Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 12

Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 12
K olbrún er margslunginn persónuleiki. Hún vinnur krefjandi vinnu í eignastýr- ingu Íslandsbanka, stundar golf eins mikið og hún getur, sinnir barnabarninu af kostgæfni, elskar að þrífa, að ferðast og njóta lífsins. Hún er ein með öllu, alin upp í Bret- landi og er andi heimilisins svolítið breskt. Heimilið ber svo sannarlega merki þess að eigandinn elskar að þrífa og gera huggulegt í kringum sig. „Frá því ég var lítil stelpa hef ég haft áhuga á því að hafa fallegt í kringum mig. Ég var alin upp á fal- legu heimili sjálf svo væntanlega hef ég fengið þetta frá foreldrum mín- um.“ Gulu gúmmíhanskarnir mikið notaðir Er heimilið alltaf svona hreint? „Já, ég er með hreingerningaræði. Tengdasonur minn segir oft: Jæja, þá er hún búin að setja upp gulu gúmmíhanskana. Þetta er nánast geggjun hjá mér, í það minnsta smá- bilun. Málið er bara að ég elska að þrífa og að hafa fallegt og hreint í kringum mig. Ég er skipulögð í eðli mínu og geri hlutina einfalda. Allt á sinn stað og ég er róleg með allt hreint og fallegt þar sem ég bý.“ Hvernig geturðu komið þessu þrifæði áfram? ,,Þú verður bara að koma og búa hjá mér, ég skal kenna þér,“ segir Kolbrún og brosir. Síðan lýsir hún einföldu kerfi þar sem hún kemur heim, fer úr vinnufötunum inni í skúr. Fer þar í útifötin og leggur af stað í göngu með hundinn sinn. Hefurðu alltaf búið utan við mið- borgina? „Nei, ég hef átt mitt miðborg- artímabil. Ég bjó á sínum tíma á Bergstaðastræti og síðan á Öldu- götu. En þessi staður við Elliðavatn- ið er draumur fyrir mig og fjöl- skylduna. Svo ekki sé talað um hundinn minn sem elskar að fara í langa göngutúra um fallega náttúr- una hér í kring.“ Heimili Kolbrúnar er mjög tíma- laust. Spáir hún í nýjustu tísku og strauma? „Nei, þegar ég geri heimili mitt þá vil ég hafa það tímalaust, í mín- Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég er með hreingerningaræði“ Kolbrún Kolbeinsdóttir verðbréfamiðlari býr í fal- legu raðhúsi uppi við El- liðavatn ásamt dóttur sinni Elísabetu Mettu, kærasta hennar Ágústi Frey og syni þeirra Viktori Svan. Hún elskar að taka til og þrífa. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Það er ein heild á öllu hjá Kolbrúnu. Kolbrún vill hafa allt hreint og fallegt í kringum sig. Bretland á sinn sess hjá Kolbrúnu. Kolbrún Kolbeinsdóttir hannaði allt heima hjá sér. Hún hefur verið dugleg í gegnum tíðina að skoða m.a. bresk hönnunarblöð.  SJÁ SÍÐU 14 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.