Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Útlit er fyrir að starfsemi Hins
hússins, sem verið hefur í mið-
bænum í yfir 20 ár, flytjist í annað
hverfi borgarinnar. Starfsemin hef-
ur verið í húsinu
við Pósthússtræti
3-5, það var aug-
lýst til leigu um
helgina og á fundi
borgarráðs í dag
verða húsnæðis-
mál starfsem-
innar tekin fyrir.
Markús H. Guð-
mundsson, for-
stöðumaður Hins
hússins, segir að
eigandi hússins sem er fasteigna-
félagið Reitir hafi ekki viljað leigja
Hinu húsinu það áfram til langs
tíma. Ólíklegt sé að hentugt húsnæði
fáist í miðbænum vegna hás leigu-
verðs þar.
Apótek og Eimskipahúsið í boði
Hitt húsið er rekið af Íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkurborgar,
ÍTR. Þar starfa um 65 manns, þetta
er eina ungmennahús borgarinnar
og starfsemi þess er ætluð aldurs-
hópnum 16-25 ára. Húsið er m.a.
vettvangur fyrir hugmyndir og
menningu ungs fólks og þar er einn-
ig veitt margvísleg ráðgjöf og að-
stoð. Þá er þar miðstöð fyrir ungt
fólk í leit að sumarstarfi.
Hitt húsið var opnað árið 1991,
það var fyrst í húsnæði skemmti-
staðarins Þórskaffis í Brautarholti
og var þá aðallega dansstaður fyrir
ungt fólk, en fljótlega komu fram
óskir um að starfsemin væri fjöl-
breyttari. Síðan flutti það í Geysis-
húsið fyrir rúmum 20 árum og hefur
frá árinu 2002 verið í gamla pósthús-
inu við Pósthússtræti sem nokkrir
aðilar hafa átt síðan þá.
Markús segir að þegar síðustu
flutningar stóðu fyrir dyrum hafi
starfseminni m.a. staðið til boða að
vera í Apótekshúsinu, Nasa, Eim-
skipafélagshúsinu og Landsímahús-
inu. Mikið framboð hafi verið af hús-
næði í miðbænum á þessum tíma en
nú séu breyttir tímar. „Við hefðum
viljað að borgin hefði keypt húsið á
sínum tíma, en það hefur verið
stefna borgarinnar að kaupa ekki
húsnæði fyrir starfsemi sem þessa,“
segir Markús.
Hitt húsið hefur fengið framleng-
ingu á leigusamningi sínum við Reiti
fram á mitt næsta ár. Markús segir
að vel komi til greina að starfsemin
flytjist úr miðbænum, hún sé þess
eðlis að hún geti verið annars staðar
í borginni en vandasamt gæti reynst
að finna húsnæði sem hentar. Þá
þurfa aðgengi og aðkoma að vera
góð, en í Hinu húsinu er frístunda-
starf fatlaðra ungmenna á fram-
haldsskólaaldri. Hluti starfsem-
innar, eins og t.d. Unglist, Músík-
tilraunir og Götuleikhúsið, fer svo
fram víða um borgina.
Áskorun en jafnframt tækifæri
Að sögn Markúsar hefði þurft að
gera nokkrar endurbætur á hús-
næðinu ef til stæði að Hitt húsið yrði
þar áfram. Hann segir brunavarnir í
því vera frá því um 1970, lyfta húss-
ins sé 30 ára gömul vörulyfta og þá
hafi borið á bæði rakaskemmdum og
myglu þannig að loka hafi þurft
rýmum. „Ef við yrðum hér áfram,
þá þyrfti að kippa þessum hlutum í
lag þannig að það mætti safna hér
saman ungmennum borgarinnar. En
það er engin sérstök stefna hjá
borginni að þessi starfsemi verði
miðsvæðis og kannski er bara kom-
inn tími til að við förum úr mið-
bænum, úr þessu fallega og róm-
antíska húsi, og stokkum aðeins
upp. Það verður áskorun, en ég sé
heilmörg tækifæri í því.“
Hitt húsið fer
úr miðbænum
eftir yfir 20 ár
Ólíklegt að annað húsnæði fáist í
miðbænum vegna hás leiguverðs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pósthússtræti 3-5 Þar hefur Hitt húsið verið með starfsemi sína frá árinu
1992. Nú hefur húsið verið auglýst til leigu og því fer starfsemin annað.
Markús H.
Guðmundsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bygging nýrrar slökkvistöðvar
Brunavarna Suðurnesja er að hefj-
ast. Mun aðstaða slökkviliðsins til að
þjóna íbúum og fyrirtækjum gjör-
breytast, að sögn slökkviliðsstjór-
ans, og einnig aðbúnaður starfsfólks
og aðstaða til að geyma bíla og önnur
tæki liðsins.
Slökkvistöð Brunavarna Suður-
nesja var upphaflega byggð í útjaðri
íbúðarbyggðarinnar í Keflavík, fyrir
meira en hálfri öld. Jón Guðlaugsson
slökkviliðsstjóri segir að það hafi
verið góð staðsetning á þeim tíma en
það hafi breyst. Aðstaðan sé orðin
þröng og umferð mikil í kringum
stöðina. Þá hafi húsið ekki verið
byggt með þarfir atvinnuslökkviliðs í
huga.
Góður staður fyrir slökkvilið
Nú er slökkviliðið með 20 atvinnu-
menn í fullu starfi auk slökkviliðs-
manna í hlutastarfi, með vakt allan
sólarhringinn. Stöðin uppfyllir að
hans sögn ekki þær kröfur sem gerð-
ar eru til starfseminnar auk þess
sem hún er of lítil fyrir mannskapinn
og tækin.
Nýja slökkvistöðin verður í nýju
atvinnuhverfi í Keflavík, við götuna
Flugvelli, austan Reykjanesbrautar.
„Þetta er eins góð staðsetning og
hugsast getur. Stutt er í stofnæðar
umferðar og við liggjum vel við öllu
þjónustusvæðinu,“ segir Jón.
Slökkviliðið þjónar öllum Suður-
nesjum utan Grindavíkur, þar á með-
al Reykjanesbæ, Sandgerði, Garði
og Vogum, auk flugstöðvarinnar og
annarra bygginga á Keflavíkurflug-
velli. Slökkviliðið annast sjúkraflutn-
inga á sama svæði.
Útköllum hefur fjölgað mjög á
undanförnum árum vegna aukinna
umsvifa á svæðinu, fjölgunar íbúa og
ekki síst fjölgunar ferðafólks. Nú eru
um 3.000 sjúkraflutningar á ári og
um 200 útköll slökkviliðs.
Afhent eftir eitt ár
Nýja húsið verður 2.250 fermetrar
að gólfleti. Auk slökkvistöðvar verð-
ur þar aðgerðastjórnstöð fyrir al-
mannavarnir.
Samið var við Ístak um byggingu
hússins að afloknu útboði á vegum
Ríkiskaupa. Samningsupphæð er
tæpar 730 milljónir króna. Verktak-
inn mun skila húsinu fullfrágengnu
að utan og innan ásamt lóð.
Reiknað er með að slökkviliðið
flytji inn eftir tæpt ár.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Keflavík Gamla slökkvistöðin í Keflavík er of lítil og uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til slíkra bygginga.
Aðstaða slökkviliðsins
mun gjörbreytast
Ný slökkvistöð byggð fyrir Brunavarnir Suðurnesja
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIð höNNum oG TeIkNum STuRTuTÆkI SpeGLAR oG LjóS
styrkur - ending - gæði
BAðheRBeRGISINNRÉTTINGAR
hÁGÆðA DANSkAR
opIð:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Við gerum þér
hagstætt tilboð, bæði í
innréttingu, spegla, vaska
og blöndunartæki
BLöNDuNARTÆkI
Til sölu rótgróin hársnyrtistofa í góðum rekstri í
norðausturhluta höfuðborgarsvæðisins.
Frekari upplýsingar á
tilsoluharsnyrtistofa@gmail.com
Til sölu
hársnyrtistofa