Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 www.skoda.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvort tveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. 5.590.000 kr. 4.590.000 kr. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Unnið er að því að ljúka vinnu við fornleifarannsókn sem staðið hefur yfir á Bessastöðum. Svæðinu verður svo lokað fyrir veturinn, að sögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifa- fræðings sem stjórnar rannsókninni. Hún sagði að framhald verkefnisins væri í höndum Minjastofnunar. „Það er eftir að rannsaka þarna eitthvað meira. En það er komið haust og rysjótt veður. Það er erfitt að vinna við þetta þegar rignir ann- an hvern dag og svo er mjög vinda- samt þarna. Ég býst við að við frest- um framhaldinu fram á vor,“ sagði Ragnheiður. „Það verður settur jarðvegsdúkur þarna yfir og jarð- vegur. Svo er hægt að taka það upp og byrja aftur þegar fer að vora.“ Grill forfeðranna Á svæðinu sem nú er verið að ljúka vinnu á fundust tvær soðholur sem sennilega eru frá 10. öld. Segja má að soðholur hafi verið gamal- dags grill. Soð- holur eru ekki al- gengar hér en sama gerð af soð- holum og fundust á Bessastöðum hefur einnig fundist á Hofs- stöðum í Garða- bæ og í selinu í Urriðakoti. Þær virðast því hafa ver- ið algengar á þessu svæði. Sennilega hefur stærri soðholan á Bessastöð- um verið utandyra. Hún er rúmlega einn metri á breidd. Í henni hefur því verið hægt að elda fyrir marga. Það gæti bent til þess að þarna hafi farið fram blót til forna. Soðholur eru fóðraðar með stein- um. Þær hafa verið hitaðar upp með eldi og síðan sett í þær t.d. kjöt og lokað yfir með torfi þannig að mat- urinn moðsauð á löngum tíma. Ragnheiður segir að skiptar skoð- anir séu um hvers konar eldstæði þetta séu. „Ég hef haldið því fram að soðholur af þessari gerð séu mjög fornar og að menn hafi hætt að gera þær á 10. öld,“ sagði Ragnheiður. „Það eru mjög gamlar minjar þarna á Langavelli þar sem bærinn Lamb- hús á Álftanesi stóð.“ Miklar minjar á svæðinu Fornleifafræðingar voru fengnir nú í haust til að kanna svæðið þar sem á að breikka veginn heim að Bessastöðum, stækka bílastæði og leggja göngustíga. Fundist hafa minjar sem taldar eru vera frá landnámsöld en einnig frá 12. og 13. öld og síðar. Meðal annars fannst grunnur timburhúss sem þykir ekki ólíklegt að sé hinn sögufrægi stjörnuturn á Lamb- húsum og er frá því í lok 18. aldar. Heimildir eru til um búsetu á Lamb- húsum frá því á 16. öld. Miklar forn- leifarannsóknir hafa verið gerðar á Bessastöðum í áranna rás en þar hófst búseta líklega þegar eftir land- nám. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bessastaðir Fornleifafræðingarnir Ármann Dan Árnason og Hermann Jakob Hjartarson við rannsóknarstörf. Soðholur frá 10. öld fundust á Bessastöðum  Rannsóknarsvæðinu verður brátt lokað fyrir veturinn Ragnheiður Traustadóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útsýnispallur sem slútir fram yfir brún Bolafjalls er á verkefnaskrá bæjarstjórnar Bolungarvíkur. „Það verður alveg einstök upplifun að fara þangað út og horfa yfir Ísa- fjarðardjúp,“ segir Jón Páll Hreins- son, bæjarstjóri í Bolungarvík. Bolafjall er 638 metra hátt fjall beint upp af Bolungarvík. Þar er rat- sjárstöð sem Landhelgisgæslan rek- ur. Þegar stöðin var byggð var lagð- ur þangað ágætur vegur, nokkuð brattur, sem aðeins er opinn yfir há- sumarið. „Fjallið hefur mikinn sess í hugum Bolvíkinga,“ segir Jón Páll. Ferðamannastraumur þangað hefur aukist mikið á síðustu árum. Segir Jón Páll að bærinn hafi hingað til einbeitt kröftum sínum að örygg- ismálum á fjallinu og gerð göngu- stíga. Það hafi verið gert með fræðsluskiltum og merkingum. „Aðgengi að fjallinu er gott yfir sumartímann og við teljum klárlega eftirspurn eftir meiri áfangastað þar. Það er ekki síst vegna þess mikla útsýnis sem er af fjallinu, bæði yfir Ísafjarðardjúp og Bolungarvík,“ segir hann. Margir sýndu áhuga Bolungarvíkurkaupstaður sótti um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til undirbúnings framkvæmda og fékk. Ákveðið var að efna til samkeppni í samvinnu við Verkís og Félag íslenskra landslags- arkitekta. Svæðið var teiknað upp, teknar ljósmyndir og gert þrívíddar- líkan og auglýst eftir hugmyndum. „Við fengum afar góð viðbrögð. Flestar áhugaverðustu verkfræði- og arkitektastofur landsins sóttust eftir þátttöku. Við höfum bara tæki- færi til að leyfa þremur að keppa og þess vegna drógum við úr þeim fimmtán umsóknum sem bárust og uppfylltu öll skilyrði,“ segir bæjar- stjórinn. Upp úr hattinum komu verkefni Eflu og Landarks, Landmótunar, Argos og Sei og Studio Arnhildar Pálmadóttur & KBS. Markmiðið er að fá fram hugmyndir að hönnun og efnisnotkun útsýnispalls sem verður einstakur í sinni röð hvað varðar fagurfræði og staðsetningu. Hann skal falla vel að umhverfinu. Framkvæmt á næsta ári Skila á tillögum í desember og niðurstaða samkeppninnar verður kynnt í janúar. Þá hefst einnig vinna við breytingar á skipulagi. Áætlað er að uppbyggingin muni kosta 50-70 milljónir kr. og hefur Bolungar- víkurkaupstaður sótt um framlag úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða til að hefja framkvæmdir á næsta ári. Jón Páll segir að í framhaldinu verði lagt net göngustíga um há- sléttuna á fjallinu og um bjargið. Útsýnispallur slúti fram yfir brúnina  Bætt aðstaða fyrir fólk á Bolafjalli Morgunblaðið/Árni Sæberg Veðurfyrirbæri Stórfenglegt útsýni er af Bolafjalli, ekki síst ef veðrið sýnir sínar bestu hliðar, eins og var þegar ljósmyndarinn var þar á ferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.