Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 44

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 SMÁRATORG - KORPUTORG - SELFOSS www.pier.is VELÚR KOLLAR 12.990,- SANPAOLO SÓFI 149.900,- VELÚR KOLLAR 12.990,- KERAMIK GÓLFVASAR STÆRRI 49.900,- MINNI 29.900,- LEIDEN SÓFABORÐ 19.900,- HEIMILISILMIR 3.990,- NÝ JAR VÖ RU R! fékk að vera í átta mánuði allan daginn með honum og við saman og Anja fékk tíma með mér eftir komu nýja ein- staklingsins sem hún hefði ekki fengið jafn mikið af heima út af hinu daglega lífi á Íslandi,“ segir Linda. Hvernig er venjulegur dagur í lífi fjölskyldunnar? „Eftir að ég fór að vinna og Esjar í leikskóla nú í ágúst er venjulegur dag- ur hjá okkur mjög venjulegur og ís- lenskur. Við vöknum öll saman á morgnana og hefjum daginn. Við erum svo heppin hér að skólinn hennar Önju byrjar ekki fyrr en 8:50, svo við erum alveg laus við allt stress á morgnana. Auk þess er gríðarlega jákvætt að það er ekki erfitt fyrir hana að vakna eða einhver neikvæðni í henni því að hún sefur lengur og vaknar í meiri birtu og ró. Seinnipartinum reynum við Stein- ar að ná saman heima með Esjar, en okkur finnst mikilvægt að vera saman á þessum tíma sem oft getur verið krefjandi. Steinar er þó einnig í bæj- arstjórn hér og oddviti Héraðslistans, svo hann lendir nokkrum sinnum í mánuði í fundarsetu seinnipartinn. Anja er mjög virk í tómstundum og vinmörg svo hún er úti um allt í sínu félagslífi. Við borðum síðan saman kvöldmat, hjálpumst að við frágang á heimilinu og að koma Esjari í svefn. Við stundum síðan jóga og fótbolta, en annars fara kvöldin í mikil notalegheit á heimilinu sem við Steinar eyðum í sófanum að lesa bækur eða vinna, ég í Unalome.is og hann í pólitíkinni. Nú eða bara fyrir framan sjónvarpið. Um helgar reynum við að brjóta vikuna upp með því að keyra um Aust- urlandið og kíkja á áhugaverða staði í nágrenninu, njóta náttúrunnar hér í kring eða vera saman heima fyrir. Síð- ustu mánuðir hafa þó vissulega farið mikið í að nota allan frítíma í að stand- setja húsið okkar.“ Fjölskyldan er samheldin og segir Linda að þau kunni vel að njóta litlu hlutanna í lífinu. „Við kunnum vel að meta litla og notalega hluti líkt og gott kaffi og súkkulaði með því, góða bók, hlusta á góða tónlist, njóta fallegrar náttúru og sólarlagsins. Okkur finnst gaman að ferðast og höfum gert mikið af því síð- an við Steinar kynntumst. En við höf- um mörg markmið sem okkur langar að afreka og fá út úr lífinu,“ segir hún og bætir við: „Við Steinar erum þó einnig mjög ólík þar sem Steinar er rólegur og þol- inmóður maður, en ég hvatvís, skap- stór og langar helst að gleypa heiminn strax í dag. Við náum þó að vega hvort annað upp á ágætan hátt. Við mæðgur deilum áhuga á fallegum hlutum og getum báðar grátið yfir fallegum lög- um. Við höfum líka mikla sköp- unarhæfni og erum að hanna okkar eigin línu saman sem við munum setja í sölu á Unalome í haust.“ Ljósir tónar prýða stofuna. Hengirúmið setur algerlega punktinn yfir i-ið. Kerta- stjakarnir eru frá Iittala. „Húsgögnin eru allt frá því að vera fjölda- framleidd úr IKEA eða sérstakir hlutir sem ég hef erft, látið sérhanna, borið með mér frá Asíu eða eins og til dæmis hlutur sem ég eyddi öllum mínum peningum og meira til þegar ég var einstæð móðir í háskólanámi til að eignast! Hvítur skenkur, hringlaga spegill og Buffalo hauskúpa prýða stofuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.