Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 8

Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 8
Krefst lögbanns á Tekjur.is „Það er mjög skýrt í mínum huga að hér er um brot að ræða, að það sé ómaklega vegið að friðhelgi einkalífs almennings, og að það sé rétt að fá lögbann á þessa vinnslu upplýs- inga.“ Þetta sagði Ingvar Smári Birgisson, lög- fræðingur og for- maður Sambands ungra sjálf- stæðismanna í samtali við mbl.is í gær, en hann hefur krafist lög- banns á vefinn Tekjur.is. Á vefnum er hægt að fletta upp tekjum og skattaupplýsingum allra Íslendinga 18 ára og eldri, gegn greiðslu áskriftargjalds, en Visku- brunnur ehf. er rekstraraðili síðunn- ar. Lögin sett fyrir tíma netsins Persónuvernd höfðu í gær borist níu erindi vegna Tekjur.is, þar af ein formleg kvörtun, og er málið til skoðunar. „Ég tel að það hvernig vefsíðan Tekjur.is notar fjárhagsupplýsingar landsmanna, sem fengnar eru úr skattskrá ríkisskattstjóra, ekki standast lög. Í gegnum tíðina hefur umfjöllun um skatt og launa- greiðslur landsmanna verið byggð á ákvæði í tekjuskattslögum sem var sett fyrir tíma internetsins,“ sagði Ingvar. Í ákvæðinu segir að opinber birt- ing á upplýsingum um álagða skatta sem koma fram í skattskrá, bæði í heild eða að hluta, sé heimil. Vinnsla upplýsinganna standist ekki persónuverndarlög Ingvar sagði þetta ákvæði vissu- lega fela í sér takmörkun á friðhelgi einkalífs og borgaralegum réttind- um almennings og bæri þess vegna að túlka þröngt. „Í ljósi þess að Per- sónuvernd hefur áður úrskurðað í sambærilegu máli er varðaði Credit- info, þar sem þeir reyndu að miðla upplýsingum úr skattskrá ríkis- skattstjóra til viðskiptavina sinna gegn greiðslu, líkt og Viskubrunnur gerir, og taldi það ólöglegt, þá er rétt að láta á það reyna að fá lögbann.“ Ingvar sagðist telja að vinnsla þeirra upplýsinga sem Viskubrunn- ur byði upp á gegn greiðslu stæðist ekki lög um persónuvernd sem hefðu styrkst mikið á þessu ári.  Níu erindi til Persónuverndar í gær Ingvar Smári Birgisson 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Mörgum spurningum er ennósvarað um braggamálið og ekki er líklegt að svar við þeim öll- um fáist með rannsókn innri endur- skoðunar. Innri endurskoðun borg- arinnar heyrir und- ir borgarstjóra og eins og menn muna hafnaði meirihlut- inn þar að auki þeirri tillögu minni- hlutans að þáttur borgarstjóra í braggamálinu yrði kannaður sérstaklega.    Enginn skyldi því búast við aðvelt verði við steinum til að kanna hvað borgarstjóri vissi eða hvenær, hvað hann gerði eða gerði ekki.    Það er til að mynda ólíklegt aðskoðuð verði sérstaklega sú staðreynd að braggaverkefnið var unnið á vegum skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, sem er staðsett í ráðhúsinu og heyrir beint undir borgarstjóra og borgarritara.    Bent hefur verið á að verkefni afþessu tagi hefði alla jafna átt að heyra undir umhverfis- og skipulagssvið, en af einhverjum ástæðum var það sett undir skrif- stofu í ráðhúsinu þar sem borg- arstjóri hefur enn beinni stjórn á verkinu.    Og þeim mun meiri furðu vekurað borgarstjóri skuli nú koma fram og láta eins og hann sé nýbú- inn að heyra af framúrkeyrslunni í Nauthólsvík.    Ef borgarstjóri fréttir ekki afframúrkeyrslu gæluverkefnis sem unnið er að á skrifstofu sem undir hann heyrir og er til húsa í ráðhúsinu, hvað fréttir hann þá? Dagur B. Eggertsson Hvað fréttir borgarstjóri? STAKSTEINAR Vegagerðin hefur auglýst eftir til- boðum í fyrsta hluta breikkunar Suðurlandsvegar frá Hveragerði að Selfossi. Þessi kafli liggur frá Varmá, sem er rétt austan við Hveragerði, og að Gljúfurholtsá rétt vestan Kotstrandar í Ölfusi, alls 2,5 kílómetrar. Þetta verður tveir-plús- einn-vegur þar sem skiptast á ein og tvær akreinar í hvora átt. Vegrið mun aðskilja akstursstefnur. Hins vegar verður undirbygging miðuð við að hann verði tvöfaldaður í fram- tíðinni. Í verkinu felst einnig gerð nýrra gatnamóta við Vallaveg og Ölfus- borgaveg svo og gerð nýrra hliðar- vega sem tengjast nýjum vegamót- um, annars vegar Ölfusvegar frá Ölfusborgavegi að Hvammsvegi og hins vegar Ásnesvegi frá Vallavegi að Ásnesi. Inni í verkinu er einnig breikkun brúar yfir Varmá og undir- göng austan Varmár fyrir gangandi og ríðandi og breytingar á lagna- kerfum veitufyrirtækja sem og ný- lagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru. Verkinu skal vera að fullu lokið 15. september 2019. Tilboð verða opnuð hjá Vegagerðinni þriðjudaginn 13. nóvember nk. Útboð þetta er einnig auglýst á hinu evrópska efnahags- svæði (EES). sisi@mbl.is Óskar eftir tilboðum í breikkun  Suðurlandsvegur verður breikkaður á 2,5 kílómetra kafla frá Hveragerði Morgunblaðið/Sverrir Kotströnd Hringvegurinn verður breikkaður þangað frá Hveragerði. TWIN LIGHT GARDÍNUM Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.