Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 5. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 251. tölublað 106. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS VEGLEG BÓKAUMFJÖLLUN
VEIÐIGJÖLDIN
ÞREFÖLDUÐ-
UST MILLI ÁRA
MENNINGIN 68-71 VIÐSKIPTAMOGGINNSÉRBLAÐ 8 SÍÐUR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gangi ný miðspá Hagstofunnar eftir verða íbúar
landsins orðnir 364 þúsund árið 2020. Það yrði
fjölgun um 31 þúsund íbúa frá árinu 2016.
Slík fjölgun jafnast til dæmis á við allan íbúa-
fjölda Hafnarfjarðar og samanlagða íbúafjölgun
á Íslandi áratuginn 2006 til 2016. Hagstofan gerir
reglulega mannfjöldaspá. Samkvæmt spánni
sem var gerð 2016 var gert ráð fyrir tæplega 352
þúsund íbúum 2020 í miðspá. Með nýrri mann-
fjöldaspá hækkar miðspáin í 364 þúsund.
Hefur hún því verið endurmetin til umtals-
verðrar hækkunar.
Mikill aðflutningur erlendra ríkisborgara á
þátt í íbúafjölguninni. Um 22.400 fleiri erlendir
ríkisborgarar fluttu til landsins en frá því á tíma-
bilinu frá 1. janúar 2012 og fram á mitt þetta ár.
Svo mikil íbúafjölgun hefur víðtæk efnahagsleg
áhrif. Til dæmis segir í nýjum Fjármálastöðug-
leika Seðlabankans að skv. mannfjöldaspá Hag-
stofunnar muni íbúum á höfuðborgarsvæðinu
ekki fjölga til jafns við nýjar íbúðir á næstu ár-
um. Þróun búferlaflutninga næstu misseri gæti
því haft mikil áhrif á íbúðamarkaði. »10
Íslendingar 364.000 árið 2020
Hagstofan spáir nú hrað-
ari íbúafjölgun en í fyrri spá
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
17. júní Íslendingar verða 364.000 eftir tvö ár.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Jöfnuður á Íslandi, hvort heldur horft er til
eigna eða tekna, hefur aukist á undan-
förnum árum. Þetta er niðurstaða grein-
ingar Samtaka atvinnulífsins. Við grein-
inguna var meðal annars stuðst við opinber
gögn og greiningu bankans Credit Suisse.
Leiðir greiningin í ljós að jöfnuður tekna
hefur aukist, samkvæmt Gini-stuðlinum.
Meðal annars hafi meðallaun efstu tekju-
tíundarinnar hækkað minna undanfarin ár
en allra hinna og jöfnuður því aukist.
Á sama hátt hafi eignaójöfnuður verið
minni á Íslandi árið 2016 en árið 2007. Til
dæmis bendi greining Credit Suisse til að
hlutdeild efstu tíundar af hreinum heildar-
eignum á Íslandi sé sú minnsta á Norður-
löndum. »18
Jöfnuður á Íslandi
aukist síðustu ár
Þúsundir kvenna lögðu niður störf klukkan 14:55 í gær í til-
efni af kvennafrídeginum. Samstöðufundir voru haldnir um
land allt og sá stærsti á Arnarhóli.
Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn 24. október 1975, á
kvennaári Sameinuðu þjóðanna. Kjörorð kvennafrídagsins í
ár var: „Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!“
Launamisrétti, kynbundið ofbeldi og staða kvenna af
erlendu bergi brotinna var á meðal þess sem ræðukonur fund-
arins vöktu athygli á á Arnarhóli í gær. »2
Morgunblaðið/Eggert
Konur kröfðust launajafnréttis á samstöðufundi