Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 22
finna í húsinu. Húsið ræður endur-
gerðinni hverju sinni. Ég reyni að
tengjast sálinni í hverju húsi, leitast
við að kynna mér sögu þess og hvaða
hugmyndir arkitektinn var með í
upphafi þegar húsið var byggt. Eins
nýtist námið í versluninni minni.
Hver hlutur sem við bjóðum upp á er
með sína sál og sögu. Ég mæti öllum
þar sem þeir eru þegar þeir koma
inn í verslunina. Sumir eru að leita
að jafnvægi í lífinu í gegnum hluti.
Aðrir að leita eftir því að poppa að-
eins upp hlutina. Þessi sál kemur í
gegnum liti, áferð og lögun. Einnig í
gegnum söguna á bak við hlutinn og
hvar þeir voru gerðir hverju sinni.
Handverk og vinnan sem er sett í
hlutina skiptir svo miklu máli að
mínu mati. Ég er hrifin af því sem ég
finn í Frakklandi, á Ítalíu og í Lond-
on svo dæmi séu tekin.“
Arinninn í uppáhaldi
Hverjir eru uppáhaldshlutirnir á
heimilinu?
„Arinninn er í uppáhaldi og gefur
orku og yl eftir annasama daga.“
Hver einasti hlutur inni í húsinu
hjá Ingu Bryndísi er einstakur. Á
annarri hæð hússins er baðherbergi
inn af svefnherbergi. Þar er undur-
fagur spegill og blöndunartæki sem
eru öðruvísi en það sem áður hefur
sést hér á landi.
„Spegillinn á sér sögu og kemur
frá Austurlöndum fjær. Blöndunar-
tækin eru bresk. Þau eru hand-
smíðuð í London og við hjá Magnólíu
erum umboðsaðilar fyrir þau. Þess
má geta að þetta er eitt elsta og virt-
asta fyrirtækið í Bretlandi í þessum
geira. Þetta er tímalaus hönnun með
sál. Það eru afar fá fyrirtæki sem
hafa handverkið að leiðarljósi líkt og
þeir og það kunnum við að meta.“
Heimilið er heilagt athvarf
Hvar kjarnar þú þig?
„Fyrir utan heimilið, sem í mínum
huga er heilagt athvarf, þá stunda ég
sjóböð, göngutúra og baka af hjart-
ans lyst.“
Hvernig eru dæmigerðar helgar í
fjölskyldunni?
„Við nýtum helgarnar til að
byggja okkur upp fyrir komandi
viku. Förum í ræktina, í sund, á
kaffihús, horfum á bíómyndir. Eins
þykir okkur gaman að hitta vini um
helgar og vera með fjölskyldunni.
Við höfum gaman af því að halda
matarboð og upplifa gleði með þeim
sem eru okkur kærir.“
Hvað er gert á kvöldin þegar mat-
urinn er undirbúinn?
„Við hlustum á tónlist, kveikjum á
kertum og kveikjum upp í arninum.
Með því sköpum við notalega stemn-
ingu og svífum ljúflega inn í kvöldið.“
Hvers getur þú ekki verið án
heima?
Svarti skápurinn er úr Magnoliu ásamt flest
öðru innbúi. Borstofustólar koma frá Tine K,
borðstofuborðið er Magnolia design.
Sófinn kemur frá
Hamborg. Arininn er
í sérstöku uppáhaldi
hjá Ingu Bryndísi.
SJÁ SÍÐU 24
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?