Morgunblaðið - 18.10.2018, Síða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
GLÆRT
LOK
RAUÐUR
BORÐ I
KOLVETNASKERTA
FJÖLSKYLDAN
Þú þekkir hana á rauða borðanum og glæra lokinu
K
O
LV
E
T
N
A
S
K
E
R
T
#iseyskyr
finn mikla velvild í garð fyrirtækis-
ins. Það skapast oft skemmtilegar
umræður eins og um daginn þegar
krukkusending til okkar brást
þannig að við urðum að taka hlé á
framleiðslu haustjógúrtarinnar. Þá
bauðst fólk unnvörpum til að lána
okkur krukkur! Sem hefði verið frá-
bært ef það hefði verið mögulegt en
út af hreinlætiskröfum má það
ekki,“ útskýrir Arna.
Arna er jafnframt mikilvægur at-
vinnuveitandi á Vestfjörðum en
Arna segir að það hafi verið föður
sínum ákaflega mikilvægt að starf-
semin yrði fyrir vestan þótt það sé
að mörgu leyti flóknara. „Hjá okkur
starfa nú sautján manns fyrir vest-
an og við munum bæta við á næst-
unni. Við erum að koma með krydd-
osta á markað núna, vonandi fyrir
jól, en þeir eru framleiddir á Ísa-
firði.
Þarf minni viðbættan sykur
Það sem einkennir laktósafría
mjólk er að hún er sætari á bragðið
en það gerist þegar mjólkursykur-
inn er brotinn niður. Fyrir vikið
þurfum við minna af viðbættum
sykri í vörurnar okkar, sem er mik-
ill kostur. Einnig eru væntanlegir
eftirréttir frá okkur í krukkum. Við
ætlum ekki að setja límmiða á
krukkurnar en hugsunin er að fólk
geti nýtt þær áfram. Við erum mjög
meðvituð um þetta límmiðamál allt
saman og hvað það fer oft fyrir
brjóstið á fólki að þurfa að ná þeim
af. Því tókum við meðvitaða ákvörð-
un um að merkja krukkurnar ekki á
þann hátt. Hugsunin er jafnframt
að þú getir borið eftirréttinn fram í
krukkunni þannig að fyrirhöfnin sé
engin.
Ísinn væntanlegur í verslanir
Ís frá Örnu er einnig fáanlegur á
Ís- og kaffibar Örnu á Eiðistorgi.
Þar er seldur ís frá fyrirtækinu en
upphaflega hafði planið verið að
selja ís í ísbúðir. Svo komumst við
að því að flestar ísbúðir eru með ís-
vélar sem ísframleiðendur láta þeim
í té og mega því ekki bjóða upp á ís
frá öðrum úr þeim vélum. Þetta
setti óneitanlega strik í reikninginn
en það varð úr að Jón Tetzchner,
sem er einn af fjárfestunum á bak
við Örnu, ákvað að opna ís- og kaffi-
bar á Eiðistorgi þar sem hann rek-
ur meðal annars öflugt frumkvöðla-
setur,“ segir hún og bætir við að
von sé á ísnum í almennar matvöru-
verslanir fyrir jólin. Það verður sér-
stakur jólaís í boði sem verður í fal-
legum glerkrukkum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ein svalasta eldhústækjalína
sögunnar er eftir meistara
Philippe Starck og hönnuð í
samstarfi við Gorenje. Línan
er hreint ótrúlega fögur svo
ekki sé fastar að orði kveðið
enda Starck þekktur fyrir
að kunna sitt fag.
Línan er nú fáanleg hér á
landi en það er Pro Gastro
sem selur hana. Verðið kem-
ur skemmtilega á óvart
enda sambærilegt við það
sem gengur og gerist, ólíkt
því sem margur hefði búist
við.
Philippe Starck-
heimilistæki fá-
anleg hér á landi
Slegið í gegn Eldhústækjalínan þykir tímalaus snilld eins og Starck einum er lagið.