Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 16

Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár. Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora. 16. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 115.78 116.34 116.06 Sterlingspund 153.06 153.8 153.43 Kanadadalur 88.95 89.47 89.21 Dönsk króna 17.962 18.068 18.015 Norsk króna 14.153 14.237 14.195 Sænsk króna 12.939 13.015 12.977 Svissn. franki 116.69 117.35 117.02 Japanskt jen 1.0306 1.0366 1.0336 SDR 161.66 162.62 162.14 Evra 134.03 134.77 134.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.4432 Hrávöruverð Gull 1218.75 ($/únsa) Ál 2044.5 ($/tonn) LME Hráolía 80.28 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Fimmtán félög af átján á aðallista Kauphallar Íslands lækkuðu í við- skiptum gærdagsins. Mest lækkuðu bréf Haga um tæp 1,7% og námu við- skipti með félagið 40,7 milljónum króna. Þá lækkaði fasteignafélagið Eik um 1,5% í ríflega 27 milljóna við- skiptum. Bréf N1 lækkuðu um 1,4% í tæplega 105 milljóna króna viðskiptum sem voru þau næstumfangsmestu meðal félaganna. Mest reyndust við- skipti með bréf Arion banka og námu þau ríflega 296,5 milljónum. Lækkuðu bréf bankans um 0,12% í þeim. Aðeins bréf Sjóvár hækkuðu og nam hækkunin tæpum 0,5% í 42,6 milljóna viðskiptum. Bréf Heimavalla og Origo stóðu í stað. Önnur félög sem lækkuðu um meira en 1% voru Skeljungur, Sím- inn og Marel. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hef- ur lækkað um 2,9% síðustu vikuna. Á síðustu sex mánuðum nemur lækkunin 10,72%. Frá áramótum nemur lækkunin hins vegar 2,62%. Vikan byrjaði á lækk- unum í Kauphöllinni STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Máltíðamarkaðurinn svokallaði er markaður sem fer ört vaxandi hér á landi líkt og erlendis og telja kunn- ugir að markaðurinn eigi enn eitt- hvað inni til þess að ná 2% af heildar- matarinnkaupum. Því hlutfalli hefur þessi markaður náð víða erlendis. Fyrirtækið Eldum rétt hóf innreið á markaðinn árið 2014 og hefur síðan þá boðið landsmönnum upp á fyrir- fram ákveðna rétti sem aðeins þarf að skera niður og elda. Í byrjun þessa árs hóf nýtt fyrirtæki að nafni Einn, tveir & elda starfsemi sína en núna nýlega hafa stærri matvöruverslanir á borð við Bónus, Hagkaup, Krónuna og Nettó verið að bjóða upp á svör við spurningunni hvimleiðu: „Hvað á að vera í matinn?“ Fólk meðvitaðra um valkostinn Veltan hjá Eldum rétt hefur aukist töluvert á undanförnum árum. Rekstrartekjur fyrirtækisins árið 2017 voru 811 milljónir króna og uxu um 43% frá fyrra ári er salan nam 568 milljónum en þá var um fjórföld- un frá 2015 að ræða. Hagnaður fé- lagsins í fyrra var auk þess 81 milljón króna. Aðspurður segir Kristófer Júlíus Leifsson, annar stofnenda fyrirtækisins, að rekstrartekjurnar verði svipaðar í ár og í fyrra. En finnur hann fyrir aukinni sam- keppni? „Ekkert þannig framan af ári. En ég gæti trúað því að mark- aðurinn hafi stækkað. Að fólk sé orð- ið meðvitaðra um þennan valkost. Þessa tegund af vöru. Við þurfum bara að bíða og sjá. En það er flott að vera kominn með samkeppni. Það heldur okkur á tánum og markaður- inn heldur áfram að þróast í rétta átt,“ segir Kristófer Júlíus í samtali við Morgunblaðið. Í Bónus var farið af stað með nýja vörulínu í september sem ber nafnið 20-30, og vísar til þess að það taki 20- 30 mínútur að elda réttina. „Salan hefur verið mjög góð og framar okk- ar björtustu vonum. Fólk tekur vel í þá litlu matarsóun sem þetta hefur í för með sér. Það kemur allt tilbúið, þú þarft ekki að skera neitt. Græn- metið kemur niðurskorið og þetta er allt saman ferskt. Þú ert í rauninni bara að elda sjálfur úr fersku hráefni og það er búið að taka í burtu þennan sóunarfaktor,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Að sögn talsmanns Einn, tveir & elda selur fyrirtækið þúsundir mál- tíða á viku en það hóf starfsemi í byrjun þessa árs og framleiðir m.a. máltíðir fyrir Nettó og Heimkaup. Þrátt fyrir aukna samkeppni er meira að gera hjá fyrirtækinu en fulltrúar þess áttu von á. „Okkar svar við Eldum rétt er það sem við köllum „Korter í fjögur“. Þar erum við með allt sem þú þarft á ein- um stað sem þú getur gripið með þér. Það hefur fengið mjög góðar mót- tökur,“ segir Gréta María Grétars- dóttir, framkvæmdastjóri Krónunn- ar. Aukin samkeppni á máltíðamarkaðnum Morgunblaðið/Hari Matarpakkar Máltíðamarkaðurinn hefur stækkað töluvert frá því að fyrirtækið Eldum rétt hóf starfsemi árið 2014. Máltíðamarkaðurinn » Eldum rétt hóf innreið á markaðinn árið 2014. » Tekjur fyrirtækisins jukust um 43% á milli 2016 og 2017 og fóru úr 568 milljónum í 811. » Samkeppni á máltíðamark- aðnum hefur aukist töluvert á árinu og hafa margar stærri matvöruverslanir komið með lausnir til að bregðast við breyttum þörfum neytenda.  Valmöguleikum um fyrirfram útbúnar máltíðir hefur fjölgað mjög á árinu Heildarvelta innlendra greiðslu- korta jókst um 0,7% í september síð- astliðnum, samanborið við sama mánuð í fyrra. Veltan nam 78,1 millj- arði króna og lækkaði um 9,3% frá því í ágúst. Þetta kemur fram í ný- birtum tölum frá Seðlabanka Ís- lands. Úr þeim tölum má ráða að samdrátturinn milli september og ágúst er hlutfallslega mun meiri í ár en í fyrra þegar hann reyndist 4,5%. Velta debetkorta í september nam 35,8 milljörðum og lækkaði um 5,1% milli ára. Hins vegar jókst velta de- betkorta um 6,3% frá september- mánuði 2017 og nam 42,3 milljörðum króna. Velta debetkorta jókst erlendis milli ára og fór úr 4,1 milljarði í 5,9 milljarða. Því kann að ráða sú stað- reynd að nú má nota fleiri tegundir debetkorta til viðskipta hjá erlend- um netverslunum en áður var. Inn- anlands dróst notkun debetkorta hins vegar saman um 3,7 milljarða, sem jafngildir 11% samdrætti. Færslum með innlendum debet- kortum í september fækkaði sömu- leiðis frá sama mánuði 2017 og reyndust þær 6.473 en höfðu verið 397 fleiri 12 mánuðum fyrr. Færslum með innlendum kredit- kortum fjölgaði um 272 í september frá fyrra ári. Velta innanlands á grundvelli þeirra færslna reyndist 32,2 milljarðar og jókst um 4,9% frá fyrra ári. Veltan erlendis nam hins vegar 10,1 milljarði og jókst um 11,2% frá því 12 mánuðum fyrr. Heildarúttektir erlendra debet- korta hér á landi reyndust 23,1 millj- arður í september og drógust þær saman um tæp 6% frá sama tímabili í fyrra. Meðalupphæð hverrar korta- færslu erlendra korta var 8.345 krónur. Meðalupphæðin var hins vegar 9.118 krónur í september í fyrra. ses@mbl.is Morgunblaðið/Hari Hægir á Tölur um kortaveltu sýna að útlendingar eyða minna hérlendis. Notkun greiðslu- korta eykst um 0,7%  Landsmenn treysta meira á kreditkort en áður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.