- an er merkt Iron Maiden í bak og fyr- ir og hirðsveinn bandsins, hinn óg- urlegi Eddie the ’Ead, brosir kankvís við loftfarendum. Þá er bjór þeirra Maiden-manna, Trooper, vel kynntur á vélarskrokknum en hann hefur ein- mitt fengist í Vínbúðinni undanfarin misseri. Ekki þarf að spyrja að því að Dickinson á heiðurinn af uppskrift- inni ásamt bruggmeistara Rob- insons-brugghússins í Stockport. Trooper kom á markað árið 2013 og varð fljótt vinsælasti bjór framleið- andans. Fleiri tegundir hafa bæst við undir hatti Trooper, meðal annars hinn fágæti 666 en áfengishlutfallið í honum er að sjálfsögðu 6,66%. Fjárfestir líka í flugi Dickinson flýgur ekki bara sjálfur, hann hefur einnig komið að fjárfest- ingum í fluggeiranum. Hann hefur til að mynda tekið þátt í endurreisn afr- íska flugfélagsins Air Djibouti og á hlut í stærsta loftskipi heims, helíum- fylltu loftfari sem flogið getur mann- laust vikum saman. Þá er hann einn af fjárfestunum á bak við svokallaðan „fæðudróna“ sem hefur þann eig- inleika að koma fæðu og lyfjum til fólks í neyð. Loks mun Dickinson vera að leggja drög að geimferða- skrifstofu. Dagsatt. Útfærslan liggur ekki fyrir í smáatriðum. Af Iron Maiden er það að frétta að bandið hefur nýlega lokið við Evr- óputúr, þar sem Spitfire-flugvél lék stórt hlutverk á sviðinu, en næstu mánuði mun Dickinson einbeita sér að spjallsýningunni, þar sem Norð- urlöndin og Ástralía eru undir. Að sýningunni stendur norskt fyr- irtæki, Catwork. Miðasala hefst á föstudaginn kemur á harpa.is. Ljósmynd/John McMurtrie Flugstjórinn Bruce Dickinson fyrir framan Ed Force One, hirðþotu Iron Maiden, sem er í eigu Air Atlanta. Ljósmynd/John McMurtrie Söngvarinn Dickinson á sviði með Iron Maiden. Ef vel er hlustað má heyra hann syngja slagarann The Trooper en eftir honum heitir bjór kappans. Kaffi-Bruce-akarlinn kemur  Bruce Dickinson, söngvari málmbandsins Iron Maiden og flugstjóri með meiru, fer yfir litríkan feril sinn í máli og myndum á spjallsýningu í Hörpu í desember  Lofar safaríkum sögum frá Íslandi Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, og Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýn- inga og miðlunar, fjalla um sýn- inguna Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? í hádegisfyrir- lestri á vegum Listfræðafélags Ís- lands, í dag, miðvikudag, kl. 12 í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? er viðamikil sýning sem staðið hefur yfir í tveimur safnahúsum Listasafns Reykjavík- ur, Hafnarhúsinu og á Kjarvals- stöðum, frá því í júní. Þar má sjá listamenn allt frá því í byrjun síð- ustu aldar til dagsins í dag takast á við hálendið á ólíkan hátt. Fjölbreytt Verk eftir Pétur Thomsen og Katrínu Sigurðardóttur á sýningunni. Fjalla um Einskis- mannsland í dag Útvarpskonan Una Margrét Jóns- dóttir flytur erindi um leiki barna frá fyrri tíð í Bókasafni Kópavogs í dag kl. 12.15. Una mun stikla á stóru í sögu íslenskra leikjasöngva allt frá 18. öld og fram yfir alda- mótin 2000, að því er fram kemur í tilkynningu. „Meðal þess sem kem- ur við sögu er stríðnisrím frá 18. öld, rómantískir söngdansar frá aldamótunum 1900 og klappleikir frá síðustu áratugum,“ segir þar. Viðburðurinn er liður í dagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi sem fer fram í Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Héraðsskjalasafni eða í Salnum í hverri viku. Viðburðurinn hlaut styrk frá nefnd um fullveldisafmæli Íslands og aðgangur að honum er ókeypis. Fróð Una Margrét Jónsdóttir útvarpskona flytur fróðlegan fyrirlestur. Erindi um leiki barna frá fyrri tíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.