Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 48
heilbrigðari. Við erum mjög hrifin
af því að það sé hægt að elda mat-
inn á meðan börnin gera heima-
vinnuna sína á eyjunni. Í þessu til-
felli var gerður vínskápur sem er
felldur inn í innréttinguna. Þegar
skápurinn er opnaður koma kaffivél
og glös í ljós því þau eru falin inni í
skápnum.“
Hvað finnst þér skipta mestu
máli þegar íbúð er hönnuð?
„Að flæðið virki vel og „inside
out“ er notað við hvert tækifæri og
hvar sem mögulegt er þar,“ segir
Erla en þá er hún að tala um að
það sé hægt að hafa öll rými mjög
opin og þannig sé hægt að opna
upp á gátt út í garð eða út á svalir.
Í hitanum í Kaliforníu er það
kannski örlítið vinsælla en á Íslandi
þar sem minni líkur eru á að það
rigni inn í stofu.
„Hönnunin þarf líka að standast
tímans tönn, við leggjum upp úr
því að nota efni sem eru klassísk,
ekki trendí,“ segir hún.
Hvað gerir heimili heimilislegt?
„Fólkið, persónulegir munir og
minningar.“
Hvernig er lífsstíll fólks að
breytast og hvernig hefur það áhrif
á hönnun?
„Fólk er ekki eins upptekið af
því að hafa mikið skápapláss og
sem betur fer eru nú allir komnir
frá því að vera með teppi á svefn-
herbergjunum eins og tíðkaðist
víða hér áður fyrr. Sjálfbærni hefur
mikil áhrif á hönnun í dag. Allt frá
því hvar hönnunin er, hvaða efni
eru notið og hvernig hönnunin er
útfærð. Mikilvægt er að sjálfbær
hönnun sé partur af hönnuninni frá
upphafi og staðsetning er mik-
ilvæg.“
Viður gerir rými hlýlegt.
Ekki er verra þegar viðurinn
fær að fljóta upp á veggi.
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Klassísk gæða húsgögn á g
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
óðu verði
Sófasett
Borðstofuborð
Stólar
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
Kommóður/hillur
o.m.fl.
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
BELLUS VISBY
Hornsófi
KRAGELUND OTTO
KRAGELUND K371
Kragelund stólar
K 406