Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Ekki er nokk- ur vafi á að þetta svonefnda Guð- mundar- og Geirfinnsmál og óforsvaranlegir dómar í þeim olli sakfelldu og ást- vinum þeirra miklum hörm- um.“ (Jón Stein- ar Gunn- laugsson, 22.7. 2018 21:37.) „Loksins gefst Hæstarétti tækifæri til að vinda ofan af þessari skrípasögu sem hefur leitt þessar hörmungar yfir þessa einstaklinga. Kristján ætlaði að mæta en hætti við. Hugsið ykkur álagið sem fólkið hefur mátt líða öll þessi ár“. (Jón Steinar Gunnlaugsson í réttarhaldi september 2018.) Segja má að fyrrverandi hæstaréttardómarinn, og nú yfirhvíslari í „skrípaleiknum“ hafi náð nýjum hæðum í ómerkilegri lögfræði með þessum yfirlýsingum. Bæði er vegið að dómurum sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér úr gröfum sínum, og svo er verið að velta sér upp úr til- finningum ógæfumanna sem lögmaðurinn hefur engan áhuga á, nema sem uppsprettu feitra málflutningslauna. Gott er að vera vinir Þegar lögfræðingar fallast í faðma við réttarhald og lofa opinberan saksóknara hátt og lágt, þá er eitthvað bogið við hlutina. Það er ljóst að lög- fræðiherdeildin hefur fyrir löngu séð að endurupptaka og dómar í einu mesta sakamáli síðari tíma, yrðu þeim drjúg matarkista og góð réttlæting. Þeir, sem voru dæmdir í Hæstarétti árið 1980 fyrir að bera ábyrgð á endanlegu hvarfi manna árið 1974, þeir eru ekki aðeins taldir ranglega dæmdir, heldur ber að lýsa þeim sem saklausum! Það tek- ur þessa leikara í „skrípó“ víst ekki langan tíma að hreinsa sakavottorð þeirra, sem flest voru þó margar þéttvélritaður síður að umfangi. Sekt og sakleysi Nú er það við- urkennt, að betra er að tíu sekir gangi lausir en að einn saklaus hljóti dóm. Faðir minn var dómari við Hæstarétt á þessum tíma. Aldrei hefur mér til hugar komið að hann hafi dæmt nokkurn án skyn- samlegra raka eða sannana. Eða játninga. Sama get ég sagt um meðdómendur hans í rétt- inum. Þá var traust til dóm- stóla og lögfræðinga annað og betra en í dag. Leikir lögfræðinnar eru orðnir klækir, sami lögfræð- ingur getur verið leikari, leik- stjóri og yfirhvíslari í skrípa- leikjum réttvísinnar, án nokkurra athugasemda. Án nokkurra spurninga um hags- munaárekstra eða siðgæði. Ofangreindur lögfræðingur (JSG), sem gætir nú (2018) hagsmuna eins hinna dæmdu (KVV), var til dæmis 1998 (v/ beiðni um sérstaka skoðun á rannsókn málsins) rétt- argæslumaður eins þeirrra (ML) sem voru settir saklausir í langt gæsluvarðhald. Gæslu- varðhald, sem byggt var m.a. á framburði þess sama aðila (KVV) árið 1976! Hvernig ætli leikstjórar skrípaleiksins líti á réttarstöðu þeirra sem voru settir saklaus- ir í gæsluvarðhald, byggt á framburði þeirra sem dæmdir voru. Framburði, sem sam- mælst var um þeirra á milli í áður en þau voru hneppt í varðhald. Úr dómi Hæsta- réttar: Í dómskýrslunni skýrði Erla einnig frá því, að hún hefði nokkrum dögum eftir at- burði þessa, líklega næstu helgi á eftir heyrt á viðræður þeirra Guðjóns, Kristjáns og Sævars þar sem þeir hafi kom- ið sér saman um að bendla fjóra nafngreinda menn við hvarf Geirfinns, ef þeir yrðu spurðir um það. Eru það menn þeir, er þau Erla, Sævar og Kristján nafngreindu síðar í rannsókn málsins. Er málinu lokið? Þó sumir telji að þessum málum sé lokið, fer því fjarri. Skrípaleikurinn hefur fjölgað bæði morðingjum og óupp- lýstum mannshvörfum. Eng- inn virðist hafa hugsað til þess að fórnarlömbin í þessum „skrípaleik“ hvíla í ómerktri gröf sem aðeins morðingjarnir vita hvar er. Lögfræðiskarinn baðar sig í ljósi athyglinnar á kostnað manna sem geta ekki gert athugasemdir eða komið með önnur sjónarmið. Það kemur mér ekki við hvernig forsætisráðherrar hafa kosið að nota auð sinn til að styrkja einn eða annan. En núverandi forsætisráðherra sem fædd er 1976 þarf ekki að biðjast afsökunar fyrir mína hönd á dómi frá 1980, er hún var fjögurra ára gömul. Auk þess er nokkuð ljóst að hún hefur ekki lesið málsskjölin, sem dómurinn byggði á. Afsök- unarbeiðni hennar er því kjánaleg. Um aðferðir rann- sakenda get ég ekki dæmt. Líklega verður það næsta mat- arkista lögfræðinganna. Krossferð Ragnars Að- alsteinssonar lögmanns Mannúðarlögfræðingurinn sem gætir hagsmuna Erlu Bolladóttur hefur hafið kross- ferð til að „hreinsa“ nafn henn- ar. Beita lögfræðikunnáttu sinni til að framburður hennar og rangar sakgiftir á hendur saklausum mönnum verði dæmd dauð og ómerk. Táknar það að þeir menn sem máttu þola rangar sakargiftir séu í sömu sporum og áður en þeir voru lýstir saklausir af sak- argiftum síðla árs 1977 eftir 23 mánaða óvissu? Vonandi er lögmaðurinn sáttur við sig og skjólstæðing sinn. Víða í þjóðfélaginu er verið að ræða þetta ömurlega mál. Mér heyrist að fáir hafir lagt það á sig í seinni tíð, að lesa málsskjölin, en yfirlýs- ingagleðin og glamrið ómar um allt. Innantómt, órökstutt. Hver er driffjöðrin í þessu máli? Peningar. Auðvitað kostar réttvísin sitt. Allt þetta mál er rekið á kostnað skattborgara þessa lands. Ekkert er við það að athuga, en ef það er rétt, að þetta mál sé farið að kosta hundruð milljóna, þá er eitt- hvað ekki í lagi. Og málinu alls ekki lokið! Hvað lögfræðingar og dómarar fá greitt er von- andi mannsæmandi, en þarf ekki að vera meir. Á ekki að vera meir. Áttu og eiga fórnarlömb morðingjanna enga ástvini , enga ættingja, vini eða félaga? Það virðist enginn, ekki einn einasti leikari í „skrípa- leiknum“ velta því fyrir sér hvernig þetta mál lítur út frá sjónarhóli þeirra sem töpuðu öllu í þessum grimmilega „skrípaleik“. Töpuðu lífinu. Hvað með þeirra ástvini, þeirra vini, þeirra vandamenn. Hvað með alla þá sem að mál- inu komu og eru nú sakaðir um harðræði og mannvonsku. Pyndingar og lygar. Dóms- morð. Flestir horfnir af sjón- arsviðinu og eru því auðveld fæða mulningsvélar lögfræð- innar. Hvað er sannleikur? Fyrir margt löngu lagði maður nokkur í Júdeu þessa merkilegu spurningu fyrir lýð- inn: „Hvað er sannleikur?“ Varð fátt um svör og enginn hefur getað svarað þessu í 2018 ár og raunar miklu leng- ur. Lukkuriddarar lögfræð- innar á hinu spillta Íslandi virðist aftur á móti hafa svör við þessari margslungnu spurningu á reiðum höndum. Ég hef ekki svarið. Hefur þú svarið ? „Skrípasagan“: leikstjórar, persónur og leikendur Eftir Sigurjón Benediktsson » Lögfræðiskar- inn baðar sig í ljósi athyglinnar á kostnað manna sem geta ekki gert at- hugasemdir eða komið með önnur sjónarmið. Sigurjón Benediktsson Höfundur er tannlæknir. Nýlega er lokið setningu 149. þings Al- þingis Íslend- inga og hef ég sjaldan eða aldrei orðið vitni að slíkum hópi liðleskja sem þar er saman kominn, enda traust á stjórnmálamönnum farið hraðminnandi að undanförnu og finnst engum mikið. Sem ráðherra er Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sú eina sem upp úr stendur. Ellilífeyr- isþeginn ég tók vel eftir því að eini þingmaðurinn sem minnt- ist á og tók upp hanskann fyrir þetta fólk, því til skammar væri öll sú fátækt sem í þjóð- félaginu viðgengist, var Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Það vakti líka undrun mína að enginn úr þingliði Miðflokksins tók verulega af skarið og hef ég lengi talað fyrir því að lagt yrði fram frumvarp um lágmarkseft- irlaun til þeirra um 30 þúsund ellilífeyrisþega sem lifa undir fátæktarmörkum í öllu góð- ærinu sem státað er af og aldrei hafi sést annað eins á Íslandi. En í öllu góðærinu getur svo fjöldinn allur af þessu fólki, sem lifir við sult og seyru, dáið drottni sínum í boði Bjarna fjár- málaráðherra. Hvað veldur? Er ómennskan slík hjá manni sem öllu ræður í fjármálum rík- isins eða getur ráðið? Á meðan hann og hans nánustu skyld- menni og ættingjar vita jafn- vel ekki aura sinna tal og er hyglað á ýmsan hátt eins og fréttir herma. Söngurinn er byrjaður – stutt í kjaraviðræður Söngstjóri grátkórsins er Bjarni fjármálaráðherra og í þeim kórnum er bara ein djúp rödd, 2. bassi sem yfirgnæfir allt. Forsöngvarinn er hinn raddsterki framkvæmdastjóri atvinnulífsins, Halldór Benja- mín, og meðsöngvarar Már seðlabankastjóri, sem allt er að drepa með okurvöxtum og viðskiptafræðingurinn Gylfi Zoëga einkavinur Katrínar forsætisráðherra. Textinn sem kórinn syngur er alltaf sá sami, þjóðarbúið þolir engar kauphækkanir fyrir ellilífeyr- isþega og aðra láglaunahópa eða í hæsta lagi 4% svo allt fari nú ekki á hliðina. En 26% til yfir 50% launahækkanir eru í góðu lagi til há- launastéttanna og meira að segja fengu dómarar, sem eru hættir að vinna 26% hækkun á eftirlaunin ekki alls fyrir löngu svo þeir hefðu það nú af. En ellilífeyrisþegar aðrir eru ekki eins mikils metnir í þjóðfélaginu og geta þess vegna bara veslast upp vegna lélegs viðurværis og erfiðra lífsskilyrða og geta alls ekki brauðfætt sig. Og allt er þetta ástand í boði Bjarna fjár- málaráðherra. Eftirtektarvert er að í söngtextum sem grátkórinn syngur eru ekki til orðin virð- ing og jafnrétti né þar af síður orðið mannréttindi. Þessi orð eru söngstjóranum og kór- félögum framandi því þeir loka eyrunum fyrir slíku rugli, mennirnir sem eru með milljónirnar í mánaðarlaun. Þetta eru 10-20 sinnum meira á mánuði en ellilífeyrisþegum er skaffað eftir að búið er stela af þeim meira og minna lengi. Það hefur verið reiknað út að lágmarksframfærsla fyrir þetta fólk er 330 þús. kr. á mánuði en enginn er með yfir 250 þús. kr. Mikils metinn ís- lenskur rithöfundur sagði ekki fyrir löngu: „Það eru for- réttindi að þurfa ekki að hafa áhyggjur af peningum“. Verkalýðsforingjar, takið nú einu sinni af skarið og semjið um krónutöluhækkun í næstkomandi samningum, t.d. 50 þús. kr. á mánuði, en ekki þessa vitlausu prósentu- hækkun, sem er tómt bull. Á meðan breikkar þó ekki bilið og ójöfnuðurinn í þessu landi með því að gera þá ríku ennþá ríkari. Þeir mega þó hafa það gott mín vegna en við hin vilj- um líka fá að lifa sóma- samlegu lífi Lifi byltingin! Að þingsetningu lokinni Eftir Hjörleif Hallgríms »Krafa ellilífeyr- isþega er 330 þúsund kr. á mán- uði skattfrjálst og ekki seinna en strax. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Elsku Bára. Nú er hlátur þinn þagn- aður, þessi dillandi og smitandi hlátur. Mikil ósköp sem við gátum öll hlegið saman og þú manna mest. Öll matarboðin og ferðalögin geyma endalausar minningar af gleði. Þú varst nefni- lega svo ótrúlega glöð að eðlisfari að það var eiginlega ekki hægt annað en hrífast með. Það var því erfitt að fylgjast með veikindum þínum. Þú smám saman týndir röddinni og þeim hæfileika að vera sjálfbjarga, en þú týndir aldrei húmornum eða gleðinni. Það var aðdáunarvert að fylgjast með auðmýkt þinni í veikindun- um. Þegar ég kom inn í fjölskylduna þína fyrir tæpum tuttugu árum fann ég fljótt að þú og Einar yrðuð sá klettur sem við Angantýr þyrft- um stundum á að halda. Hjá ykk- ur áttum við alltaf skjól, við áttum skilning og stuðning. Ég er ykkur óendanlega þakklát fyrir ömmu- og afafaðminn sem Lísa mín gat alltaf farið í þegar á þurfti að halda, alls ekki síður en hin barna- börnin ykkar. Það er Lísu okkar mikið erfitt að geta ekki fylgt þér en ég veit að þú varst stolt af skvísunni að vera á frystitogara. Andri Þór og Einar Örn komast heldur ekki heim frá Englandi en ég veit að þeir sakna ömmu sinnar mikið. Þú varst allt- af svo glöð að sjá þá aðeins í tölv- Bára Angantýsdóttir ✝ Bára Ang-antýsdóttir fæddist 31. október 1944. Hún andaðist 29. september 2018. Útför Báru fór fram 9. október 2018. unni og ég tala nú ekki um þegar þeir komu fyrir stuttu til að fylgja móðurafa sínum sín hinstu spor, þá áttuð þið yndislegan tíma saman. Þegar við Angan- týr eignuðumst dótt- ur 2004 kom ekkert annað til greina en að skíra hana í höf- uðið á þér og þegar við hringdum frá Brussel eftir að hún var fædd og tilkynntum þér nafnið varstu frá þér numin af stolti. Ekki þótti þér nú verra að við notuðum einn- ig nafn móður þinnar sem þú og allir sem við þekkjum töluðu svo óskaplega fallega um. Arína Bára er skemmtilega lík þinni fjöl- skyldu og gætu Sigga og Ragna auðveldlega átt hana eins og Ang- antýr. Elsku tengdapabbi, það hefur verið óendanlega fallegt að sjá hvernig þú hefur hugsað um Báru í veikindum hennar. Þú hefur sýnt svo mikla alúð, skilyrðislausa ást og umhyggju í hennar garð að eft- ir var tekið. Sigga hefur líka verið okkur öllum ómetanleg og þá sér- staklega mömmu sinni. Þetta verður mikil breyting fyrir ykkur tvö en við munum hjálpast að við að halda minningu hennar á lofti og halda áfram að hlæja saman. Elsku tengdamamma, ég mun halda áfram að halda utan um frumburðinn þinn, einkason og undrið þitt eins og systurnar kalla hann. Við fjölskyldan munum halda áfram að búa til góðar minn- ingar, rifja upp góðar minningar og hlæja áfram saman. Ástarþakkir fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir, Þórunn. Fallinn er frá elskulegur faðir okk- ar, Þorsteinn Mar- inó Kristjánsson frá Gásum við Eyjafjörð. Pabbi ólst upp í sveit í mikilli nálægð við sjóinn og bjó að því alla tíð. Pabbi var alla tíð vörubílstjóri og eignaðist sinn fyrsta vörubíl með góðri aðstoð eldri bróður síns, Aðalsteins. Við eigum góðar minn- ingar af heimsóknum að Gásum, öllum ferðum okkar á vörubílnum þegar pabbi var að ná í sand á Gás- eyrina sem hann seldi inn á Ak- ureyri í byggingar. Margt eldra fólk kannast vel við pabba sem Steina í sandinum, á A-951. Hann var ótrúlega duglegur að taka okk- ur með í bílinn eins og reyndar síð- ar barnabörnin og börn í stórfjöl- skyldunni. Stundirnar í vörubílnum og síðar í litla bílnum, eins og við kölluðum hann, voru notaðar í að kenna okkur heiti á fuglum og bæjum og að syngja. Í minningunni var sungið Blátt lítið blóm eitt er og Göngum, göngum, göngum upp í gilið og ýmislegt fleira. Á þessum tíma bjuggu fjög- ur systkini pabba á Gásum með öldruðum foreldrum sínum og pabbi nýtti sandinn á Eyrinni. Eft- ir að Gásir voru seldar til föður- fólks okkar 1967 fór pabbi að vinna á Vörubílastöðinni Stefni á Akur- eyri og vann þar út starfsævina. Pabbi og mamma áttu fallegt Þorsteinn Marinó Kristjánsson ✝ Þorsteinn Mar-inó Kristjáns- son fæddist 10. nóv- ember 1922. Hann lést 1. október 2018. Útför hans fór fram 15. október 2018. heimili í Suður- byggðinni og ekki síst var garðurinn þeirra mjög fallegur og aðallega er hann verk mömmu en pabbi hjálpaði þar mikið til, ekki síst eftir að hann hætti að vinna. Hann var mikið snyrtimenni, gekk vel um, hugsaði vel um bílana sína og var sjálfur mjög snyrtilegur. Þegar við dæturnar komumst á unglingsaldur langaði okkur í búðarföt eins og við köll- uðum það en eins og algengt var á þessum tíma gengu börn í heima- saumuðum og -prjónuðum fötum. Pabba fannst aðalatriði að fötin væru hrein og heil, jafnvel þótt þau væru viðgerð. Pabbi hafði góða lund og var dagfarsprúður maður. Hann var ákaflega hjálpsamur og duglegur að líta til með sínu fólki, heimsótti fólk og keyrði það þegar þurfti, þá sagði hann með bros á vör „ég fékk túr“, gamalt orðatiltæki frá Stefni. Hann hafði lúmskan húm- or sem kom manni oft á óvart, jafnvel núna á síðustu árum þegar heilsan var orðin léleg og minnið hverfult. Pabbi átti langa og góða ævi og við erum innilega þakklátar fyrir allt sem pabbi var okkur alla tíð. Pabbi dvaldi síðustu fjögur árin á Dvalarheimilinu Hlíð, þar var mjög vel um hann hugsað og við þökkum starfsfólkinu á Reynihlíð innilega fyrir umhyggjuna og hlýjuna sem þau sýndu honum. Hvíl í friði, elsku pabbi, þínar dætur, Stefanía, Kristín, Sigrún, Ásdís og Ásta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.