Morgunblaðið - 25.10.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.10.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Það er auðvitað alltaf mjög já- kvætt að skynja þá miklu sam- stöðu sem maður skynjar hjá ís- lenskum konum, því auðvitað er- um við ólíkar, auðvitað spila alls konar aðrir þættir inn í það hvernig við höfum það en kyn, ólík stétt og staða. En á svona fundum skynjar maður það líka að það skiptir máli að vera kona og það var auðvitað ótrúlega góð til- finning að vera hluti af þessari samstöðu,“ segir Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra um fund- inn í gær. Hún sendi í gær öllu sínu starfsfólki bréf þar sem kon- ur voru hvattar til þess að yfirgefa vinnustaðinn ásamt henni og mæta á Arnarhól. Létu Katrín og stjórn- arráðskonur af störfum klukkan 14:55 í gær. Hún segist einnig hafa séð starfsmenn forsætisráðu- neytisins sem og aðrar þingkonur á samstöðufundinum en þing- fundur á Alþingi hófst klukkan 13:30 í gær. „Alþingi er í sérstakri stöðu sem vinnustaður og hér verður þingfundi lokið klukkan 14:55,“ sagði Katrín í samtali við mbl.is áður en þingfundur hófst í gær. #Metoo hafði áhrif á marga Kvennafrídagurinnn í ár var einnig helgaður baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og báru fund- arhöld á Arnarhóli þess merki. Segir Katrín nauðsynlegt að nýta þá umræðu sem hefur skapast til jákvæðra breytinga. „Þessi dagur var auðvitað helg- aður baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi. Ég held það sé alveg ljóst að margir urðu fyrir miklum áhrifum af ég líka-byltingunni fyrir áramót. Það er mjög mikilvægt að nýta alla þá umræðu sem spratt af henni til já- kvæðra breytinga,“ segir Katrín og bendir jafnframt á að þótt Ís- land hafi náð langt í jafnréttis- málum þurfi enn verkefni fram undan til að stemma stigu við kyn- bundnu ofbeldi. „Ísland hefur komið vel út í al- þjóðlegum samanburði þegar kem- ur að kynjajafnrétti en sá mæli- kvarði þar sem við sitjum efst, á listanum hjá World Economic For- um, hann mælir ekki kynbundið ofbeldi. Það minnir okkur á að það er risamál sem við eigum eftir að takast betur á við.“ Skynjar samstöðu kvenna Katrín Jakobsdóttir  Þörf á að nýta um- ræðu til breytinga Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Þúsundir kvenna um land allt lögðu niður störf kl. 14:55 í gær í tilefni af kvennafrídeginum. Kjörorð Kvenna- frís ársins 2018 voru: „Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!“ Söfnuðust konur saman á sam- stöðufundi m.a. við Arnarhól í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri. Í ár var vakin sérstök at- hygli á kynbundnum mun atvinnu- tekna, sem og almennu öryggi kvenna á vinnustöðum. Fjölmörg samtök kvenna og láglaunafólks standa að Kvennafríi og þá hefur for- sætisráðuneytið einnig lagt verkefn- inu lið. Krefjast mannsæmandi launa Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var meðal ræðukvenna á Arnarhóli og hlaut mikið lófaklapp viðstaddra fyrir ræðu sína. „Við horf- um hver á aðra og viðurkennum að konur eru ekki aðeins beittar kúgun af hálfu karla sem finnst þær einskis virði heldur af efnahagskerfi sem sér bókstaflega ekkert athugavert við að græða á aldagamalli fyrirlitningu á kvennastörfum, á aldagamalli fyrir- litningu á þekkingu kvenna, á alda- gamalli trú á það að konur, það sem þær kunni, sé í eðli sínu annars flokks útsöluvara og það hljóti allir að vera sammála um. En við höfum fréttir að færa: Við erum ekki útsöluvara,“ sagði Sólveig Anna. „Við erum stoltar af stórkostlegu mikilvægi okkar og við einfaldlega setjum fram í fullri og mikilli og grafalvarlegri alvöru þá kröfu að við fáum það sem við eigum allan heimsins rétt á: Mannsæmandi laun fyrir unna vinnu.“ Þakkaði Sólveig jafnframt þeim konum sem sögðu kúgun kvenna stríð á hendur á síðustu öld. „Ég gleðst innilega yfir því að konur á Íslandi hafi á síðustu öld borið gæfu til þess að bera kennsl á þá kúgun sem þær voru beittar og innblásnar af róttæk- um og sögulegum frelsisstraumum sagt þeirri undirsettu stöðu sem þær höfðu verið látnar lifa við stríð á hend- ur. Við stöndum í sögulegu þakklæti við þær konur.“ Sagði Sólveig vandamálið ekki vera að það vantaði karla í kvennastörf heldur væri vandamálið að kvenna- störf væru verðlögð af nísku. Verka- og láglaunakonur væru efnahagslega og pólitískt jaðarsettar. Erfitt að tilkynna brot til yfirmanna á eigin vinnustað Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem var rekin úr starfi sínu sem forstöðu- maður einstaklingsmarkaðar hjá Orku náttúrunnar um miðjan sept- ember, hélt einnig ræðu. Hún hefur gagnrýnt fyrrverandi framkvæmda- stjóra ON, Bjarna Má Júlíusson, fyrir óviðeigandi hegðun gagnvart starfs- fólki fyrirtækisins. Áslaug sagði að það væri erfitt að fara til yfirmanna sinna til að tilkynna brot á eigin vinnustað. „Spor þín eru þung á fyrsta fund- inn með starfsmannastjóra, þyngri á fund tvö og svo framvegis. Erindið er alltaf það sama: Þú ert að tilkynna ruddaskap og dónaskap á þínum vinnustað. Örvæntingin er mikil þeg- ar starfsmannastjórinn segir þér að spjalla við hann og finna út úr þessu,“ sagði Áslaug. „Örvæntingin er meiri þegar þú ert rekin án útskýringa,“ bætti Áslaug við. Hún sagði að tilfinn- ingin eftir fundinn hefði verið ógeð- felld. Sér hefði verið boðinn aðeins lengri uppsagnarfrestur, en í staðinn yrði hún að láta þetta yfir sig ganga. „Hljómar þetta eins og frábær díll?“ spurði Áslaug og allur fjöldinn á Arn- arhóli öskraði: „Nei!“ Morgunblaðið/Eggert Kvennafrídagurinn við Arnarhól Fjölmargar konur mættu á Arnarhól með mótmælaskilti og kröfðust þess að staða kvenna í samfélaginu yrði bætt. „Við erum ekki útsöluvara“  Konur lögðu niður störf klukkan 14:55 í gær til að mótmæla launamisrétti  Samstöðufundir haldnir um land allt  Þúsundir kvenna mættu á Arnarhól Barátta Skilaboð kvennanna á Arnarhóli voru skýr og samstaðan mikil. Launamunur „Stuðningur við aðrar konur,“ sagði Helena Þór- arinsdóttir aðspurð hvað hefði fengið hana til að mæta á sam- stöðufundinn. Spurð hvað hún telji mikilvægasta baráttumál kvenna í dag segir hún það að jafna launamun kynjanna. Jafnrétti „Mér finnst að konur eigi að fá laun til jafns við karla,“ sagði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir (t.h) sem mætti með systur sinni Helgu Dagnýju Jónasdóttur (t.v.). „Svo er ég með dóttur mína með mér sem er fjögurra ára og ég vil ekki að hún þurfi að bíða lengi eftir því að jafnrétti náist.“ Samstaða Sigrún Helga Sigurðardóttir (t.v.) og Ingibjörg Björnsdóttir (t.h.) sögðu báðar að samstaða hefði fengið þær til að mæta á Arnarhól í gær. Þær telja að jafnrétti til launa sé mikilvægasta baráttumálið í kvenréttindum í dag. Kvennafrídagurinn 2018
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.